29. október 2026 /
Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Fjölbreytt erindi á Fjársýsludeginum

{image.Description}
Frá Fjársýsludeginum 2025. Mynd: Fjársýslan

Fjársýsludagurinn, fræðsluviðburður á vegum Fjársýslunnar, fer fram fimmtudaginn 12. nóvember á Hilton Reykjavík. Viðburðurinn er ætlaður forstöðumönnum ríkisaðila og starfsfólki sem starfar við eða kemur að fjármálum, fjárstýringu, innkaupum, mannauðs- og launamálum.

Á dagskrá eru fjölbreytt erindi og málstofur, auk tækifæra til að hittast og miðla reynslu. Hægt er að taka þátt á staðnum eða fylgjast með stjörnumerktum dagskrárliðum í streymi.

Skráning stendur yfir á vef Fjársýslunnar en þar má einnig sjá dagskrá.

Þetta er í áttunda sinn sem Fjársýslan stendur fyrir viðburðinum. Í fyrra var uppselt á viðburðinn en hátt í 500 manns tóku þátt.