16. október 2026 /
Dómsmálaráðuneytið
Atvinnuvegaráðuneytið
Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Skrifuðu undir viljayfirlýsingu um þrjú björgunarskip

{image.Description}
Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir, Hanna Katrín Friðriksson, Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir ásamt Kristjáni Þór Harðarsyni, framkvæmdastjóra Landsbjargar, við undirritun í Hörpu í dag.

Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir, formaður Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra og Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, skrifuðu í hádeginu undir viljayfirlýsingu um að halda áfram með þá vinnu að kaupa þrjú björgunarskip til viðbótar við þau tíu sem ráðgert er að verði keypt til ársins 2031. Fjármála-og efnahagsráðuneytið kemur einnig að viljayfirlýsingunni og skrifaði Hanna Katrín undir fyrir hönd Daða Más Kristóferssonar, fjármálaráðherra.

Yfirlýsingin var undirrituð á Björgun, alþjóðlegri björgunarráðstefnu, sem stendur yfir í Hörpu.

„Með þessari viljayfirlýsingu er lagður grunnur að því að klára endurnýjun allra 13 björgunarskipanna sem kallað hefur verið eftir um langa hríð. Þetta er mikilvægt skref og sýnir ríkan vilja okkar í ríkisstjórninni til að standa myndarlega við bakið á björgunarsveitum landsins,“ segir Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra.

Viljayfirlýsingin er gerð með fyrirvara um að frumvarp atvinnuvegaráðherra um breytingu á sérstök gjaldi vegna ólögmæts sjávarafla verði að lögum. Breytingin heimilar Verkefnissjóði sjávarútvegsins að verja fé úr sjóðnum til búnaðarkaupa fyrir viðbragðsaðila leitunar og björgunar á sjó.

Fyrsta björgunarskipið kom til Vestmannaeyja fyrir fjórum árum og hlaut nafnið Þór. Áttunda skipið kom síðast en það er staðsett á Patreksfirði. Níunda skipið er í smíðum og verður í Neskaupstað.

„Björgunarsveitirnar gegna ómetanlegu hlutverki í íslensku samfélagi og við verðum að búa þeim sem bestar aðstæður til að sinna sínum störfum. Með þessari viljayfirlýsingu stígum við mikilvægt skref í átt að öflugri viðbragðsgetu á sjó og auknu öryggi bæði björgunarsveitanna og þeirra sem þurfa á aðstoð að halda,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.