Stjórnsýslukæra vegna ákvörðunar Matvælastofnunar um vörslusviptingu á sauðfé.
Þriðjudaginn, 22. september 2026, var í atvinnuvegaráðuneytinu
kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:
Stjórnsýslukæra
Með bréfi, dags. 22. júní 2026, bar [X] fram kæru f.h. [Y] (kæranda), bónda á [Z], vegna ákvörðunar Matvælastofnunar frá 2. júní 2026 um að svipta kæranda vörslum alls sauðfjár þann 1. október 2026.
Stjórnsýslukæran er byggð á 1. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og barst innan kærufrests.
Kröfur
Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.
Þess er einnig krafist, sbr. 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, að komi til þess að ráðuneytið hafi ekki kveðið upp endanlegan úrskurð í málinu fyrir 1. október 2026 þá verði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar frestað á meðan kæran er til meðferðar hjá ráðuneytinu.
Málsatvik og málsmeðferð
Gögn málsins bera með sér að athugasemdir Matvælastofnunar varðandi aðbúnað á bæ kæranda hafi snúið bæði að sauðfé og nautgripum. Vörslusvipting sú er mál þetta varðar snýr einungis að sauðfé og því er við yfirferð á málavöxtum einblínt á þá þætti sem varða sauðféð.
Forsaga málsins er að á tímabilinu frá 11. mars 2025 til 22. júlí 2025 voru gerðar fimm skoðunarskýrslur af hálfu Matvælastofnunar vegna eftirlits á bæ kæranda. Samkvæmt skoðunarskýrslu nr. 702 vegna eftirlits þann 11. mars 2025 voru skráð fimm alvarleg frávik varðandi sauðfé og einnig voru fimm alvarleg frávik varðandi sauðfé skráð í skoðunarskýrslu nr. 802 vegna eftirlits þann 27. mars 2025. Þá voru skráð þrjú alvarleg frávik varðandi sauðfé í þremur skoðunarskýrslum þ.e. skoðunarskýrslu nr. 973 vegna eftirlits þann 23. apríl 2025, skoðunarskýrslu nr. 1244 vegna eftirlits þann 1. júlí 2025 og skoðunarskýrslu nr. 1315 vegna eftirlits þann 22. júlí 2025.
Þann 10. nóvember 2025 var framkvæmt eftirlit á bæ kæranda, sbr. skoðunarskýrsla nr. 1948 sem send var kæranda þann 12. nóvember 2025. Samkvæmt skýrslunni var staðan á búinu í þokkalegu lagi en tekið var fram að talsvert vantaði upp á að allt sauðfé væri komið á hús. Í skýrslunni kom fram að þrjú alvarleg frávik varðandi sauðfé hefðu verið lagfærð en til staðar væru tvö alvarleg frávik varðandi mjólkurkýr.
Í skoðunarskýrslu nr. 2689, sem send var kæranda þann 20. febrúar 2026 vegna eftirlits sem framkvæmt var þann 17. febrúar 2026 voru skráð sex alvarleg frávik varðandi sauðfé. Í skýrslunni kom fram að staðan á búinu væri alvarleg og búast mætti við að boðaðar yrðu stjórnvaldsaðgerðir í framhaldinu. Alvarlegu frávikin vörðuðu:
1) Fóðrun og brynningu. Talsvert var um kindur í lélegu fóðurástandi og var féð lítið flokkað eftir fóðurástandi. Þá var vatn frosið hjá sumu af fénu og ekki gerðar ráðstafanir til brynningar.
2) Heilbrigði. Í elsta fénu var haltur gripur með mjög bólginn fót og ekki hafði verið brugðist við því.
3) Þekking, geta og hæfni. Ekki virtist vera áhugi eða geta til að halda féð á viðunandi hátt.
4) Eigið eftirlit. Ekki hafði verið gripið til aðgerða vegna sjúkra/slasaðra gripa og rýrir gripir höfðu ekki fengið viðhlítandi aðbúnað. Auk þess úðaðist vatn yfir féð og tað blotnaði upp.
5) Sérstakar stíur. Fullorðið fé var að einhverju leyti saman við gemlinga. Vanmeta fé var ekki fóðrað sér nema að litlu leyti.
6) Húð og hárafar/ull – rúningur. Rúið fé var haldið við ófullnægjandi aðstæður. Þrátt fyrir umræður síðasta vetur um að ekki væri gott að rýja þroskalitla og rýra gemlinga höfðu þeir verið alrúnir og var sumum þeirra verulega kalt.
Einnig voru skráð fimm frávik varðandi sauðfé sem lutu að gólfi (slysahættu, hálku, bleytu og óhreinindi), umhverfi útihúsa, verklag við þrif, verklag við umbúðir og beit auk aðskilnaðar í geymslu og meðferð fóðurs.
Með bréfi Matvælastofnunar, dags. 23. febrúar 2026, var boðuð vörslusvipting á öllu sauðfé og einnig ungviði í fjósi vegna ítrekaðra alvarlegra frávika. Var vörslusvipting boðuð með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um velferð dýra nr. 55/2013. Í bréfi stofnunarinnar var vísað til skoðunarskýrslu nr. 2689 og tekið fram að samtals væru skráð 21 frávik og þar af væru tólf alvarleg. Flest frávikin vörðuðu brot á lögum nr. 55/2013, um velferð dýra, en einnig væri um að ræða brot á lögum nr. 93/1995, um matvæli. Var kæranda veittur frestur til 1. mars 2026 til að koma að andmælum.
