18. júní 2025 /
Utanríkisráðuneytið

Háskóli unga fólksins heimsótti utanríkisráðuneytið

Nemendur við Háskóla unga fólksins ásamt Martini Eyjólfssyni, ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins, og Aðalsteini Leifssyni aðstoðarmanni utanríkisráðherra.
Nemendur við Háskóla unga fólksins ásamt Martini Eyjólfssyni, ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins, og Aðalsteini Leifssyni aðstoðarmanni utanríkisráðherra.

Utanríkisráðuneytið fékk skemmtilega heimsókn í síðustu viku þegar hópur krakka frá Háskóla unga fólksins kom í ráðuneytið til að fræðast um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um þróun og hvernig íslensk stjórnvöld vinna að þeim. Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri, og Aðalsteinn Leifsson, aðstoðarmaður ráðherra, nýttu tækifærið og heilsuðu upp á krakkana. 

Háskóli unga fólksins er fyrir fróðleiksfúsa og fjöruga krakka á aldrinum 12 -14 ára. Meginmarkmið skólans er að vekja áhuga ungs fólks á námi, vísindum og fræðum og gefa þeim tækifæri til að fræðast um allt milli himins og jarðar.

Á þemadegi hélt Félag Sameinuðu þjóðanna ratleik um heimsmarkmiðin, þar sem nemendur leituðu lausna við heimsmarkmiðunum víða um háskólasvæðið. Undir lok ratleiksins héldu nemendurnir svo í áðurnefnda heimsókn til utanríkisráðuneytisins, þar sem markmiðið var að tengja heimsmarkmiðin við raunverulegt starf íslenskra stjórnvalda á alþjóðavettvangi og gefa innsýn í hvernig Ísland vinnur að heimsmarkmiðunum í gegnum utanríkisstefnu, þróunarsamvinnu, mannréttindamál og samstarf við Sameinuðu þjóðirnar.

Var efnið hjálplegt?