4. nóvember 2026 /
Heilbrigðisráðuneytið

Víðtækara norrænt samstarf um lyfjakaup

{image.Description}

Heilbrigðisráðherrar Norðurlandanna hafa undirritað víðtækari samning um sameiginleg lyfjainnkaup á Norðurlöndum. Sérstök áhersla er lög á sýklalyf og baráttuna gegn sýklalyfjaónæmi. Með samningnum frá frá 3. nóvember 2026 geta svæði í Finnlandi og Svíþjóð tekið þátt í því innkaupasamstarfi sem fyrir er á milli Danmerkur, Íslands og Noregs.

Fyrsta skrefið verður sameiginlegt útboð á sýklalyfjum fyrir sjúkrahús. Markmiðið er að laða að fleiri birgja og bæta aðgengi að mikilvægum sýklalyfjum. Aukið samstarf um lyfjainnkaup er ein af mörgum aðgerðum sem ætlað er að tryggja aðgang að sýklalyfjum á Norðurlöndum og stuðla að ábyrgri notkun sýklalyfja.

Norðurlöndin eru í fararbroddi á heimsvísu í baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi, enda er ónæmi á svæðinu með því minnsta sem gerist í Evrópu. Ábyrg notkun sýklalyfja er mikilvægur þáttur í þeirri vinnu, þar sem þröngvirk sýklalyf eru notuð þegar hægt er.

Framboð þessarar tegundar sýklalyfja er þó takmarkað, þar sem þau eru notuð í tiltölulega litlu magni og hvert norrænu landanna er eitt og sér lítill markaður. Með sameiginlegu útboði skapast stærri og eftirsóknarverðari markaður fyrir birgja sem öll þátttökulöndin njóta góðs af.

Var efnið hjálplegt?