Andmæli kæranda bárust til Matvælastofnunar með bréfi, dags. 1. mars 2026. Í bréfinu var vísað til meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 um að stjórnvald skuli ekki fara strangar í sakirnar en nauðsynlegt er. Auk þess var vísað til rannsóknarreglu 10. gr. sömu laga og kröfu um að mál sé upplýst áður en ákvörðun sé tekin. Þá var farið yfir helstu athugasemdir stofnunarinnar og þeim svarað. Hvað varðar fóðrun og brynningu tilgreindi kærandi að ávallt væri reynt að tryggja fullnægjandi fóðrun og brynningu. Vatnsleiðsla hefði sprungið kvöldið fyrir skoðun og úrbætur hafi verið gerðar degi síðar. Gripum hafi verið gefið vatn þegar leiðslan var komin í lag. Varðandi heilbrigði tók kærandi fram að brugðist hefði verið við athugasemdinni þar sem kindin sem var með bólginn fót hafi verið meðhöndluð með pensilíni og haldið í kró með kindum sem voru undir sérstöku eftirliti þar sem þær voru ekki að fóðrast vel. Kærandi mótmælti athugasemd Matvælastofnunar varðandi þekkingu, getu og hæfni enda hefði hann áratuga reynslu af búfjárhaldi og legði sig fram við að halda búinu í góðu horfi. Ábendingar um skort á þekkingu eða getu væru ómálefnalegar. Kærandi hafi verið einn með umsjá alls búsins þar sem sambýliskona hans hafi verið fjarverandi en um tímabundið ástand hafi verið að ræða og hún væri komin aftur. Varðandi kröfu um sérstakar stíur benti kærandi á að aðstæður á búinu gerðu ráð fyrir að unnt væri að aðgreina fé eftir þörfum en ef um einstaka vanfóðraða gripi væri að ræða væri mikilvægt að bent væri á það. Þá væri búið að flokka betur í hjörðinni. Kærandi tók einnig fram að rúningur væri framkvæmdur í samræmi við almennar venjur og velferð dýra væri höfð í fyrirrúmi. Búið væri að laga vatn sem sprautaðist yfir einhverja gripi og kuldi gripa sem hafi verið rúnir skýrist meira af því að hey sem fengust hafi verið mjög léleg og gemlingar hefðu ekki þroskast eins og von var til.
Þá gerði kærandi kröfu um að Matvælastofnun tilgreindi nákvæmlega hvaða gripir uppfylltu ekki kröfur og rökstutt yrði sérstaklega hvers vegna ekki væri unnt að grípa til vægari úrræða varðandi þá gripi. Í því samhengi yrði að gæta meðalhófs. Ekki væri hægt að réttlæta vörslusviptingu á heilbrigðum gripum vegna ástands einstakra gripa eða almennra athugasemda um umgengni. Gerði kærandi kröfu um að áður en nokkur gripur væri vörslusviptur þá færi fram mat á öllum gripum staðsettum á bænum. Kærandi taldi það brot á meðalhófsreglu að grípa til vörslusviptingar þegar eigandi sýndi vilja til úrbóta og unnið væri að lausn og ekki væri um neyð að ræða. Kærandi gerði einnig athugasemd við holdstigun og mat á fóðurástandi gripa við úttekt Matvælastofnunar. Þá krafðist kærandi þess að Matvælastofnun drægi til baka boðaða vörslusviptingu og gæfi honum raunhæfan frest til að gera úrbætur. Nefndi kærandi að helsta ástæða þess að misbrestur væri á fóðrun nokkurra gripa væri að heyfengur sumarsins 2025 hefði ekki verið nægilega góður, nægt hey væri til staðar á bænum en fóðurgildi þess virtist ekki hafa verið nægilega gott. Búið væri að afla kjarnfóðurs, steinefnastampa og annarra bætiefna í samráði við dýralækna og unnið væri að því að útvega kjarnbetra hey. Óskað var eftir frekari samvinnu við Matvælastofnun til að tryggja velferð dýranna.
Andmælum kæranda var hafnað með bréfi Matvælastofnunar, dags. 5. mars 2026. Hvað varðar sprungna vatnsleiðslu tók stofnunin fram að eftirlitið hafi farið fram seinnipart dags og þá hafi vatn ekki verið komið á og engar ráðstafanir hafi verið gerðar til að vatna kindum né nautgripum. Þá væri sérstaklega tekið fram í 1. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 1066/2014, um velferð sauðfjár og geitfjár, að fé skuli flokkað eftir fóðurástandi og hvað varðar gjafagrindur var bent á ákvæði 4. mgr. 6. gr. sömu reglugerðar. Varðandi heilbrigði dýra þá væri það skýrt brot á reglum um velferð búfjár að ekki hafi verið leitað lækninga fyrr fyrir veik dýr. Hvað varðar athugasemd um þekkingu, getu og hæfni var bent á að þrátt fyrir áratuga reynslu af búfjárhaldi virtist kæranda vera ómögulegt að hafa búskapinn með þeim hætti að hann stæðist lög og reglugerðir sem valdi því að ár eftir ár væru gerðar athugasemdir við hann. Þá var vísað til 10. mgr. 5. gr. reglugerðar um velferð sauðfjár og geitfjár og 2. mgr. 15. gr. sömu reglugerðar varðandi húð og hárafar/ull – rúning. Tiltók stofnunin að það væri ámælisvert að vanur bóndi gerði sér ekki grein fyrir að heygæði væru með þeim hætti að ekki fengist eðlilegur þroski og ullarvöxtur í gemlinga væru þeir heilrúnir. Veturinn 2024-2025 hafi sérstaklega verið rætt við kæranda um þetta atriði, þ.e. að ekki ætti að rýja þroskalitla og rýra gemlinga. Í bréfinu var kæranda tilkynnt um vörslusviptingu á öllu sauðfé á bænum og ungviðið í fjósi vegna ítrekaðra brota á velferð dýranna og átti vörslusviptingin að taka gildi þann 14. mars 2026. Var vörslusviptingin byggð á 1. mgr. 37. gr. laga um velferð dýra nr. 55/2013 og beindist vörslusviptingin að um 400 fjár og 50 nautgripum.
