11. júlí 2022 /
Forsætisráðuneytið

Samstarf við Stertabenda um sýninguna Góðan daginn, faggi á landsbyggðinni

Gréta Kristín Ómarsdóttir, leikstjóri og höfundur, Bjarni Snæbjörnsson, leikari og höfundur, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Hjalti Vigfússon verkefnastjóri.
Gréta Kristín Ómarsdóttir, leikstjóri og höfundur, Bjarni Snæbjörnsson, leikari og höfundur, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Hjalti Vigfússon verkefnastjóri.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Bjarni Snæbjörnsson, f.h. Stertabenda – leikhóps, undirrituðu í dag samstarfssamning um sýningar á verkinu Góðan daginn, faggi í framhaldsskólum á landsbyggðinni.

Góðan daginn, faggi er sjálfsævisögulegur heimildasöngleikur þar sem fertugur hommi leitar skýringa á skyndilegu taugaáfalli sem hann fékk upp úr þurru einn blíðviðrisdag. Eftir vandasaman leiðangur um innra líf sitt, fortíð og samtíma rekst hann á rætinn hommahatara á óvæntum stað. Sýningin er afhjúpandi leiðangur um skömm og mennsku og einlægt samtal við drauminn um að tilheyra.

Með samningnum greiðir forsætisráðuneytið Stertabenda – leikhópi eina milljón króna fyrir að bjóða framhaldsskólum á landsbyggðinni að sýna sýninguna frítt eða á viðráðanlegum kjörum. Þannig verður unnið gegn vanlíðan unglinga um land allt, fordómum og hatursorðræðu, sem því miður hefur færst í aukana að undanförnu. 

Var efnið hjálplegt?