Hærri refsingar fyrir stórfelld brot á höfundalögum samþykkt
Alþingi samþykkti í dag frumvarp menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um hærri refsingar fyrir stórfelld brot á höfundalögum. Frumvarpinu er ætlað að sporna við sjóræningjastarfsemi, þ.e. ólögmætri dreifingu og sölu höfundaréttarvarins efnis á netinu í atvinnuskyni, og styrkja þannig stöðu rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði, einkum innlendra fjölmiðla.
Áætlað er að tekjutap af hugverkastuldi hér á landi vegna ólöglegs streymis og niðurhals á sjónvarpsefni geti numið um 4 milljörðum króna árlega. Frumvarpið er liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda fyrir fjölmiðla, sem var kynnt í desember í fyrra, sem og hluti af aðgerðum á sviði höfunda- og hugverkaréttar.
Hámarksrefsing úr tveimur árum í sex
Með frumvarpinu var hámarksrefsing fyrir stórfelld eða ítrekuð brot gegn höfundalögum hækkuð úr tveggja ára fangelsi í allt að sex ár. Breytingin lýtur ekki að þeim einstaklingum sem kaupa áskrift eða streyma efni heldur er henni ætlað að ná utan um brotastarfsemi þar sem um stórfellda dreifingu höfundaréttarvarins efnis er að ræða.
Engu að síður er talið sérstaklega mikilvægt að auka vitund almennings um að sjónvarpsefni og annað höfundaréttarvarið efni sé almennt ekki ókeypis á netinu og það að sækja eða streyma slíku efni sé ekki án afleiðinga.
Lögreglan fær auknar heimildir
Með samþykkt frumvarpsins verður lögreglu gert mögulegt að nýta rannsóknarúrræði svo sem símahleranir, fjarskiptaeftirlit og alþjóðlegt samstarf við rannsókn alvarlegra brota á höfundalögum. Meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar tók þannig sérstaklega fram í áliti sínu um frumvarpið að nefndin teldi mikilvægt að refsiramminn verði hækkaður í sex ára fangelsi til að gera lögreglu kleift að beita ríkari rannsóknarúrræðum. Jafnframt mun þessi hámarksrefsing leiða til þess að fyrningarfrestur þessara brota verði tíu ár í stað fimm ára áður.
Í þessu samhengi nefnir meiri hlutinn að hámarksrefsing fyrir stórfelld eignaspjöll sé sex ára fangelsi og að rök standi ekki „til þess að refsiramminn sé lægri þegar brot beinist gegn óáþreifanlegum eignarréttindum en þegar það beinist gegn áþreifanlegum eignum. Meiri hlutinn telur því rétt að samræma refsirammann að þessu leyti.“
Þá sé hækkun refsirammans einnig til þess fallin að færa íslenska löggjöf nær því sem gildir á flestum Norðurlöndum og í öðrum Evrópuríkjum, þar sem hámarksrefsing fyrir sambærileg brot er almennt þyngri.
Nánari upplýsingar um frumvarpið má nálgast á vef Alþingis.