Í bréfi kæranda, dags. 6. mars 2026, var ítrekað að hann teldi boðaða vörslusviptingu ganga allt of langt og ef af umræddum aðgerðum yrði myndu þær baka stofnuninni bótaskyldu. Í bréfinu var lýst þeim aðgerðum sem fyrirhugaðar væru til að bregðast við aðstæðum á bænum en m.a. var tilgreint að búið væri að panta próteinríka fóðurblöndu fyrir sauðfé, kærandi hefði tryggt sér 40 heyrúllur af góðu heyi sem komnar yrðu á bæinn rétt eftir helgina. Þá væri búið að hafa samband við aðila til að holdastiga gripi á bænum og meta þá sem ekki teldust í nægilega góðu fóðurástandi. Þeir gripir sem ekki næðu viðmiðunar holdastigum að mati umræddra aðila yrðu teknir frá og þeim slátrað/fargað. Í bréfinu var boðað að aðgerðunum yrði lokið eigi síðar en 10. mars 2026. Að mati kæranda var talið að ekki væri nein þörf á boðaðri vörslusviptingu þegar framangreind atriði væru komin til framkvæmda. Óskað var eftir frekari samvinnu við Matvælastofnun til að tryggja velferð dýranna og til að tryggja að ekki yrði unnið bótaskylt tjón á hagsmunum kæranda og ekki kæmi til þess að slátra eða selja þyrfti stóran hluta búfjár á bænum.
Með bréfi Matvælastofnunar þann 9. mars 2026 var fallið frá boðaðri vörslusviptingu með vísan til þess að eftirfarandi skilyrði væru uppfyllt: 1) Stofnunin fengi sendar kvittanir fyrir kaupum kæranda á heyrúllum og fóðurblöndu, 2) fulltrúi stofnunarinnar yrði viðstaddur fyrirhugaða holdastigun og 3) lagður yrði fram samningur kæranda, til a.m.k. eins árs, við aðstoðarmann á búinu.
Þann 10. mars 2026 var gerður samningur við aðstoðarmann varðandi vinnu á búi kæranda til eins árs. Í samningnum kemur fram að aðstoðarmaður taki að sér aðstoð við búskap á bæ kæranda í allt að eitt ár og hann skuli koma tvisvar í viku til aðstoðar við ýmis störf við búið.
Þann 11. mars 2026 var farið í eftirlit til kæranda og var tilgangur eftirlitsins einkum að fylgjast með holdastigun sauðfjárins sem kærandi stóð fyrir en einnig var litið eftir flestum atriðum sem áður hafði verið sett út á við eftirlit. Um eftirlitið var gerð skoðunarskýrsla nr. 2869 sem send var kæranda þann 12. mars 2026. Í skýrslunni kom eftirfarandi fram varðandi alvarleg frávik tengd sauðfé:
1) Fóðrun og brynning. Holdastigun á fénu fór fram. Ekki voru allar kindur teknar en allar sem voru líklegar til að vera ekki í nógu góðum holdum. Niðurstaðan var: Afar fáar kindur eru í holdastigi 3, allnokkuð um kindur sem gætu náð 2,5. Slatti af kindum er í 2 og svo voru 24 kindur undir 2 sem voru merktar og gefin fyrirmæli um að yrði lógað. Heildarniðurstaða var að fóðrun fjárins væri heilt yfir ekki nógu góð og þyrfti að bæta.
2) Þekking, geta og hæfni. Ekki var lagt mat á þetta atriði í þetta skiptið.
3) Eigið eftirlit. Ljóst er að aðeins lítill hluti rýrra gripa hefur fengið viðhlítandi aðbúnað.
4) Sérstakar stíur. Vanmetafé var ekki fóðrað sér nema að litlu leyti, bæði rýrt fé og halt.
Einnig voru tilgreind þrjú frávik varðandi sauðfé sem lutu að umhverfi útihúsa, verklag við þrif og verklag við umbúðir og beit. Var frestur til úrbóta til 1. apríl 2026.
Með bréfi Matvælastofnunar, dags. 12. mars 2026, tilkynnti stofnunin að fallið hefði verið frá áður ákveðinni vörslusviptingu með tilliti til þeirra úrbóta sem gerðar höfðu verið. Matvælastofnun setti þó það skilyrði að kærandi myndi ráða til starfa vinnumann sem myndi starfa á bænum þrjá daga í viku og farið var fram á að hann væri þar heila daga en kæmi ekki bara við í stuttan tíma. Úrbætur yrðu teknar út með eftirlitsheimsókn eftir þrjár vikur. Þá gerði Matvælastofnun einnig kröfu um að keypt yrði betra fóður ásamt fóðurbæti og staðfesting á þeim kaupum yrði send stofnuninni ásamt afriti af vinnusamningi.
