19. október 2023 /
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Orkuöryggi í brennidepli í norrænu samstarfi

F.v. Petteri Kuuva f.h Finnlands, Karen Ellemann framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar,  Stefan Fransman f.h. Álandseyja, Ebba Busch orkuráðherra Svíþjóðar, Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Louise Schack Elholm ráðherra norræns samstarfs fh. Danmerkur, Terje Asland orkuráðherra Noregs,  Kalistat Lund orkuráðherra Grænlands, Kári Mortensen fh. Færeyja.
Sigurjón Ragnarsson
F.v. Petteri Kuuva f.h Finnlands, Karen Ellemann framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, Stefan Fransman f.h. Álandseyja, Ebba Busch orkuráðherra Svíþjóðar, Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Louise Schack Elholm ráðherra norræns samstarfs fh. Danmerkur, Terje Asland orkuráðherra Noregs, Kalistat Lund orkuráðherra Grænlands, Kári Mortensen fh. Færeyja.

Orkumálaráðherrar Norðurlandanna funduðu í Reykjavík í gær til að ræða áskoranir og lausnir í orkumálum, en Ísland fer með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni í gær. Í lok fundar gáfu ráðherrarnir út nýja yfirlýsingu um norrænt samstarf á sviði orkumála og áherslur  ráðherranefndarinnar í málaflokknum fram til ársins 2030. Eitt meginmarkmið samstarfsins er  að Norðurlöndin verði sjálfbærasta svæði heims.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: Breytt heimsmynd á tímum ófriðar og loftslagsbreytinga hefur varpað nýju ljósi á orkuöryggi og þýðingu þess fyrir þjóðaröryggi. Orkumál eru þjóðaröryggismál.  Ein mesta áskorunin sem Ísland stendur frammi fyrir í dag er að tryggja áfram á næstu áratugum nægt framboð endurnýjanlegrar orku á hagstæðu verði fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu. Norðurlöndin standa frammi fyrir sömu áskorunum og við munum vinna saman á mörgum sviðum til að auðvelda okkur verkefnið. Forsenda þess að Norðurlöndin nái metnaðarfullum loftslagsmarkmiðum sínum og markmiði um orkuskipti er aukin framleiðsla grænnar orku. Með áframhaldandi samvinnu eru Norðurlöndin í aðstöðu til að vera leiðandi á svið nýrrar orkutækni og nýsköpunar á sviði orku- og loftslagsmála. Norðurlönd eiga mjög mikil tækifæri á sviði grænnar orkuöflunar, kolefnisföngunar og framleiðslu rafeldsneytis.“

Orkuöryggi og græn orkuskipti

Í yfirlýsingu ráðherranna kemur fram að sú breytta heimsmynd sem Norðurlöndin standa frammi fyrir í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu ásamt veðurbreytingum vegna loftslagsáhrifa hafi varpað skýru ljósi á mikilvægi orkuöryggis. Við þessar erfiðu aðstæður hafi norræn samvinna enn á ný sannað gildi sitt. 

Vilja ráðherrarnir leggja áherslu á aukið samstarf á sviði þróunar grænnar orku, m.a. sólarorku, vindorku og jarðhita. Þá telja þeir ekki síður mikilvægt að Norðurlöndin vinni saman að þróun vetnis, ammoníaks og rafeldsneytis, en ný tækni á þessu sviði geti greitt fyrir orkuskiptum í geirum sem erfitt er að rafvæða, líkt og í siglingum og flugi.

Saman hafi Norðurlöndin mikinn slagkraft á sviði og vísinda og tækni og geti orðið leiðandi í þróun nýrrar tækni á þessum sviðum með tilheyrandi bættu orkuöryggi.

Um norrænu ráðherranefndina og formennsku Íslands

Norræna ráðherranefndin er opinber samstarfsvettvangur norrænu ríkisstjórnanna, með áherslu á málefnasvið þar sem samlegðaráhrif Norðurlandanna eru talin hvað mest. Ísland fer með formennsku í nefndinni árið 2023 og leiðir samstarfið undir yfirskriftinni „Norðurlönd – afl til friðar“.



Var efnið hjálplegt?