23. október 2025 /
Atvinnuvegaráðuneytið

Guðmundur ráðinn aðstoðarmaður Hönnu Katrínar

Guðmundur Gunnarsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður atvinnuvegaráðherra.
Guðmundur Gunnarsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður atvinnuvegaráðherra.

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur ráðið Guðmund Gunnarsson sem aðstoðarmann. Guðmundur er með BA gráðu í fjölmiðlafræði frá Háskólanum á Akureyri og meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík.

Guðmundur hefur starfað sem framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar en var áður bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og frétta- og dagskrárgerðarmaður hjá Rúv og Fréttablaðinu. Guðmundur var jafnframt oddviti Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi í Alþingiskosningunum 2021.

Guðmundur mun starfa við hlið Stefaníu Sigurðardóttur sem hefur starfað sem aðstoðarmaður ráðherra frá ársbyrjun.

Var efnið hjálplegt?