18. nóvember 2026 /
Utanríkisráðuneytið
Sendiráð Íslands í Brussel

Öflugur innri markaður og samkeppnishæf Evrópa efst á baugi á fundi EES-ráðsins

Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs, Sabine Monauni, varaforsætisráðherra og utanríkisráðherra Liechtenstein, Thomas Byrne, Evrópumálaráðherra Írlands, og Maroš Šefčovič, framkvæmdastjóri ESB fyrir utanríkisviðskipti og málefni EES-samningsins.
© Elio Germani 2026
Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs, Sabine Monauni, varaforsætisráðherra og utanríkisráðherra Liechtenstein, Thomas Byrne, Evrópumálaráðherra Írlands, og Maroš Šefčovič, framkvæmdastjóri ESB fyrir utanríkisviðskipti og málefni EES-samningsins.

Mikilvægi öflugs innri markaður, samkeppnishæfrar Evrópu og markvissrar framkvæmdar EES-samningsins voru meðal þess sem kom fram á fundi EES-ráðsins sem fram fór í Brussel í gær. Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisríkisráðuneytisins, sat fundinn fyrir Íslands hönd.

Á fundinum var rætt um aðgerðir til að styrkja innri markaðinn og EES-samstarfið, með það að markmiði að efla samkeppnishæfni og hagvöxt. Áhersla var lögð á mikilvægi þess að bæta framkvæmdina innan EES-samstarfsins. Í því samhengi beindist umræðan sérstaklega að því hvernig megi draga úr svonefndum upptökuhalla, þ.e. löggjöf sem hefur tekið gildi innan Evrópusambandsins (ESB) en bíður upptöku í EES-samninginn. Vaxandi þrýstings hefur gætt frá framkvæmdastjórn ESB og aðildarríkjum um að sömu reglur gildi innan innri markaðar EES á hverjum tíma.

Í máli sínu lagði ráðuneytisstjóri áherslu á að ráðstafanir til að takast á við flóknara umhverfi í utanríkisviðskiptum mættu ekki leiða til þess að til yrðu hindranir milli ESB-ríkjanna og EFTA-ríkjanna á innri markaðnum. Í því sambandi var verndarráðstöfunum á járnblendi mótmælt og því komið á framfæri að mikilvægt væri að tekið yrði tillit til sjónarmiða EFTA-ríkjanna innan EES við endurskoðun þeirra ráðstafana.

Í tengslum við fund EES-ráðsins fór einnig fram pólitískt samráð EFTA-ríkjanna innan EES og ESB þar sem farið var yfir stöðuna á hinu alþjóðapólitíska sviði, einkum í tengslum við allsherjarinnrás Rússlands í Úkraínu, stöðuna í Mið-Austurlöndum og málefni norðurslóða þar sem meðal annars var rætt um norðurslóðastefna ESB sem var uppfærð í október síðastliðnum.

EES-ráðið er pólitískur vettvangur EES-samstarfsins sem kemur saman tvisvar á ári. Í því eiga sæti fulltrúar EFTA-ríkjanna innan EES, það er Íslands, Noregs og Liechtenstein, auk Evrópusambandsins.

Var efnið hjálplegt?