28. október 2026 /
Dómsmálaráðuneytið

Ný og metnaðarfull löggæsluáætlun kynnt á morgunverðarfundi

{image.Description}
Dómsmálaráðherra flutti ávarp í upphafi fundar þar sem ný löggæsluáætlun var kynnt.

Ný löggæsluáætlun fyrir árin 2027 til 2031 var kynnt á morgunverðarfundi sem Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, hélt á Hilton Reykjavík í morgun. Áætlunin nefnist „Traust lögregla – Öruggt samfélag”.

Löggæsluáætlunina má lesa hér.

Í áætluninni kemur fram að samfélagið standi frammi fyrir breyttu öryggisumhverfi og fjölbreyttari verkefnum á sviði löggæslu. Alþjóðleg skipulögð brotastarfsemi, aukin umferð um landamæri, netbrot og sífellt flóknari verkefni kalli á markvissa uppbyggingu lögreglu og skýra framtíðarsýn á löggæslu og öryggi. Til að mæta þessari þróun þurfi öfluga lögreglu; fleiri lögreglumenn, skýra verkaskiptingu og öfluga sérhæfingu. Um leið þurfi lögreglan að vera sýnileg og aðgengileg í nærumhverfi fólks.

„Verkefni lögreglu verða sífellt flóknari en í grunninn snýst löggæsla alltaf um það sama: Öryggi fólks í landinu. Við þurfum öfluga lögreglu sem getur tekist á við alvarlega brotastarfsemi en er um leið sýnileg og aðgengileg í nærumhverfi fólks. Þessi áætlun markar skýra leið fram á við,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.

Hægt verður að meta árangur

Stefnunni er skipt í þrjá yfirflokka; traust lögregla, öruggt samfélag og fagleg og framsækin löggæsla. Undir hverjum flokki eru áhersluatriði auk markmiða og mælikvarða, þannig að unnt sé að meta árangur og greina tækifæri til umbóta. Þá eru í stefnunni lagðar til lykilaðgerðir til að styðja við markmið hvers þáttar.

  • Helstu atriði í áætluninni eru:
  • Efla öryggi almennings með markvissri uppbyggingu lögreglu og skýrri framtíðarsýn.
  • Fjölga lögreglumönnum og styrkja mannauð, menntun og þjálfun til að mæta auknum og flóknari verkefnum.
  • Efla getu lögreglu til að takast á við skipulagða brotastarfsemi, alvarleg fjármuna- og efnahagsbrot og fjölþjóðlega glæpastarfsemi.
  • Efla landamæraeftirlit, áhættugreiningar og alþjóðlegt samstarf til að tryggja örugg og skilvirk landamæri.
  • Efla viðbúnaðar- og greiningargetu lögreglu, meðal annars með hliðsjón af þjóðaröryggi, vernd mikilvægra innviða og áfallaþoli samfélagsins.
  • Halda áfram að efla samfélagslöggæslu, auka sýnileika og aðgengi að lögreglu og styrkja tengsl lögreglu við nærsamfélagið.
  • Efla afbrotavarnir og grípa fyrr inn í, með sérstakri áherslu á börn, ungmenni og aðra viðkvæma hópa.
  • Halda áfram markvissri baráttu gegn kynbundnu ofbeldi, mansali og ofbeldi gegn börnum með aukinni vernd þolenda og bættri málsmeðferð.
  • Efla getu lögreglu á sviði netöryggis, netbrota og annarra stafrænna ógna með aukinni sérhæfingu, þekkingu og tæknilegum innviðum.

 

Samráð við helstu stofnanir og samtök

Dómsmálaráðherra skipaði í febrúar á þessu ári stýrihóp sem var falið að marka heildstæða stefnu, skipulag og framtíðarsýn fyrir íslenska lögreglu og greina þróun löggæslumála til lengri tíma.

Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi yfirlögregluþjónn, leiddi vinnu stýrihópsins en aðrir í hópnum voru Birgir Jónasson, Grímur Hergeirsson, Ásgeir Þór Ásgeirsson, Margrét Kristín Pálsdóttir, Rannveig Þórisdóttir og Stefán Sveinsson.  Stýrihópurinn starfaði með öllum lögregluembættum og lögregluráði, ríkissaksóknaraembættinu og embætti héraðssaksóknara. Þá var sjónarmiða leitað hjá félagasamtökum og viðeigandi stofnana.

Grímur og Rannveig kynntu löggæsluáætlunina á morgunverðarfundinum í morgun. Auk þeirra voru með stutt erindi á fundinum þau Ævar Pálmi Pálmason frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, Stefán Sveinsson frá lögreglunni á Suðurnesjum og Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra. Myndir frá viðburðinum sem Kristinn Magnússon tók má sjá hér að neðan.