24. janúar 2025 /
Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisráðherra fundar með heilbrigðisráðherra Póllands

Izabela Leszczyna og Alma D. Möller, heilbrigðisráðherrar Póllands og Íslands
Izabela Leszczyna og Alma D. Möller, heilbrigðisráðherrar Póllands og Íslands

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra fundaði í liðinni viku með Izabela Leszczyna heilbrigðisráðherra Póllands í Varsjá. Fundurinn var haldinn í tengslum við ráðstefnuna „Together for the Health of Europe – Strategic Directions and Actions of the Public Health Sector,“ sem markaði upphaf formennskutímabils Póllands í ráðherraráði Evrópusambandsins. Ísland tekur þátt í samstarfi ESB á sviði heilbrigðismála í gegnum EES-samninginn. Á fundinum lagði Alma D. Möller áherslu á vilja Íslands til að efla samstarf við Evrópusambandið á sviði heilbrigðismála, með sérstakri áherslu á heilbrigðisviðbúnað. Samstarfið veitir Íslandi tækifæri til að tryggja betra aðgengi og afhendingaröryggi lyfja og annars búnaðar í neyðarástandi, styrkja heilbrigðisviðbúnað og auka getu til að takast á við óvænt áföll sem ógnað geta almannaheill.

„Það er lykilatriði að tryggja samhæfingu og skilvirkni í viðbrögðum við heilbrigðisvá. Ísland er reiðubúið að leggja sitt af mörkum í því samstarfi,“ sagði Alma D. Möller á fundinum.

Unnið hefur verið að því á þriðja ár að efla þátttöku Íslands í heilbrigðissamstarfi ESB sem liggur utan EES-samningsins. Þrjár nýjar gerðir sem styrkja neyðarviðbúnað og viðbrögð við lýðheilsuvá þvert á landamæri hafa nú þegar verið teknar upp í samninginn og bíða innleiðingar í íslenska löggjöf. Síðastliðið haust mælti framkvæmdastjórnin með því við ráðherraráð ESB að hefja formlegar viðræður við EES/EFTA-ríkin þrjú; Ísland, Liechtenstein og Noreg, um aukið samstarf í heilbrigðismálum, en þær geta ekki hafist fyrr en ráðherraráðið hefur samþykkt samstarfsumboðið. Vonir standa til að af því verði meðan Pólverjar gegna formennsku í ráðinu. 

Izabela Leszczyna lýsti yfir velvilja gagnvart sjónarmiðum Íslands og benti á að unnið verði að því að hraða viðræðum.

Heilbrigðisráðherra, Alma D. Möller, leggur áherslu á mikilvægi þess að Ísland taki þátt í samræmdum viðbrögðum og samstarfi við aðrar Evrópuþjóðir enda skipti það sköpum til að tryggja öryggi og viðbúnað við heilbrigðisvá.

 

Var efnið hjálplegt?