11. nóvember 2026 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Bein útsending: Lykill að samfélaginu - fundur innflytjendaráðs
Morgunverðarfundur innflytjendaráðs, Lykill að samfélaginu, fer fram í dag. Hægt er að fylgjast með fundinum í beinu streymi og hefst útsendingin kl. 8:40 og stendur til 11:00. Á fundinum verður fjallað um málefni sem snerta marga innflytjendur, svo sem íslenskunám, inngildingu og samfélagsfræðslu.
Dagskránni lýkur með því að Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, afhendir styrki úr Þróunarsjóði innflytjendamála.
Dagskrá
Setning
- Tomasz Chrapek, formaður innflytjendaráðs
New in Iceland – aðgengileg og hagnýt samfélagsfræðsla fyrir innflytjendur
- Árni Sveinsson, verkefnastjóri Vinnumálastofnunar í JL-húsinu kynnir nýtt námsefni í samfélagsfræðslu sem ætlað er öllum innflytjendum á Íslandi.
- Námsefnið er einfalt og hagnýtt og ætlað að styðja fólk í að fóta sig í daglegu lífi á Íslandi og auðvelda þátttöku þess í samfélaginu, hvort sem það snýr að vinnumarkaði, menntun, heilbrigðisþjónustu, skólamálum eða samskiptum við opinberar stofnanir.
Íslenskuspor – tengsl í gegnum tungumál
- Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum kynnir niðurstöður verkefnis sem unnið var í samstarfi við Reykjanesbæ og hlaut styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála árið 2025.
Spjallað um orðræðu kærleikans
- Fanny Sanne Sissoko og Martyna Karolina Daniel frá Borgarbókasafni kynna niðurstöður úr verkefnum Borgarbókasafns í þágu innflytjenda og ræða hlutverk bókasafna í inngildingu.
Afhending styrkja úr Þróunarsjóði innflytjendamála 2026
- Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, afhendir styrki úr Þróunarsjóði innflytjendamála.