5. nóvember 2026 /
Dómsmálaráðuneytið

Dómsmálaráðherra fékk viðbúnaðarbæklinginn Verum viðbúin

{image.Description}

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, fékk í vikunni viðbúnaðarbæklinginn „Verum viðbúin“ sem almannavarnardeild ríkislögreglustjóra gefur út. Runólfur Þórhallsson, sviðsstjóri almannavardeildar, afhenti bæklinginn að loknum ríkisstjórnarfundi. Sambærilegar leiðbeiningar og bæklingar hafa komið út á Norðurlöndum að undanförnu.

Bæklingnum er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um hvernig það getur undirbúið sig fyrir alvarlega atburði eða rof á grunnþjónustu eins og net og rafmagni. Meðal annars er mælt með því að fólk eigi birgðir í allt að þrjá daga og útvarp sem gengur fyrir rafhlöðum. Sérstakur gátlisti er í bæklingnum.

Bæklingurinn er aðgengilegur á vefsíðunni verumvidbuin.is á íslensku, ensku og pólsku og á auðskildu máli og táknmáli og Landsbjörg dreifir honum næstu daga samhliða sölu á Neyðarkallinum.  Bæklingurinn er liður í því að styrkja viðnámsþrótt samfélagsins og auka getu fólks til að takast á við áföll og hamfarir en hann tekur líka mið af breyttri heimsmynd. Á síðustu árum hefur öryggis­umhverfið breyst og spenna í alþjóðasamskiptum og vopnuð átök í Evrópu og víðar geta haft áhrif hérlendis.

„Við búum í öruggu landi með öflugt almannavarnakerfi en daglegt líf okkar er líka háð hlutum sem við tökum oft sem sjálfsögðum. Í bæklingnum er að finna einföld og góð ráð um hvernig við getum undirbúið okkur fyrir óvænta atburði. Þetta þarf ekki að vera flókið og við þurfum ekki að gera allt í einu en það skiptir máli að hugsa fram í tímann,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.

Var efnið hjálplegt?