25. nóvember 2026 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Vinnumarkaðsráðherrar Norðurlandanna ræddu um norræna vinnumarkaðslíkanið á tímum breytinga

Norrænu vinnumarkaðsráðherrarnir ásamt framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar.
Norrænu vinnumarkaðsráðherrarnir ásamt framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar.

Hvernig tryggjum við að norræna vinnumarkaðslíkanið standi traustum fótum í framtíðinni? Sú spurning var í brennidepli þegar norrænu vinnumarkaðsráðherrarnir hittust á ráðherrafundi í Kaupmannahöfn í gær. Ráðherrarnir ræddu ásamt aðilum vinnumarkaðarins hvernig Norðurlönd geti viðhaldið vinnumarkaði sem stuðli bæði að hagvexti, öryggi og tækifærum fyrir fólk. Ragnar Þór Ingólfsson, ráðherra vinnumarkaðsmála, sótti fundinn fyrir hönd Íslands.

Norræna vinnumarkaðslíkanið hefur um áratuga skeið átt stóran þátt í því að norrænu ríkin geta sameinað hátt atvinnustig, góð starfsskilyrði og mikla samkeppnishæfni. Líkanið byggist á trausti, samtali og nánu samstarfi atvinnurekenda, launafólks og stjórnvalda. Það hefur hjálpað norrænu ríkjunum í gegnum efnahagskreppur, tæknibreytingar og miklar samfélagsbreytingar.

Til grundvallar fundinum lá sú staðreynd að Norðurlönd standa frammi fyrir nýjum áskorunum. Gervigreind, stafvæðing, græn umskipti og nýtt vinnufyrirkomulag breyta nú þörfum fyrirtækja og þeirri hæfni sem eftirspurn er eftir á vinnumarkaði. Því þarf ekki aðeins að varðveita norræna líkanið heldur sömuleiðis að þróa það áfram.

„Við megum ekki að bregðast við tæknibreytingum með því að veikja réttindi eða ýta fólki út úr samningskerfinu. Við eigum þvert á móti að tryggja að kjarasamningar og samtök aðila vinnumarkaðarins geti tekið utan um nýjan veruleika,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson.

Hlutfall launafólks í stéttarfélögum hefur lækkað annars staðar en hækkað á Íslandi

Ný skýrsla FAOS við Kaupmannahafnarháskóla, sem unnin var fyrir ráðherrafundinn, sýnir að norræna vinnumarkaðslíkanið stendur áfram traustum fótum. Hlutfall starfsfólks sem kjarasamningar ná til er hátt og aðilar vinnumarkaðarins gegna áfram lykilhlutverki á vinnumarkaðinum.

Í skýrslunni er þó einnig bent á áskoranir. Hlutfall launafólks í stéttarfélögum hefur lækkað í Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi undanfarin 30 ár. Á Íslandi hefur það hækkað en haldist stöðugt í Noregi.

Ef færri ganga í stéttarfélög getur það til lengri tíma litið veikt grundvöll kjarasamninga, sem eru ein af meginstoðum líkansins. Stéttarfélagsaðild er sérstaklega lítil meðal ungs fólks og erlends vinnuafls.

Norrænt átak í þágu hæfni framtíðarinnar

Norræna ráðherranefndin hefur hleypt af stokkunum verkefninu Hæfni framtíðarinnar sem einnig var til umræðu á fundinum í gær. Þar leiða saman krafta sína aðilar vinnumarkaðarins, fulltrúar menntakerfisins og stjórnvöld víðs vegar á Norðurlöndum. Markmiðið er að menntun og færni fólks sé í takt við þarfir atvinnulífsins, að fólk hafi tækifæri til að efla færni sína alla starfsævina og það eigi auðveldara með að færa sig milli atvinnugreina og starfa þvert á landamæri. Gert er ráð fyrir að tillögur verkefnisins verði kynntar á formennskuári Noregs 2027.

Í frétt Norrænu ráðherranefndarinnar um fundinn er haft eftir Karen Ellemann, framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar, að Norðurlöndin þurfi að verða enn betri í að nýta styrkleika hvers annars.

„Það þarf að vera auðveldara fyrir fólk að færa sig þangað sem hæfni þess nýtist best,“ segir hún. „Ef okkur tekst að ná betri samsvörun milli þarfa fyrirtækjanna og þess vinnuafls sem er til staðar á Norðurlöndum eflum við bæði hreyfanleika, hagvöxt og norræna vinnumarkaðslíkanið.“

Úr hátíðarsalnum í Ráðhúsi Kaupmannahafnar þar sem fundurinn fór fram.

Var efnið hjálplegt?