Mál nr. 428/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 428/2026
Fimmtudaginn 27. ágúst 2026
A gegn Hafnarfjarðarbæ
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.
Með kæru, dags. 12. júní 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar, dags. 13. maí 2026, um að synja umsókn hennar um félagslegt leiguhúsnæði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi hefur verið á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði hjá Hafnarfjarðarbæ frá 25. janúar 2023. Í október 2025 fór fram endurmat á umsókn kæranda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um félagslegt leiguhúsnæði. Með bréfi fjölskyldu- og barnamálasviðs Hafnarfjarðar, dags. 6. febrúar 2026, var kæranda tilkynnt að endurmatið hefði leitt til breytingar á stigagjöf. Þar sem lágmarksstigafjölda hefði ekki verið náð væri umsókn hennar um félagslegt leiguhúsnæði synjað. Sú ákvörðun var staðfest af fjölskylduráði Hafnarfjarðar 13. maí 2026.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 12. júní 2026. Með bréfi, dags. 15. júní 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Hafnarfjarðarbæjar vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Hafnarfjarðarbæjar barst 29. júní 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar er vísað til bréfs frá félagsráðgjafa sem sent var Hafnarfjarðarbæ. Þar kemur fram að kærandi hafi verið samþykkt á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði þann 25. janúar 2023. Við endurmat hafi kærandi dottið út af biðlista, eða þann 18. febrúar 2026, þar sem hún hafi verið komin með leiguhúsnæði með ótímabundinn leigusamning og því hafi verið talið að húsnæðisaðstaða hennar væri örugg.
Áður en kærandi hafi flutt í núverandi húsnæði hafi hún búið á heimili foreldra sinna ásamt tveimur yngri systkinum. Kærandi sé greind með einhverfu, ADHD og blandaða kvíða- og geðlægðarröskun og mál hennar sé í vinnslu hjá stuðnings- og stoðþjónustuteymi Hafnarfjarðar.
Mál systur kæranda hafi einnig verið til vinnslu hjá stuðnings- og stoðþjónustuteymi og sé nú einnig unnið hjá barnaverndarþjónustu Hafnarfjarðar. Þeim systrum semji mjög illa og hafi atferlisfræðingur á vegum Hafnarfjarðarbæjar verið að vinna með fjölskyldunni á heimilinu. Systurnar hafi beitt hvor aðra ofbeldi sem og aðra fjölskyldumeðlimi.
Að sögn foreldra hafi þau fengið leiðbeiningar frá atferlisfræðingi og málstjóra í stuðnings- og stoðþjónustuteymi um að koma kæranda í sér leiguhúsnæði á meðan hún væri á bið eftir félagslegu húsnæði þar sem mikilvægt hafi þótt að aðskilja systurnar. Engin formleg gögn séu til um þessar leiðbeiningar en leiða megi líkur að því að sú hugmynd hafi verið talin rétt á þeim tíma. Það sé vegna mikils samskiptavanda sem þær systur hafi verið að glíma við og hafi haft áhrif á málavinnsluna. Kærandi leigi 30 fermetra innréttaðan bílskúr í einbýlishúsi. Leigusalar þurfi að hafa aðgang að rýminu og komi reglulega inn þar sem setja þurfi bíl þeirra í hleðslu og taka úr sambandi. Leiðslan sé í gegnum glugga í rýminu sem kærandi leigi þar sem blási inn og rigni. Þá hafi myndast pollar á gólfinu og eldhætta vegna millistykkis sem þar sé fyrir bílinn. Leigusalar komi einnig inn ef kveikja þurfi á heitapotti eða gera annað rafmagnstengt. Þessi aðstaða valdi kæranda vanlíðan, hún upplifi sig ekki örugga og eigi stöðugt von á einhverjum inn til sín. Kærandi hafi því mikið sótt heim til foreldra sinna með tilheyrandi erfiðleikum. Foreldrar séu ósáttir með að hafa fylgt leiðbeiningum fagaðila og fyrir það hafi hún dottið út af biðlista eftir félagslegu húsnæði sem geti veitt henni öryggi til framtíðar.
