
Skýrsla starfshóps um málefni gervigreindar
Starfshópur um nálgun stjórnvalda í málefnum gervigreindar sem var skipaður í júlí síðastliðnum að tillögu forsætisráðherra og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra hefur skilað skýrslu sinni.
NánarVerkefni forsætisráðuneytisins varða stjórnskipan lýðveldisins Íslands og Stjórnarráðið í heild. Málefni ríkisstjórnar og ráðherranefnda, málefni ríkisráðs, þjóðhagsmál, löggjafarmálefni, stjórnarfar almennt, þjóðartákn og fleira, samanber forsetaúrskurð um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Forsætisráðuneytið fer auk þess með ýmis málefni og tilfallandi verkefni tengd stöðu og störfum forsætisráðherra sem oddvita ríkisstjórnarinnar.
Forsætisráðherra fer með yfirstjórn ráðuneytisins. Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra.
Kristrún tók við embætti forsætisráðherra 21. desember 2024.
Hún hefur setið á Alþingi fyrir Samfylkinguna síðan 2021 og verið formaður flokksins frá 2022.