ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en fimm ára.
10. mars 2017
/
Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Frestur til að skila umsögnum vegna eigandastefnu fyrir fjármálafyrirtæki framlengdur

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur framlengt til 20. mars frest til umsagna við drög að uppfærðri eigandastefnu ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki.

Drögin voru birt á vef ráðuneytisins 10. febrúar síðastliðinn. 

Umsagnarfrestur er til og með 20. mars 2017. Umsagnir óskast sendar á postur@fjr.is