Kærandi sé með endurhæfingarlífeyri og sinni hlutastarfi í B. Hún greiði 200.000 kr. í leigu á mánuði.
III. Sjónarmið Hafnarfjarðarbæjar
Í greinargerð Hafnarfjarðarbæjar kemur fram að samkvæmt 2. gr. reglna nr. 428/2025 um félagslegt leiguhúsnæði hjá sveitarfélaginu og 1. mgr. 45. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga eiga þeir rétt til að sækja um félagslegt leiguhúsnæði sem ekki séu á annan hátt færir um að sjá fyrir sér sökum félagslegra aðstæðna, þungrar framfærslubyrðar og lágra launa.
Umsækjandi um almennt félagslegt leiguhúsnæði þurfi að uppfylla þau skilyrði sem fram komi í 4. gr. reglna um félagslegt leiguhúsnæði. Við mat á umsóknum sé farið eftir ákveðnu matskerfi sem sé birt á heimasíðu sveitarfélagsins og litið sé til tekna umsækjanda, húsnæðisaðstæðna, félagslegra aðstæðna og búsetu í sveitarfélaginu. Til að vera skráður á biðlista þurfi að lágmarki átta stig, sbr. f. lið 1. mgr. 4. gr. reglna um félagslegt leiguhúsnæði.
Kærandi hafi verið á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði frá 25. janúar 2023. Umsókn kæranda hafi verið endurmetin í október 2025 skv. 15. gr. reglna um félagslegt leiguhúsnæði þar sem fram komi að ef viðhalda eigi gildri umsókn skuli endurnýja hana árlega. Þá fari fram endurmat á aðstæðum og hvort skilyrði 4. gr. reglnanna séu áfram uppfyllt. Endurmat umsóknar geti falið í sér breytingu á stigagjöf og leitt til afturköllunar ákvörðunar um að umsókn sé samþykkt á biðlista. Umsækjanda sé tilkynnt um það skriflega ef endurnýjun leiði til breytinga á stigagjöf. Óskað hafi verið eftir gögnum frá kæranda með tölvupósti, dags. 8. október 2025. Óskað hafi verið eftir nýjasta skattframtali, auk staðgreiðsluyfirlits, sbr. 6. gr. reglna um félagslegt leiguhúsnæði. Þá hafi einnig verið óskað eftir upplýsingum um núverandi húsnæðisaðstæður og félagslegar aðstæður. Umbeðnum upplýsingum hafi verið skilað samdægurs.
Við endurmat á aðstæðum kæranda á grundvelli matsblaðs hafi hún verið metin í öruggu húsnæði en hún hafi þá verið búin að taka íbúð til leigu á almennum markaði að C, þar sem hún hafi fengið almennar og sérstakar húsnæðisbætur. Kærandi fái þar með engin stig fyrir þáttinn húsnæðisaðstæður. Umsækjendur teljist almennt vera í öruggu húsnæði ef þeir hafi tryggt sér húsnæði á almennum leigumarkaði nema að fyrir liggi upplýsingar um yfirvofandi húsnæðismissi eða aðrar aðstæður sem leiði til annarrar niðurstöðu. Kærandi fái eitt stig fyrir að vera í endurhæfingu. Fyrir tekjur fái kærandi þrjú stig en hún sé að fá endurhæfingarlífeyri og tekjur frá D. Stig fyrir tekjur miðist við reglugerð nr. 1342/2020 um ráðstöfun leiguíbúða skv. 37. gr. laga nr. 44/1998 um húsnæðismál, með síðari breytingum. Heildarstigafjöldi kæranda hafi samkvæmt endurmati verið fimm stig og hafi henni í framhaldi verið sent bréf, dags. 6. febrúar 2026, um að umsókn hennar uppfylli ekki lengur skilyrði reglna um félagslegt leiguhúsnæði þar sem lágmarksstigafjöldi sé átta stig skv. f. lið 1. mgr. 4. gr. reglna um félagslegt leiguhúsnæði. Starfsmaður hjá barnaverndarþjónustu Hafnarfjarðar hafi áfrýjað þeirri niðurstöðu fyrir hönd fjölskyldunnar til fjölskylduráðs Hafnarfjarðar með kærubréfi. Starfsmaðurinn sé að vinna mál yngri systur kæranda og hafi þannig aðkomu að málefnum fjölskyldunnar. Í kærubréfinu óski fjölskyldan eftir undanþágu á reglunum með tilliti til aðstæðna en sú íbúð sem kærandi leigi geti vart talist fullnægjandi húsnæði þar sem hún leigi 30 fermetra bílskúr sem hafi verið innréttaður og leigusalar hafi aðgang að rýminu með tilheyrandi óhagræði og óþægindum. Þá hafi fjölskyldunni verið ráðlagt af starfsmönnum sveitarfélagsins, atferlisfræðingi og ráðgjafa í stuðnings- og stoðþjónustuteymi að til að létta á erfiðu ástandi á heimilinu væri það til hagsbóta fyrir fjölskylduna í heild að kærandi myndi fara út af heimilinu og leigja sjálf sitt eigið húsnæði á meðan hún væri á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði.
