13. nóvember 2026 /
Mennta- og barnamálaráðuneytið

Stafræn hæfni orðin lykilþáttur menntunar í Evrópu

{image.Description}

Ný Eurydice-skýrsla um stafræna menntun í evrópskum skólum sýnir að flest menntakerfi hafa sett sér stefnu um notkun stafrænnar tækni í skólastarfi. Innleiðing er þó mislangt komin, stuðningur mismikill og aðgengi nemenda og gæði innviða misjöfn.

Skýrslan ber heitið Digital education at school in Europe 2026: Bridging gaps in access, teaching and learning og kom út í haust. Hún byggir á upplýsingum frá 38 evrópskum menntakerfum og niðurstöðum alþjóðlegu ICILS-rannsóknarinnar frá 2023 og fjallar um skólaárið 2024-2025. Fjallað er um stafræna innviði skóla, jöfnuð og aðgengi, stafræna hæfni nemenda, menntun, starfsþróun og stuðning við kennara hvað varðar stafræna færni og áhrif stafrænnar tækni á skólastarf.

Stafræn hæfni er hluti af námskrá í nær öllum menntakerfunum, oftast bæði kennd þvert á námsgreinar og í sérstökum greinum. Stafræn hæfni er nú hluti af aðalnámskrá á unglingastigi í nær öllum menntakerfunum sem skoðuð voru. Algengast er að hæfnin sé samþætt mörgum námsgreinum en í um þremur af hverjum fjórum menntakerfum er einnig boðið upp á sérstaka námsgrein um stafræna hæfni. Jafnframt sýna gögn skýrslunnar að félags- og efnahagsstaða nemenda tengist bæði stafrænni hæfni og möguleikum þeirra til að læra utan skóla.

Aðgangur að búnaði í kennslustofum er mismikill í þátttökuríkjum, nettengingar ekki alls staðar nægilega stöðugar og víða skortir tæknilegan stuðning. Þá er enn víða skortur á kerfisbundnu mati á því hvort stefna og áætlanir skili sér í betri kennslu og námi.

Samkvæmt skýrslunni stendur Ísland vel hvað varðar nettengingar og aðgengi nemenda að nauðsynlegum tækjum. Ísland er eitt fjögurra menntakerfa sem tryggja stuðning við nettengingar til heimanáms á landsvísu. Lög um grunnskóla tryggja nemendum endurgjaldslausan aðgang að nauðsynlegum námsgögnum og tækjum án endurgjalds. Dregnar eru fram nýjar reglur hérlendis um síma-/snjalltækjanotkun í skólum og í frístundastarfi sem komu til framkvæmdar í vor. Stafræn hæfni á að þróast frá grunnskólaaldri, en skólar ákveða sjálfir í hvaða árgöngum hún er kennd. Sérstök stefna um stafrænt menntakerfi hefur ekki verið sett hérlendis, bent er á dreifða ábyrgð á grunnskólastigi milli ríkis og sveitarfélaga og að miðlæg gæðaviðmið um stafræna menntun á grunnskólastigi höfðu ekki verið samin þegar gagnasöfnun fór fram um miðbik ársins 2025. Þörf er á að setja fram skýr viðmið sem snúa sérstaklega að færni kennara og nýtingu stafrænnar tækni á öllum skólastigum.

Í nóvember 2025 voru gefin út hérlendis gæðaviðmið um innra og ytra mat í framhaldsskólum sem kveða m.a. á um nýtingu stafrænnar tækni í skólastarfi. Sams konar ákvæði eru í gæðaviðmiðum um innra og ytra mat í grunnskólum sem verða brátt kynnt til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda. Þá snúa aðgerðir í þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu fyrir árin 2027–2030 og aðgerðaáætlun um gervigreind fyrir árin 2025–2027 að nýtingu stafrænnar tækni í menntun.

Ísland tók ekki þátt í ICILS-rannsókninni 2023 og því liggja ekki fyrir sambærilegar niðurstöður úr henni um stafræna hæfni íslenskra nemenda, aðstæður í skólum eða notkun kennara á stafrænni tækni.

Var efnið hjálplegt?