2. nóvember 2021 /
Forsætisráðuneytið

580 milljarðar í grænar fjárfestingar

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, með Þóreyju Þórðardóttur og Ólafi Sigurðssyni, fulltrúum íslensku lífeyrissjóðanna.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, með Þóreyju Þórðardóttur og Ólafi Sigurðssyni, fulltrúum íslensku lífeyrissjóðanna.

Þrettán íslenskir lífeyrissjóðir ætla að fjárfesta fyrir um 580 milljarða króna í verkefnum sem tengjast hreinni orku og öðrum umhverfisvænum lausnum fram til ársins 2030.

Sjóðirnir skrifuðu undir viljayfirlýsingu þess efnis gagnvart alþjóðlegu samtökunum Climate Investment Coalition (CIC) og kynntu hana formlega í morgun á fundi með norrænum forsætisráðherrum í norræna skálanum á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP26, sem fram fer í Glasgow í Skotlandi. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fagnaði í ræðu sinni frumkvæði norrænu lífeyrissjóðanna og lagði áherslu á mikilvægi réttlátra umskipta í öllum aðgerðum okkar gegn loftslagsvánni.

Íslensku lífeyrissjóðirnir bætast með þessu í hóp fjölda norrænna lífeyrissjóða sem hafa gefið út sambærilegar yfirlýsingar á síðustu tveimur árum. Með yfirlýsingunni nú staðfesta íslensku sjóðirnir þrettán vilja til að stórauka grænar fjárfestingar sínar og styðja þannig við markmið um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu. Þar er meðal annars horft til ákvæða Parísarsamkomulagsins um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda.

Í september í fyrra undirrituðu ráðherrar ríkisstjórnarinnar og fulltrúar lífeyrissjóða, fjármálastofnana, vátryggingafélaga og fjárfestingaaðila sameiginlega viljayfirlýsingu um fjárfestingar í þágu sjálfbærrar uppbyggingar en sú viljayfirlýsing var unnin í samstarfi forsætisráðuneytisins, Festu – miðstöðvar um samfélagsábyrgð og sjálfbærni, Landssamtaka lífeyrissjóða og Samtaka fjármálafyrirtækja. Viljayfirlýsingin í dag undirstrikar einbeittan vilja þessara aðila til að beina fjármagni sínu í grænar fjárfestingar og aðgerðir gegn loftslagsvánni.



 
Var efnið hjálplegt?