26. nóvember 2026 /
Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisþing í dag um geðheilbrigði barna – hefst kl. 8.30

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra flytur opnunarerindi heilbrigðisþings ársins 2026 sem hefst kl. 8.30 á Hótel Hilton, Suðurlandsbraut 2. Þingið er helgað áhrifaþáttum geðheilsu barna, lágþröskuldaþjónustu og nýjungum í geðheilbrigðisþjónustu við börn. Þeir sem ekki eru skráðir á þingið en vilja fylgjast með geta horft á beina útsendingu í streymi.

Í fyrsta hluta þess verða spennandi erindi um nýsköpun í geðheilbrigðisþjónustu við börn, lágþröskuldaþjónustu og umbreytingarverkefni með áherslu á aukna samvinnu þjónustuveitenda þvert á kerfi. Meðal annars verður sagt frá hugrænni atferlismeðferð við kvíðavanda barna sem veitt er með stafrænum hætti og býðst nú gjaldfrjálst í heilsugæslu um allt land og án tilvísunar (Innleiðing FLIKK). Fjallað verður um uppbyggingu aðgengilegrar, faglegrar og hagkvæmrar geðheilbrigðisþjónustu fyrir ungt fólk hjá Berginu Headspace og enn fremur verður kynnt  samvinnuverkefni Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Geðheilsumiðstöðvar barna og skólaþjónusta sveitarfélaga á Suðurlandi sem hefur að markmiði að stytta bið barna eftir meðferð vegna ADHD. Síðast en ekki síst taka höndum saman fjórir fyrirlesarar sem fjalla um ofbeldi gegn börnum sem lýðheilsuáskorunum og samræmd viðbrögð heilbrigðisþjónustunnar við ofbeldi og öðrum áföllum í lífi barna.

Í öðrum hluta verður fjallað um áhrifaþætti og áskoranir geðheilbrigðis barna í nútímanum. Þar má nefna erindi um skjánotkun barna, áhrif algóritma og samfélagsmiðlanotkunar veruleika og líðan þeirra og nýjustu rannsóknir á þessu sviði. Einnig verður fjallað um átraskanir, ábyrgð samfélagsins og hvernig veita megi betri stuðning.

Í þriðja og síðasta hluta þingsins verða tvennar pallborðsumræður. Í því fyrra fjalla sérfræðingar um flókin tengsl áhrifaþátta á líðan barna. Í því síðara koma saman fimm ungmenni til að ræða það sem heitast brennur á ungu fólki í þessu samhengi og koma á framfæri skilaboðum til stjórnvalda og samfélagsins.

Var efnið hjálplegt?