ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en fimm ára.
30. október 2013
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Heilbrigðisráðuneytið

Vefsvæði um mótun stefnu í málefnum barnafjölskyldna


Á grundvelli stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um fjölskylduvænt samfélag skipaði Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra verkefnisstjórn sem falið er að móta stefnu í málefnum barnafjölskyldna ásamt aðgerðaáætlun. Opnað hefur verið vefsvæði  þar sem finna má nánari upplýsingar um verkefnið. Þar gefst áhugasömum einnig tækifæri á að koma ábendingum og athugasemdum til verkefnisstjórnar en það má gera með því að senda tölvupóst á netfangið postur@vel.is.