Þann 14. apríl 2026 var eftirlit framkvæmt á bæ kæranda og var kæranda send skoðunarskýrsla nr. 3174 þann 20. apríl 2026. Í skýrslunni voru gerðar kröfur um úrbætur á 15 skoðunaratriðum og þar af voru sex alvarleg frávik og níu frávik. Alls voru fjögur alvarleg frávik tilgreind varðandi sauðfé og varða þau:
1) Fóðrun og brynningu. Útlitið á fénu hafði almennt heldur skánað þó ekki væri hægt að segja að það væri vel fóðrað. Innan um og saman við væru rýrar kindur (í holdastigi 1,5-2) sem þyrfti að taka frá og fóðra betur. Heildarniðurstaðan var að fóðrun fjárins væri heilt yfir ekki nógu góð og þyrfti að bæta. Sumar gjafagrindur í fjárhúsum voru algjörlega heylausar og aðgangur að heyi takmarkaður.
2) Þekking, geta og hæfni. Ekki virtist vera áhugi eða geta til að halda féð á viðunandi hátt.
3) Eigið eftirlit. Enn sé of mikið að rýrum kindum saman við annað fé sem ættu að vera fóðraðar sér og betur.
4) Sérstakar stíur. Óbreytt staða, þ.e. vanmeta fé var ekki fóðrað sér nema að litlu leyti, bæði rýrt fé og halt.
Auk alvarlegu frávikanna voru tilgreind þrjú frávik varðandi sauðfé sem vörðuðu umhverfi útihúsa, verklag við þrif og verklag við umbúðir og beit. Tekið var fram að frestur til úrbóta væri liðinn.
Með bréfi, dags. 22. apríl 2026, boðaði Matvælastofnun vörslusviptingu á öllu sauðfé á bæ kæranda frá og með 1. október 2026 á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um velferð dýra nr. 55/2013. Í bréfinu var vísað til skoðunarskýrslu stofnunarinnar nr. 3174 og voru alvarlegu frávikin rakin. Þá var vísað til forsögu málsins auk þess tekið fram að Matvælastofnun hefði ekki borist vinnusamningur/verksamningur við vinnumann eða dagbók vinnumanns um störf hans né kvittanir fyrir frekari heykaupum. Var kæranda veitt færi á því að koma að andmælum til 7. maí 2026.
Þann 13. maí 2026 bárust andmæli kæranda ásamt verksamningi til eins árs og vinnuskýrslu vinnumanns en áður höfðu reikningar og kvittanir fyrir greiðslum á heyrúllum og fóðurbæti verið send Matvælastofnun. Í andmælunum tók kærandi fram varðandi fóðrun og brynningu að almennt væri þekkt að sauðfé ætti erfitt með að bæta við sig holdum þegar öll orka og kraftur færi í þroska fóstur auk þess sem ekki væru liðnar nema nokkrar vikur frá því að kærandi keypti betra hey og fóðurbæti. Hvað varðar að gjafagrind hafi verið tóm var tekið fram að hún væri aldrei tóm í lengri tíma eða umfram þann tíma sem það tæki að klára verk á bænum og þar til fyllt væri á grindina á ný. Kærandi mótmælti fullyrðingu um að ekki væri áhugi eða geta hjá kæranda til að halda fé á viðunandi hátt. Mikill vilji væri hjá kæranda að halda sauðfé vel og ítarlega hafi verið farið yfir ástæður þess að vandamál hafi komið upp með fóðrun á bænum. Ef ekki væri vilji til að sinna sauðfénu hefði ekki verið kostað til hundruðum þúsunda síðustu mánuði. Varðandi eigið eftirlit taldi kærandi að skýrslugerð væri hagað með þeim hætti að reynt væri að gera sem mest úr athugasemdum og hafa þær sem flestar svo skoðunarskýrslur líti sem verst út fyrir kæranda. Kærandi hafi flokkað þá gripi sér sem væru rýrir og gripir á bænum fái eins mikið að éta og þeir geti í sig látið af góðu heyi, ásamt fóðurbæti og vatni. Þá var áréttað að gripum sem væri sérstaklega hætt væri haldið sér og þeim gefið sérstaklega.
