29. október 2026 /
Utanríkisráðuneytið

Þorgerður Katrín átti fund með utanríkisráðherra Kína

{image.Description}

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti í dag fund með Wang Yi, utanríkisráðherra Kína, í Beijing en hún hefur verið í opinberum erindagjörðum í Kína í þessari viku. Tvíhliða samskipti Íslands og Kína voru efst á baugi, þ.á m. vaxandi viðskipti og tækifæri á sviði jarðhita og grænna orkulausna. Alþjóðamál voru einnig rædd með áherslu á virðingu fyrir alþjóðalögum og mikilvægi alþjóðasamstarfs og var þar innrásarstríð Rússlands í Úkraínu í forgrunni.

„Ég átti gott samtal við kínverska utanríkisráðherrann og tvíhliða samskipti Íslands og Kína standa á traustum grunni. Við ræddum aukið samstarf á sviði orkumála og það eru ýmis tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki og íslenskt hugvit í Kína, einkum þegar horft er til jarðvarma og grænna umskipta. Við ræddum einnig viðskipti með áherslu á fisk en langstærstur hluti útflutnings Íslands til Kína eru sjávarafurðir. Fjölbreytni vöruútflutnings fer þó vaxandi og það er vel. Straumur ferðamanna frá Kína til Íslands heldur einnig áfram að aukast og þess má vænta að sú þróun haldi áfram, m.a. með tilkomu flugs milli Íslands og Kína. Ég vona einnig að Íslendingar nýti tækifærið og heimsæki þetta stórbrotna land sem Kína er,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

„Það var hins vegar líka mikilvægt að nota þetta tækifæri til að ræða alþjóðamál, enda blikur á lofti og brýnt að hvetja kínversk stjórnvöld til að beita sér með jákvæðum hætti. Ég tók til að mynda sérstaklega upp árásarstríð Rússa í Úkraínu og biðlaði til Kínverja að beita áhrifum sínum á rússneska ráðamenn eins og hægt er,“ segir hún enn fremur.

Utanríkisráðherra var heiðursgestur í móttöku í sendiráði Íslands þar sem því var fagnað að 55 ár eru liðin frá því að ríkin tóku upp stjórnmálasamband. Árið 2025 var metár í viðskiptum við Kína en útflutningsverðmæti íslenskra vara til Kína var rúmlega 23 milljarðar, sem er tæplega 19% aukning frá árinu á undan. Vöruinnflutningur frá Kína jókst að sama skapi á milli ára en verðmæti hans var árið 2025 rúmir 166 milljarðar, sem er rúmlega 13% aukning milli ára. Orkusamstarf hefur verið fyrirferðarmikið í samskiptum ríkjanna og þá sérstaklega hvað varðar jarðvarma. Nú hafa nær hundrað sérfræðingar frá Kína lokið námi í Jarðhitaskóla GRÓ auk þess sem skólinn hefur staðið fyrir fjölda námskeiða í Kína. Samstarf fyrirtækjanna Arctic Green Energy og Sinopec hefur verið gott en fyrirtækin hafa í sameiningu byggt upp og reka hitaveitur í fleiri en sjötíu borgum í Kína.