Áhrif árása Rússa á úkraínska orkuinnviði og möguleg áhrif á kjarnöryggi
Geislavarna- og kjarnöryggisstofnanir Evrópu hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem lýst er áhyggjum af vaxandi áhættu sem steðjar að kjarnöryggi vegna árása Rússlands á orkuinnviði Úkraínu.
Geislavarnir ríkisins hafa fylgst náið með stöðu mála í Úkraínu frá upphafi stríðs og munu halda því áfram í góðri samvinnu við erlenda samstarfsaðila. Stofnunin sér um vöktun á geislavirkum efnum í umhverfinu á Íslandi og starfrækir umfangsmikinn mælibúnað í tengslum við viðbúnað.
Það er mat Geislavarna ríkisins að afar ólíklegt sé að losun geislavirkra efna í Úkraínu myndi kalla á sérstakar aðgerðir á Íslandi, svo sem inntöku joðtafla, takmörkun á útiveru eða rýmingu svæða. Ástæðan er sú að vegna fjarlægðar myndi geislamengun frá mögulegu slysi þynnast mjög, þannig að styrkur í andrúmsloftinu yrði lágur ef mengun bærist hingað til lands. Mjög ólíklegt er því að geislaslys í Úkraínu myndi hafa áhrif á heilsu almennings á Íslandi. Ef til áhrifa kæmi er líklegast að þau yrðu efnahagslegs eðlis, meðal annars vegna mögulegra áhrifa á matvælaframleiðslu og landbúnað.