Einnig var í andmælum kæranda vikið að öðrum frávikum sem tilgreind væru í skoðunarskýrslunni. Að mati kæranda væru athugasemdir í skoðunarskýrslunni að miklu leyti endurtekningar á sömu athugasemdum sem væru margítrekaðar. Raunverulegur fjöldi og alvarleiki frávika væri ekki þess eðlis að réttlæta íþyngjandi vörslusviptingu. Taldi kærandi að ekkert í framkomnu eftirliti réttlætti svo viðamikið inngrip í búrekstur hans og að dýravelferðarsjónarmið eða matvælaöryggissjónarmið réttlættu ekki heldur slíkt inngrip. Þá taldi kærandi að „fyrirsjáanlegar vanefndir“ eða „hugsanleg brot umráðamanns í framtíðinni“ gætu ekki réttlætt að ákvörðun væri tekin að vori 2026 um vörslusviptingu að hausti 2026. Slíkt stæðist ekki meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Óljóst væri hvernig ástand sauðfjár á bæ kæranda yrði þann 1. október 2026. Réttur einstaklinga til að stunda atvinnu væri varinn af 75. gr. stjórnarskrár Íslands og því yrði að sýna fram á ríka almannahagsmuni sem réttlættu slíkt inngrip. Matvælastofnun þyrfti því að sýna fram á að skilyrði laganna væru uppfyllt við töku ákvörðunar um vörslusviptingu, sérstaklega þegar hún væri framtíðarbundin og gæfi svigrúm til úrbóta. Þá gæti Matvælastofnun ekki gert ráð fyrir að sami háttur yrði á með fóðrun búfjár næsta vetur enda hefði kærandi lýst yfir vilja til úrbóta. Þá hefði kærandi lýst yfir áformum um endurbætur á húsakosti og myndi hann halda áfram að vinna að úrbótum. Kærandi sættir sig ekki við boðaða vörslusviptingu sem hann telur ólöglega og í andstöðu við meðalhófsreglu stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 37. gr. laga um velferð dýra nr. 55/2013.
Með bréfi Matvælastofnunar, dags. 2. júní 2026, var farið yfir andmæli kæranda og afstaða tekin til þeirra. Í svörum Matvælastofnunar var m.a. tekið fram hvað varðar fóðrun og brynningu að alltaf eigi að fylla á gjafagrindur um leið og þær tæmast, sbr. 6. gr. reglugerðar nr.1066/2014, um velferð sauðfjár og geitfjár. Þá lægi fyrir að fella hafi þurft kindur á bænum vegna hors og það væri kærandi sem bæri ábyrgð á fénu auk þess að um ítrekuð frávik væri að ræða. Hvað varðar áhuga og getu til að halda fé á viðunandi hátt tók stofnunin fram að það ætti ekki að bitna á skepnunum ef veikindi yrðu og það þyrfti ætíð að sinna dýrum vel og gæta að því að gott fóður væri alltaf fyrir hendi. Eftirlitið hafi verið framkvæmt af reyndum eftirlitsdýralækni og reyndum dýraeftirlitsmanni. Hvað varðar eigið eftirlit tilgreindi Matvælastofnun að það væri alvarlegt að vanmetafé hafi ekki verið tekið frá og það fóðrað sér. Þá hefðu skoðunarmenn fundið þó nokkra holdrýra gripi sem ekki hafi verið teknir frá og fóðraðir sér. Þá vísaði Matvælastofnun til þess að þann 12. mars 2026 hefði verið gerð krafa um að kærandi réði til starfa vinnumann sem starfaði á bænum þrjá daga í viku og var það forsenda þess að fallið yrði frá vörslusviptingu. Í verksamningnum kom fram að vinnumaðurinn mæti aðeins tvisvar í viku á bæinn til starfa og það hafi nokkurn veginn gengið eftir samkvæmt vinnuskýrslu fyrir tímabilið 14. mars til 1. maí 2026. Það væri ekki í samræmi við kröfur stofnunarinnar og var því gerð athugasemd við það. Matvælastofnun hafnaði andmælum kæranda og tók ákvörðun um að svipta kæranda vörslum alls sauðfjár frá 1. október 2026, hefði hann ekki sjálfur áður komið því frá sér. Byggir vörslusviptingin á 1. mgr. 37. gr. laga um velferð dýra nr. 55/2013. Þar sem vörslusvipting kæmi ekki til framkvæmda fyrr en eftir fjóra mánuði þyrfti hugsanlega ekki að grípa til aðgerða ef kærandi losaði sig sjálfur við sauðféð. Tiltekið var í bréfinu að tveggja sólarhringa frestur, skv. 1. mgr. 37. gr. laga um velferð dýra nr. 55/2013, hæfist ekki fyrr en 1. október 2026 og þá reyndi fyrst á andmælarétt varðandi ráðstöfun gripanna og eins hvort kærandi ætli að leggja fram tryggingu vegna málshöfðunar gagnvart Matvælastofnun.
Með tölvupósti, dags. 23. júní 2026, kærði kærandi ákvörðun Matvælastofnunar, dags. 2. júní 2026, um varanlega vörslusviptingu alls sauðfjár á bæ kæranda til ráðuneytisins. Með bréfi Matvælastofnunar til kæranda, dags. 8. september 2026, áréttaði stofnunin ákvörðun hennar frá 2. júní 2026 varðandi vörslusviptingu á sauðfé kæranda sem tæki gildi þann 1. október 2026 ef kærandi hefði ekki sjálfur komið því frá sér.
Málsmeðferð ráðuneytisins
Með tölvupósti, dags. 23. júní 2026, sendi kærandi stjórnsýslukæru til ráðuneytisins vegna ákvörðunar Matvælastofnunar, dags. 2. júní 2026, um varanlega vörslusviptingu alls sauðfjár á bæ kæranda. Í erindinu var gerð krafa um að réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar yrði frestað á meðan kæran væri til meðferðar hjá ráðuneytinu, sbr. 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Þann 24. júní 2026 óskaði ráðuneytið eftir umsögn Matvælastofnunar um kæruna auk þess sem vakin var athygli Matvælastofnunar á kröfu kæranda um frestun réttaráhrifa en þar sem hin kærða ákvörðun tæki ekki gildi fyrr en 1. október 2026 gerði ráðuneytið ekki kröfu um að afstaða til frestunar réttaráhrifa bærist áður en umsögn stofnunarinnar væri send ráðuneytinu.
