Minjastofnun

Húsnæðis- og mannvirkjamál

Öruggt húsnæði er mikilvæg forsenda fyrir velferð hverrar fjölskyldu. Meginmarkmið opinberrar stefnu í húsnæðismálum er að tryggja húsnæðisöryggi allra landsmanna. Í því felst m.a. að stuðla að því að á hverjum tíma sé hæfilegt framboð af hentugu húsnæði sem mætir ólíkum þörfum fólks, efnum og aðstæðum og að veita fjárhagslegan stuðning þeim sem þess þurfa með.

Stjórnskipulagi húsnæðismála er lýst í lögum um húsnæðismál en samkvæmt þeim annast Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun stjórn og framkvæmd húsnæðismála í umboði ráðherra.

Sveitarstjórnir bera ábyrgð á að leysa húsnæðisþörf fólks í viðkomandi sveitarfélagi sem ekki er fært um það án aðstoðar.

Verkefni á sviði húsnæðis- og mannvirkjamála heyra meðal annars undir eftirfarandi málefnasvið í gildandi fjármálaáætlun:

  • Húsnæðisstuðningur
Var efnið hjálplegt?