Reglugerðardrög um framfærsluviðmið munu taka breytingum
Í byrjun mánaðar birti dómsmálaráðuneytið í samráðsgátt stjórnvalda drög að reglugerð um framfærslu vegna umsókna um dvalarleyfi og íslenskan ríkisborgararétt. Rúmlega átján hundruð umsagnir bárust.
Fram til þessa hefur Útlendingastofnun birt viðmið á vef sínum sem hefur miðast við grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar Reykjavíkurborgar en nú stendur til að setja reglugerð um viðmið um framfærslu. Reglugerðinni er ætlað að setja raunhæf framfærsluviðmið fyrir þá sem koma frá löndum utan EES og sækja um dvalarleyfi og fyrir þá sem vilja verða íslenskir ríkisborgarar.
Nú þegar umsagnarfresti er lokið tekur við næsti áfangi vinnunnar. Ráðuneytið hefur hafið yfirferð á þeim umsögnum sem bárust og mun nýta þær við áframhaldandi útfærslu reglugerðarinnar. Opinbert samráð er hugsað til að kalla fram ólík sjónarmið og greina möguleg áhrif. Þegar er ljóst að samráðið mun leiða til breytinga á reglugerðardrögunum, en leggja á sérstaka áherslu á að tryggja sanngjarna og skýra framkvæmd.
„Góðar og mikilvægar ábendingar komu fram í samráðinu. Við ætlum að hlusta á þær. Kröfurnar eiga að vera raunhæfar og sanngjarnar en þær eiga líka að taka mið af ólíkum aðstæðum. Við förum vandlega yfir umsagnirnar og gerum þær breytingar sem eru nauðsynlegar áður en endanlegar reglur verða settar,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.