Fjölskyldu- og barnamálasvið hafi í undantekningartilvikum metið aðstæður á heimili umsækjanda um félagslegt leiguhúsnæði á þann veg að umsækjandi fái tvö stig í húsnæðisaðstæður vegna erfiðra heimilisaðstæðna og þegar húsnæði geti vart talist fullnægjandi búseta. Þrátt fyrir að kærandi fengi tvö stig fyrir óöruggt húsnæði, þar með sjö stig í heildina, myndi það ekki duga til þess að hún næði lágmarksstigafjölda. Þar af leiðandi að þó svo kærandi byggi enn hjá móður sinni og ekki hefði verið farið eftir ráðgjöf starfsmanna hjá sveitarfélaginu væri kærandi ekki að ná lágmarksfjölda. Ráðgjöf þeirra starfsmanna, sem starfi ekki í þjónustu- og úrræðateymi þar sem verkefnastjóri félagslegra húsnæðismála starfi, hafi lotið að því að bregðast við erfiðum aðstæðum innan fjölskyldunnar og að draga úr álagi á heimili hennar. Sú ráðgjöf hafi ekki falið í sér ákvörðun eða bindandi afstöðu um rétt kæranda til áframhaldandi veru á biðlista, enda fari slíkt mat eftir sérstökum reglum um félagslegt leiguhúsnæði og endurmati samkvæmt 15. gr. reglnanna.
Það sem hafi mest áhrif á stöðu kæranda út frá matsblaði og þar með heimild hennar til að vera á biðlista og/eða halda félagslegu leiguhúsnæði, fengi hún úthlutað félagslegu leiguhúsnæði, séu tekjur hennar.
Fjölskylduráð hafi staðfest niðurstöðu fjölskyldu- og barnamálasviðs á fundi sínum þann 12. maí 2026. Við meðferð málsins fyrir fjölskylduráði hafi sérstaklega verið tekin afstaða til þeirrar beiðni að vikið yrði frá reglunum með hliðsjón af sérstökum aðstæðum kæranda. Þrátt fyrir að litið væri svo á að húsnæðisaðstæður kæranda væru ekki góðar og að heimilisaðstæður hafi verið erfiðar hafi það verið mat ráðsins að þær aðstæður breyti ekki þeirri niðurstöðu að kærandi hafi ekki náð lágmarksstigafjölda samkvæmt matskerfi reglnanna. Kæranda hafi verið send bókun fjölskylduráðs með bréfi, dags. 13. maí 2026.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar um að synja umsókn kæranda um félagslegt leiguhúsnæði. Umsókninni var synjað á þeirri forsendu að skilyrði f. liðar 1. mgr. 4. gr. reglna um félagslegt leiguhúsnæði hjá Hafnarfjarðarbæ væri ekki uppfyllt.
Markmið félagsþjónustu á vegum sveitarfélaga er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. laganna skal þess gætt við framkvæmd félagsþjónustunnar að hvetja einstaklinginn til ábyrgðar á sjálfum sér og öðrum, virða sjálfsákvörðunarrétt hans og styrkja hann til sjálfshjálpar. Um leið skulu við framkvæmd félagsþjónustunnar sköpuð skilyrði til að einstaklingurinn geti tekið virkan þátt í samfélaginu á eigin forsendum. Félagsleg þjónusta skuli í heild sinni miða að valdeflingu og miðast við einstaklingsbundnar þarfir og aðstæður. Með félagsþjónustu er átt við þjónustu, aðstoð og ráðgjöf, meðal annars í tengslum við húsnæðismál, sbr. 1. mgr. 2. gr.