Þann 8. júlí 2026 upplýsti Matvælastofnun um að vinnsla umsagnarinnar hefði tafist vegna anna og sumarleyfa og óskað eftir viðbótarfresti til 16. júlí 2026. Viðbótarfrestur var veittur og barst umsögn Matvælastofnunar ráðuneytinu þann 17. júlí 2026 ásamt fylgigögnum. Í kjölfarið var kæranda veittur frestur til 31. júlí 2026 til andmæla en engin andmæli bárust.
Þann 14. september 2026 óskaði ráðuneytið eftir tilteknum málsgögnum frá Matvælastofnun sem bárust ráðuneytinu samdægurs. Ekki var talin þörf á að bera gögnin undir kæranda þar sem um var að ræða gögn sem send höfðu verið kæranda á fyrri stigum málsins og gögn sem kærandi hafði sent Matvælastofnun.
Málið er tekið til úrskurðar á grundvelli fyrirliggjandi gagna.
Sjónarmið kæranda
Kærandi byggir á því að vörslusvipting búfjár skv. 1. mgr. 37. gr. laga nr. 55/2013, um velferð dýra, sé einhver afdrifaríkasta stjórnvaldsákvörðun sem tekin verður gagnvart bónda, þar sem hún skerði grundvallarréttindi hans til lífsviðurværis og atvinnufrelsis. Í því samhengi verði að horfa til meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og fara ekki strangar í sakirnar en nauðsyn ber til. Ákvörðun um vörslusviptingu megi því aðeins taka þegar sýnt er fram á að vægari úrræði hafi verið fullreynd án árangurs eða dugi ekki til að tryggja lögvarða hagsmuni.
Hin kærða ákvörðun beri með sér að verið sé að vörslusvipta kæranda „fyrirfram“ á grundvelli hugsanlegs ástands á komandi hausti, án þess að raunverulegt ástand dýranna á þeim tímapunkti liggi fyrir. Slík fyrirbyggjandi ákvörðun, sem byggi á óvissum framtíðarspám en ekki sönnuðum og nýjustu málsatvikum brjóti gegn 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Rökstuðningi Matvælastofnunar, um að ekkert hefði verið því til fyrirstöðu að vörslusvipta kæranda strax í byrjun júní en frestunin til 1. október 2026 sé til „hagræðingar“, er mótmælt harðlega þar sem hann lýsi skorti á ítarlegum rökstuðningi og efnislegu mati á núverandi ástandi dýranna, sem brjóti gegn rökstuðningsskyldu 22. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Engar forsendur hafi verið fyrir hendi þann 2. júní 2026 þegar ákvörðun um vörslusviptingu var tekin til að fullyrða að ástand sauðfjár kæranda væri óásættanlegt. Í byrjun júní hafi fé kæranda verið á leið í sumarhaga þar sem það líði engan skort og því fé sem ekki var talið í ásættanlegu ástandi hafði verið fargað að kröfu Matvælastofnunar, í kjölfar holdastigunar þann 11. mars 2026. Það að grípa til vörslusviptingar sem byggð sé á matskenndum getgátum um að búfjárhaldið muni ganga illa næsta vetur, bresti lögmætan grundvöll samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga nr. 55/2013 þar sem ákvörðun um vörslusviptingu verði aðeins tekin ef umráðamaður dýra sýni af sér raunverulegt og yfirstandandi tómlæti við að sinna fyrirmælum en slíkt eigi ekki við í málinu.
Kærandi telur að fullt svigrúm hafi verið fyrir Matvælastofnun að setja fram ákveðnar kröfur um aðbúnað og fóðrun sem þyrftu að vera til staðar fyrir veturinn, fylgja þeim eftir og meta stöðuna að nýju í lok sumars eða í september, fremur en að taka endanlega ákvörðun í júní um sviptingu að hausti. Mat stofnunarinnar verði ávallt að vera faglegt og byggt á málefnalegum og lögmætum sjónarmiðum.
Kærandi mótmælir að ekki hafi verið farið að skilyrðum stofnunarinnar frá 9. mars 2026 um ráðningu aðstoðarmanns og að verksamningur hafi ekki borist og vísar til þess að kærandi hafi framvísað undirrituðum verktakasamningi og vinnuskýrslu með andmælum sínum þann 13. maí 2026. Þá bendir kærandi á að einhliða þrenging eða viðbót við áður sett skilyrði fari í bága við réttmætar væntingar. Stjórnvaldi sé óheimilt að breyta leikreglum í miðju ferli með því að bæta einhliða við nýjum íþyngjandi kröfum um tiltekinn fjölda viðverudaga eða nákvæma dagbókarskráningu og vísar kærandi í því samhengi til bréfs Matvælastofnunar dags. 22. apríl 2026. Slíkur mælikvarði sé ómálefnalegur og það sem skipti máli sé raunverulegt vinnuframlag, vinnustundir og velferð dýranna en ekki dagafjöldinn einn og sér.
