6. september 2023 /
Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra fundaði með forsætisráðherra Lúxemborgar

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Xavier Bettel, forsætisráðherra Lúxemborgar.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Xavier Bettel, forsætisráðherra Lúxemborgar.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Xavier Bettel, forsætisráðherra Lúxemborgar, áttu í dag tvíhliða fund í Lúxemborg. Fundurinn var haldinn í kjölfar samtals forsætisráðherranna í tengslum við leiðtogafund Evrópuráðsins í Reykjavík í maí sl.

Á fundinum ræddu ráðherrarnir um tvíhliða samskipti landanna og á hvaða sviðum væri hægt að efla það enn frekar. Þannig var sérstaklega rætt um háskólasamstarf en í síðustu viku undirrituðu Háskóli Íslands og háskólinn í Lúxemborg viljayfirlýsingu um samstarf á sviði smáríkjafræða þar sem stefnt er að skiptum á fræðimönnum og nemendum, og rannsóknarsamstarfi.  Einnig var rætt um samvinnu á sviði skapandi greina, einkum í kvikmyndagerð. Í skoðun er að kvikmyndamiðstöðvar landanna geri með sér samning sem auðveldi samvinnu í framleiðslu kvikmynda. Þá ræddu ráðherrarnir um Evrópu- og alþjóðamál, stríðið í Úkraínu, loftslagsmál, jafnréttismál og málefni hinsegin fólks.

Að loknum fundinum ræddu Katrín og Bettel við blaðamenn en í sameiginlegri tilkynningu lýsa þau yfir vilja til að efla samskipti ríkjanna. Ísland og Lúxemborg eigi sér sögu um langt og farsælt samstarf enda byggi löndin bæði á gildum lýðræðis, mannréttinda og réttarríkisins. 

Forsætisráðherra mun á morgun heimsækja EFTA-dómstólinn sem hefur aðsetur í Lúxemborg. Þar mun Páll Hreinsson, forseti dómstólsins, taka á móti henni og kynna starfsemina.

Var efnið hjálplegt?