Í XII. kafla laga nr. 40/1991 er kveðið á um húsnæðismál. Þar segir í 1. mgr. 45. gr. að sveitarstjórnir skuli, eftir því sem kostur er og þörf er á, tryggja framboð af leiguhúsnæði, félagslegu kaupleiguhúsnæði og/eða félagslegum eignaríbúðum handa þeim fjölskyldum og einstaklingum sem ekki eru á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra launa, þungrar framfærslubyrðar eða annarra félagslegra aðstæðna. Samkvæmt 46. gr. laganna skulu félagsmálanefndir sjá til þess að veita þeim fjölskyldum og einstaklingum, sem ekki eru færir um það sjálfir, úrlausn í húsnæðismálum til að leysa úr bráðum vanda á meðan unnið er að varanlegri lausn.
Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til útfærslu á húsnæðismálum einstaklinga. Í samræmi við það og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri útfærslu að meginstefnu til lagt í hendur hverrar sveitarstjórnar. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, svo fremi það byggi á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.
Í reglum Hafnarfjarðarbæjar um félagslegt leiguhúsnæði er kveðið á um útfærslu á þjónustu sem sveitarfélögum er skylt að veita, sbr. XII. kafla laga nr. 40/1991. Í 2. mgr. 2. gr. reglnanna kemur fram að almennt félagslegt leiguhúsnæði sé ætlað þeim fjölskyldum og einstaklingum sem ekki séu á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum félagslegra aðstæðna, þungrar framfærslubyrðar og lágra launa. Í 4. gr. reglnanna er að finna skilyrði fyrir því að umsókn verði samþykkt á biðlista og þarf umsækjandi að uppfylla öll skilyrði sem fram koma í a. til g. liðum 1. mgr. ákvæðisins.
Samkvæmt f. lið 4. gr. skulu umsóknir metnar samkvæmt ákveðnum matsviðmiðum og reiknuð stig á 14 stiga kvarða. Við lok mats eru reiknuð stig fyrir hvern þátt fyrir sig. Til þess að umsókn verði samþykkt á biðlista skal umsækjandi vera metinn með átta stig eða fleiri. Kærandi var metin til fimm stiga með eftirfarandi hætti.
Í þeim þætti matsins er varðar tekjur umsækjanda fékk kærandi þrjú stig en kærandi fær endurhæfingarlífeyri og tekjur frá D. Samkvæmt fyrirliggjandi matsblaði Hafnarfjarðarbæjar er miðað við að árstekjur einstaklinga séu undir 5.089.951 kr. til þess að fá fimm stig og frá 5.089.952 kr. til 5.885.834 kr. til þess að fá þrjú stig. Kærandi fékk réttilega eitt stig fyrir félagslegar aðstæður, enda eiga aðrir liðir í þeim hluta ekki við um hana. Fyrir húsnæðisaðstæður fékk kærandi ekki neitt stig þar sem hún var metin búa í öruggu húsnæði en hún er með íbúð til leigu á almennum markaði. Jafnvel þótt kærandi hefði fengi tvö stig fyrir húsnæðisaðstæður myndi það ekki duga til þess að hún næði lágmarksstigafjölda. Þá fékk kærandi eitt stig fyrir búsetu í sveitarfélaginu en ekki er unnt að fá fleiri stig fyrir þann þátt.
Þar sem kærandi var einungis metin til fimm stiga uppfyllti hún ekki skilyrði f. liðar 4. reglna Hafnarfjarðarbæjar um félagslegt leiguhúsnæði. Að því virtu og með vísan til framangreinds er það niðurstaða úrskurðarnefndarinnar að staðfesta beri synjun Hafnarfjarðarbæjar á umsókn kæranda um félagslegt leiguhúsnæði.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar, dags. 13. maí 2026, um að synja umsókn A, um félagslegt leiguhúsnæði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir