27. janúar 2022 /
Utanríkisráðuneytið
Sendiráð Íslands í Ottawa
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Menningarátakið Nordic Bridges hefst í dag

Nordic Lights er hluti af opnun Nordic Bridges og samanstendur af röð ljósverka eftir norræna og kanadíska listamenn sem sett eru upp utandyra við Harbourfront Centre í Toronto. Á myndinni sést verkið „Control no control“ eftir Iregular.
Brian Medina
Nordic Lights er hluti af opnun Nordic Bridges og samanstendur af röð ljósverka eftir norræna og kanadíska listamenn sem sett eru upp utandyra við Harbourfront Centre í Toronto. Á myndinni sést verkið „Control no control“ eftir Iregular.

Norræna menningarátakið Nordic Bridges hefst í dag í Kanada. Þar er kastljósinu beint að norrænni menningu og listum. Á árinu 2022 munu samstarfsaðilar vítt og breitt um Kanada bjóða upp á spennandi listviðburði og umræður með norrænum listamönnum og hugsuðum þar sem málefni á borð við þrautseigju og nýsköpun í listum verða í deiglunni.

„Loksins getum við hleypt Nordic Bridges af stokkunum í Kanada! Það er afar gleðilegt og dagskrá Nordic Bridges er metnaðarfull, fjölbreytt og fræðandi. Með verkefnum eins og þessum minnum við á norræna samtímamenningu og byggjum brýr og styrkjum tengslin. Ég hlakka til að fylgjast með hátíðinni,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála-, menningar- og viðskiptaráðherra.

Norræna ráðherranefndin um menningarmál átti frumkvæði að þessu árslanga átaki, sem menningarstofnunin Harbourfront Centre í Toronto stýrir. Menningarátakið er það umfangsmesta sem Norðurlönd hafa staðið fyrir á erlendri grund og það er norrænu ráðherrunum sönn ánægja að geta nú hleypt því úr vör eftir að hafa þurft að fresta því í ár vegna faraldursins. 

Nordic Lights, Design Matters og Nordic Talks

Fyrstu viðburðirnir verða utandyra eða á netinu, til samræmis við núgildandi sóttvarnareglur, en stærri viðburðir, svo sem hátíðir og sviðsviðburðir, fylgja í kjölfarið síðar á árinu 2022. Hjá Harbourfront Centre, einni helstu lista- og menningarstofnun Kanada, ríkir mikil tilhlökkun. Iris Nemani, aðaldagskrárstjóri við Harbourfront Centre og aðalframkvæmdastjóri Nordic Bridges, segir: 

„Við höfum unnið að undirbúningi Nordic Bridges ásamt hundruðum norrænna og kanadískra listamanna í á þriðja ár og við erum mjög spennt fyrir því að geta boðið upp á sköpunarverk þeirra um land allt út árið 2022. Þetta er einstakt tækifæri til að leiða saman listamenn, frumkvöðla og hugsuði svo þeir geti miðlað því sem þeir telja mikilvægt í menningarorðræðu samtímans, auk þess sem við bjóðum almenningi að upplifa framúrskarandi listviðburði af öllum gerðum, allt frá dansi og leikhúsi til myndlistar.“

Á meðal þess sem kanadískir samstarfsaðilar á borð við alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Toronto, BreakOut West og National Arts Centre bjóða upp á er sviðslistir, myndlist og stafræn list, handverk og hönnun, bókmenntir, matargerðarlist, rökræður um samfélagsmál og blaðamennska.

Norrænir listamenn og hagsmunaaðilar frá öllum Norðurlöndum starfa og koma fram með kanadískum listamönnum á listahátíðum, í listastofnunum og á söfnum víðsvegar um landið. 

Dagskrá Nordic Bridges og þetta samstarf listamanna, frumkvöðla og hugsuða hvílir á fjórum meginstöðum: nýsköpun í listum, aðgengi og þátttöku, sjónarmiðum frumbyggja og þrautseigu og sjálfbærni. Þetta eru afar brýn málefni í bæði Kanada og á Norðurlöndum.

Frekari upplýsingar um Nordic Bridges má fá með því að fara á NordicBridges.ca eða fylgjast með @NordicBridges og #NordicBridges á samfélagsmiðlum.

Var efnið hjálplegt?