Þá muni fyrirhuguð vörslusvipting á sauðfé kæranda skerða lífsviðurværi kæranda og stjórnarskrárvarinn rétt hans til atvinnu, sbr. 1. mgr. 75. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands. Skerðing á grundvallarréttindum, eins og atvinnufrelsi bónda, verði að vera reist á ótvíræðum lagagrundvelli. Kærandi hafi ítrekað brugðist við athugasemdum Matvælastofnunar t.d. keypt betra hey, bætiefni og ráðið starfsmann. Þá hafi hann gefið eðlilegar skýringar á vanhöldum á fóðrun gripa. Vörslusvipting gangi lengra en nauðsynlegt sé og hægt sé að tryggja velferð dýranna með því að setja kæranda ákveðna kosti varðandi aðbúnað fyrir haustið og fylgjast áfram með búinu í stað þess að svipta hann atvinnu sinni.
Hvað varðar frestun réttaráhrifa, sbr. 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 vísar kærandi til þess að sérstakar ástæður mæli með því að frestun verði veitt. Komi ákvörðun Matvælastofnunar til framkvæmda þann 1. október 2026, án þess að ráðuneytið hafi lokið efnislegri meðferð málsins, muni kærandi neyðast til að slátra eða selja allt sauðfé, sem muni valda honum óafturkræfu tjóni og gera kæruferlið gagnslaust. Í því samhengi er vísað til þess að dýrin muni dvelja á sumarafrétti fram á haust og kærandi hafi ráðið starfsmann til að aðstoða við búskapinn og því sé engin brýn hætta eða neyðarástand sem mæli gegn frestun réttaráhrifa.
Sjónarmið Matvælastofnunar
Umsögn Matvælastofnunar barst ráðuneytinu þann 17. júlí 2026. Í umsögninni er tekið undir það að ákvörðun um vörslusviptingu sé ein afdrifaríkasta stjórnvaldsákvörðun sem tekin er gagnvart bónda þar sem hún skerðir grundvallarréttindi hans til lífsviðurværis og atvinnufrelsis. Bæti bóndi ekki úr brotum á velferð dýra, sem krafist hafi verið árum saman með litlum árangri, geti komið til þess að Matvælastofnun sem opinber eftirlitsaðili með dýravelferð telji fullreynt að bóndi bæti ekki úr brotum sínum. Að mati stofnunarinnar uppfylli kærandi ekki kröfur 10. gr. laga nr. 55/2013, um velferð dýra, um getu, hæfni og ábyrgð, sbr. einnig 4. gr. reglugerðar nr. 1066/2014, um velferð sauðfjár og geitfjár. Vísar Matvælastofnun til þess að á rétt rúmu ári, eða frá mars 2025 til apríl 2026, liggi fyrir samtals níu skoðunarskýrslur varðandi velferð búfjár á bæ kæranda. Í einu tilviki hafi engin alvarleg frávik verið skráð varðandi sauðfé en í átta tilvikum hafi verið skráð allt frá þremur til sex alvarleg frávik varðandi sauðfé. Þá sé það eftirtektarvert að eftir margítrekaðar kröfur hafi kæranda loksins í nóvember 2025 tekist að koma hlutunum í rétt horf, sbr. eftirlitsskýrslu nr. 1948, en einungis þremur mánuðum síðar hafi allt verið farið í sama farið, sbr. eftirlitsskýrslu nr. 2689. Að mati Matvælastofnunar sýni það að kærandi ráði ekki við að halda sauðfé svo viðunandi sé.
Matvælastofnun tekur undir það sem fram kemur í stjórnsýslukærunni að ákvörðun um vörslusviptingu megi aðeins taka ef sýnt er fram á að vægari úrræði, svo sem áminningar, fyrirmæli og dagsektir, hafi verið fullreynd án árangurs eða dugi sannanlega ekki til að tryggja lögvarða hagsmuni. Bendir stofnunin á að í lögum um velferð dýra nr. 55/2013 sé reyndar hvorki gert ráð fyrir áminningum né fyrirmælum. Í 2. mgr. 36. gr. laganna komi fram að stofnunin geti gert kröfur um úrbætur og það hafi margsinnis verið gert í máli kæranda en með takmörkuðum árangri. Reynt hafi verið að þvinga kæranda til úrbóta með því að leggja á hann dagsektir, sbr. 1. mgr. 36. gr. laganna, án mikils árangurs. Matvælastofnun taldi því að fullreynt væri að tryggja velferð sauðfjár á bæ kæranda með öðru og vægara móti og því væri vörslusvipting nauðsynleg.
Hvað varðar athugasemd kæranda um að vörslusviptingin taki gildi þann 1. október 2026 og að slíkt feli í sér óvissa framtíðarspá auk þess sem ítarlegan rökstuðning skorti og efnislegt mat á núverandi ástandi dýranna, bendir stofnunin á að hafa þurfi sérstöðu sauðfjárbúskapar í huga. Eiginleg umráð yfir sauðfé liggja niðri þegar fé er á fjalli yfir sumartímann, þó vissulega hvíli ákveðnar skyldur á umráðamanni sbr. 2. mgr. 17. gr. reglugerðar nr. 1066/2014, um velferð sauðfjár og geitfjár. Brot kæranda á velferð fjárins hafi orðið þegar féð hafi verið á húsi og stofnunin telur allar líkur á að þau brot endurtaki sig á komandi vetri. Matvælastofnun telur að ekkert hafi verið því til fyrirstöðu að vörslusvipta kæranda öllu sauðfé í byrjun júní 2026 en það sé til mikils hagræðis fyrir kæranda að vörslusviptingin fari fram haustið 2026. Þá getur kærandi komið fénu frá sér og fengið greiðslu fyrir það, annað hvort með því að koma fénu sjálfur í sláturhús eða selja það.
