Niðurstöður könnunar um hagi og framtíðarsýn Grindvíkinga
Niðurstöður könnunar sem forsætisráðuneytið fól Maskínu að gera um hagi og framtíðarsýn Grindvíkinga liggja nú fyrir en þar var meðal annars spurt um álit á endurskoðuðu áhættumati og áform um búsetu í Grindavík.
Markviss skref eru nú stigin í endurreisn Grindavíkur og mikilvægt að viðhorf Grindvíkinga liggi fyrir í helstu málum. Hægt landris mælist áfram við Svartsengi. Nýtt kvikuhlaup sem gæti endað með eldgosi á Sundhnúkagígaröðinni er áfram líklegasta sviðsmyndin.
Alls segjast tæplega 48% svarenda bera mikið traust til niðurstaðna endurskoðaðs áhættumats, tæp 36% hvorki mikið né lítið traust en rúmlega 16% lítið traust. Tæplega 44% eru jákvæðari gagnvart búsetu í Grindavík vegna endurskoðaðs áhættumats en tæp 10% neikvæðari. Þá telja um 60% svarenda að raunhæft sé að fólk geti búið í Grindavík til lengri tíma miðað við stöðuna í dag en tæp 22% telja það óraunhæft.
Rúmlega 15% svarenda býr í Grindavík í dag en tæplega 29% telja líklegt að þau búi í bænum eftir eitt ár en öryggi og húsnæðisaðstæður hafa mest áhrif á afstöðu fólks til búsetu í bænum. Tæplega 60% svarenda hefur gengið vel að aðlagast samfélaginu sem það býr nú í en rúmlega 14% illa.
Í könnuninni var einnig spurt um líðan fólks en tæpur helmingur telur andlega heilsu sína verri en fyrir rýmingu og tæplega 42% telur líkamlega heilsu sína verri. Tæplega 19% svarenda telur andlega heilsu sína betri en fyrir rýmingu og tæplega 18% telur líkamlega heilsu sína betri.
Könnunin, sem var framkvæmd í fyrri hluta október, var send á þá sem bjuggu í Grindavík þegar bærinn var rýmdur í nóvember 2023. Alls bárust svör frá tæplega 1.200 einstaklingum 18 ára og eldri sem jafngildir rúmlega 42% þátttöku.
Hagir og framtíðarsýn Grindvíkinga – Könnun meðal Grindvíkinga