ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en fimm ára.
2. janúar 2007
/
Utanríkisráðuneytið

Útför Geralds R. Ford

Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra mun síðar í dag verða viðstödd útför Geralds R. Ford fyrrverandi forseta Bandaríkjanna í Washington. Að útför lokinni mun ráðherra sækja boð utanríkisráðherra Bandaríkjanna.