10. nóvember 2026 /
Dómsmálaráðuneytið

Mælti fyrir heildarendurskoðun í tveimur mikilvægum málaflokkum

{image.Description}

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, mælti á Alþingi í gær fyrir tveimur frumvörpum þar sem ráðist er í tímabæra heildarendurskoðun á mikilvægum málaflokkum. Annað eru ný heildarlög um almannavarnir en hitt snýr að breytingum á dvalarleyfiskafla útlendingalaga.

Skýrar skyldur og ábyrgð

Með dvalarleyfisfrumvarpinu eru reglur færðar nær því sem gildir á hinum Norðurlöndum og skerpt á skilyrðum dvalarleyfa. Með því verða til skýrar, sanngjarnar og fyrirsjáanlegar reglur um dvalarleyfi. Ein mikilvægasta réttarbótin í frumvarpinu er nýtt dvalarleyfi fyrir þolendur alvarlegra brota á vinnumarkaði

„Frumvarpið byggir á þeirri sýn að skýrar skyldur og ábyrgð, bæði af hálfu stjórnvalda og þeirra sem hingað flytja, séu lykilþættir í því að byggja upp samfélag þar sem fólk fær tækifæri til að njóta sín og verða virkir þátttakendur í íslensku samfélagi,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.

Umfang dvalarleyfiskerfisins hefur vaxið mjög hratt síðustu ár. Frá árinu 2017 til 2025 fjölgaði dvalarleyfishöfum utan Evrópska efnahagssvæðisins úr fjögur þúsund í tuttugu þúsund án þess að regluverkið þróaðist í takt við breyttar aðstæður og er frumvarpinu ætlað að bregðast við því.

Öflugri almannavarnir í breyttu öryggisumhverfi

Með frumvarpi að nýjum heildarlögum um almannavarnir er ráðist í viðamikla endurskoðun á lögum sem hafa að mestu staðið óbreytt frá árinu 2008. Á þeim tíma hefur reynt verulega á almannavarnakerfi landsins, meðal annars vegna jarðhræringa og heimsfaraldurs. Samhliða hefur öryggisumhverfið tekið miklum breytingum og nýjar áskoranir, meðal annars vegna fjölþáttaógna, kalla á aukinn viðbúnað.

Frumvarpið var lagt fram á síðasta þingi en náði ekki fram að ganga og er nú lagt fram að nýju með breytingum. Stærsta breytingin er heimild ráðherra til að skipa rannsóknarnefnd almannavarna og þá verður í ákveðnum tilvikum skylt að skipa rannsóknarnefndina. Auk þess hefur verið bætt við ákvæði um heimild ríkislögreglustjóra til nauðsynlegra aðgerða til að varna yfirvofandi tjóni.

Meginmarkmið frumvarpsins er að efla áfallaþol íslensks samfélags og tryggja að stjórnvöld, viðbragðsaðilar og mikilvægir innviðir séu sem best undir það búin að takast á við alvarlega atburði. Lykilatriði er að auka vægi fyrirbyggjandi aðgerða þannig að ekki sé eingöngu horft til viðbragða þegar hættuástand skapast heldur einnig til þess hvernig draga megi úr áhættu og takmarka tjón áður en á reynir.

Þá á frumvarpið að efla grunnskipulag almannavarna með því að skýra ábyrgð, skyldur og verkaskiptingu þeirra sem vinna að almannavörnum. Með því er leitast við að auka samhæfingu og tryggja að ákvarðanataka og viðbrögð verði markvissari þegar vá steðjar að.

 

Var efnið hjálplegt?