Nýr vefur Veðurstofu Íslands bætir aðgengi að upplýsingum um veður, náttúruvá og loftslagsbreytingar
Endurnýjaður vefur Veðurstofu Íslands fór í loftið í gær á vefslóðinni vedur.is. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur styrkt endurnýjun vefsins, sem er mikilvægur liður í áframhaldandi þróun stafrænnar þjónustu Veðurstofunnar. Nýja vefnum er ætlað að gera upplýsingar um veður, náttúruvá og loftslagsþjónustu skýrar, aðgengilegar og auðveldar í notkun.
Vefurinn er endurnýjaður í áföngum og eru nú komnar í loftið þær síður sem notendur heimsækja mest, svo sem veðurspár, jarðskjálftagögn og viðvaranir. Þá hefur þeim stöðum sem fá veðurspá fjölgað verulega, auk þess sem nýir möguleikar á kortum auðvelda fólki að skoða aðstæður þar sem það býr, starfar eða hyggst ferðast. Við hönnun vefsins var lögð sérstök áhersla á skýra framsetningu, sýnilegar viðvaranir og notkun í farsímum.
Opnunin er fyrsti áfangi í endurnýjun vefsvæða Veðurstofunnar og á að veita betra aðgengi að langtímahættumati vegna náttúruvár, loftslagsþjónustu og aðlögunar vegna loftslagsbreytinga. Það efni er að finna undir liðnum Þjónusta og rannsóknir og nýtist meðal annars stofnunum og sveitarfélögum við skipulag til lengri tíma.
Samhliða nýjum vef hafa tæknilegir innviðir hans verið endurnýjaðir með ríkar kröfur um rekstraröryggi að leiðarljósi. Slíkt skiptir miklu þegar náttúruvá steðjar að og margir sækja upplýsingar samtímis, sem og með hliðsjón af auknum netárásum á mikilvæga stafræna innviði.