Ísland tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi til stuðnings við kyn- og frjósemisheilbrigði og -réttindi
Norðurlöndin og Suður-Afríka kynntu í dag nýtt langtímasamstarf til að efla kyn- og frjósemisheilbrigði og -réttindi (SRHR). Samstarfið var kynnt á Kaupmannahafnarfundinum (Copenhagen Summit), sem hófst í dag, en fundurinn er haldinn á vegum danskra stjórnvalda og Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmið hans er að efla alþjóðlegan stuðning við jafnrétti kynjanna og réttindi kvenna og stúlkna.
Meginmarkmið nýja samstarfsins er að tryggja aukið fjármagn til málaflokksins og stuðla að uppbyggingu sjálfbærs alþjóðlegs fjármögnunarkerfis. Stefnt er að því að samstarfið þróist í víðtækt alþjóðlegt bandalag þar sem ríkisstjórnir, góðgerðarsjóðir, þróunarfjármögnunarstofnanir, frjáls félagasamtök og einkaaðilar sameinast um að efla stuðning við kyn- og frjósemisheilbrigði og -réttindi.
Samstarfið fellur vel að áherslum Norrænu ráðherranefndarinnar, Pushing for Progress, sem miðar að því að efla alþjóðlegt samstarf og pólitískan stuðning við jafnrétti kynjanna, réttindi kvenna og stúlkna og réttindi hinsegin fólks. Það styður jafnframt við Kaupmannahafnarákall um jafnrétti kynjanna og réttindi kvenna og stúlkna. Samstarfið er sett á laggirnar á tímum vaxandi andstöðu við jafnrétti kynjanna og rétt einstaklinga til að taka sjálfstæðar ákvarðanir um eigin líkama.
Kyn- og frjósemisheilbrigði og -réttindi snúa meðal annars að rétti fólks til að taka upplýstar ákvarðanir um líf sitt og barneignir og aðgengi að nauðsynlegum upplýsingum, menntun og heilbrigðisþjónustu. Þessi réttindi eru grundvallarforsenda jafnréttis kynjanna en sæta nú auknum þrýstingi vegna niðurskurðar á alþjóðlegri fjármögnun. Áhrifin eru sérstaklega mikil fyrir konur, stúlkur og hinsegin fólk.
Þátttökuríkin leggja áherslu á að tryggt aðgengi að kyn- og frjósemisheilbrigði og -réttindum sé ekki aðeins mikilvægt réttlætismál heldur einnig skynsamleg fjárfesting. Fjárfestingar á þessu sviði geta skilað verulegum samfélagslegum og efnahagslegum ávinningi og stuðlað að bættri heilsu og auknum lífsgæðum fólks.
„Það er afar ánægjulegt að Ísland taki þátt í þessu samstarfi, sem fellur vel að áherslum okkar í þróunarsamvinnu og á sviði mannréttinda. Það er brýnt að senda skýr skilaboð um að við ætlum að standa vörð um kyn- og frjósemisheilbrigði og -réttindi og ég bind vonir við að samstarfið stuðli að auknu fjármagni til þessa mikilvæga málaflokks,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.
Nýjar leiðir til fjármögnunar
Með frumkvæðinu árétta Norðurlöndin og Suður-Afríka vilja sinn til að leiða alþjóðlega baráttu fyrir jafnrétti kynjanna, kyn- og frjósemisheilbrigði og -réttindum og jöfnum réttindum hinsegin fólks.
Með hliðsjón af fjárfestingum sínum á árinu 2025 og því að gildistími heimsmarkmiðanna rennur út árið 2030 hafa Norðurlöndin sameiginlegan metnað til að tryggja áfram öfluga, sveigjanlega og fyrirsjáanlega fjármögnun á þessu sviði. Hvert samstarfsland mun leggja sitt af mörkum í samræmi við eigin áherslur og fyrirkomulag fjármögnunar. Jafnframt verður unnið að því að afla nýrra fjármögnunarleiða og efla innlenda fjármögnun í þróunarríkjum.
Stjórnvöld í löndunum munu vinna með góðgerðarsjóðum, frjálsum félagasamtökum og einkaaðilum, þar á meðal Gates Foundation, Children’s Investment Fund Foundation (CIFF) og Laerdal Global Health. Gates Foundation og CIFF hafa skuldbundið sig til að fjárfesta samtals meira en 1,9 milljörðum Bandaríkjadala í kyn- og frjósemisheilbrigði og -réttindi á næstu fimm árum.
Eitt af meginverkefnum samstarfsins verður að kortleggja nýjar leiðir til að virkja aukið fjármagn frá opinberum aðilum, góðgerðarsjóðum og einkageiranum. Markmiðið er að viðhalda og efla heildarfjármögnun á sviði kyn- og frjósemisheilbrigðis og -réttinda.