Hvað varðar umfjöllun í stjórnsýslukærunni um „matskenndar getgátur“ um að búfjárhald kæranda muni ganga illa næsta vetur vísar Matvælastofnun til þess að margra ára slæm reynsla opinbers eftirlitsaðila með velferð á sauðfjárbúi kæranda geti ekki talist vera „matskenndar getgátur“. Reynslan hafi sýnt að smátt og smátt halli undan fæti frá því að fé er tekið á hús og staðan endar á því að vera afleit. Matvælastofnun telji ekki rétt að láta reyna á það einu sinni enn.
Þá vísar Matvælastofnun til þess að ekki sé rétt það sem fram komi í stjórnsýslukærunni að stofnunin hafi byggt hina kærðu ákvörðun „að verulegu leyti“ á því að kærandi hafi ekki fylgt skilyrðum stofnunarinnar frá 9. mars 2026 um ráðningu aðstoðarmanns o.fl. því tengt. Vísar stofnunin til þess að í bréfi til kæranda, dags. 2. júní 2026, sé einungis gerð stutt athugasemd við þetta.
Með vísan til framangreinds og þess sem kemur fram í umsögn Matvælastofnunar telur stofnunin að ákvörðun hennar um vörslusviptingu alls sauðfjár kæranda þann 1. október 2026, dags. 2. júní 2026, skuli vera staðfest.
Andmæli kæranda við umsögn Matvælastofnunar
Með tölvupósti 17. júlí 2026, var kæranda veitt færi á því að koma að andmælum við umsögn Matvælastofnunar en engin andmæli bárust.
Forsendur og niðurstöður
Málið varðar ákvörðun Matvælastofnunar, dags. 2. júní 2026, um að svipta kæranda vörslum alls sauðfjár þann 1. október 2026, hafi hann ekki áður sjálfur komið því frá sér, og er ákvörðunin byggð á 1. mgr. 37. gr. laga nr. 55/2013, um velferð dýra.
Samkvæmt 1. gr. laga um velferð dýra nr. 55/2013 er markmið þeirra að stuðla að velferð dýra, þ.e. að þau séu laus við vanlíðan, hungur, þorsta, ótta og þjáningu, meiðsli og sjúkdóma. Í 6. gr. laganna er kveðið á um að skylt sé að fara vel með dýr og að umráðamaður beri ábyrgð á að annast sé um þau í samræmi við lögin. Ákvæðið kveður einnig á um að ill meðferð dýra sé óheimil. Í 10. gr. er tekið fram að hver sá sem hefur dýr í umsjá sinni skuli búa yfir eða afla sér grunnþekkingar á þörfum og umönnun viðkomandi dýrategundar og skal enn fremur búa yfir nægjanlegri getu til að annast dýrið í samræmi við lög þessi. Í 14. gr. laganna er kveðið á um að umráðamenn skuli tryggja að dýr fái góða umönnun svo sem með því að sjá til þess að þörfum þeirra sé sinnt að jafnaði einu sinni á dag, tryggja gæði og magn fóðurs og vatns, vernda þau gegn meiðslum, sjúkdómum, sníkjudýrum eða annarri hættu, sjá til þess að sjúk eða slösuð dýr fái tilhlýðilega læknismeðferð eða séu aflífuð og tryggja að útbúnaður sé til staðar svo unnt sé að annast um þau og meðhöndla á viðunandi hátt. Þá kemur fram í 29. gr. laganna að umráðamaður dýra skuli tryggja að dýrin séu haldin í umhverfi sem samræmist sjónarmiðum um velferð dýra, m.a. hvað varðar öryggi þeirra og heilbrigði, og tekur tillit til bæði sérstakra þarfa dýrsins og séreinkenna tegundarinnar. Umhverfi dýra skal vera þannig, eftir því sem við á, að þau geti athafnað sig, hreyft sig, hvílst, notið útivistar, beitar eða viðhaft annað atferli sem þeim er eðlilegt.
Samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 1066/2014, um velferð sauðfjár og geitfjár, er tilgangur hennar að tryggja velferð og heilbrigði alls sauðfjár og geitfjár með góðri meðferð, umsjá og aðbúnaði. Í 3. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar kemur fram að tryggja skuli velferð allra dýra með því að líta reglulega til með þeim og bæta úr því sem ábótavant er. Í 4. gr. er vikið að getu, hæfni og ábyrgð þeirra sem bera ábyrgð á umönnun sauðfjár. Í 4. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar kemur fram að daglegt eftirlit skuli haft með sauðfé og geitfé á húsi og að sérstakt og tíðara eftirlit skuli haft með nýfæddu, sjúku og slösuðu fé. Þá er í 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar tiltekið að fóður skuli að magni, gæðum og efnainnihaldi fullnægja þörfum fjárins til eðlilegs vaxtar, viðhalds og framleiðslu og á húsi skuli skilja ásetningslömb og gemlinga frá öðru fé. Þá er í 3. og 4. mgr. 6. gr. tekið fram að allt sauðfé og geitfé skuli ávallt hafa nægan aðgang að hreinu og ómenguðu drykkjarvatni og gjafagrindur skuli fylltar jafnóðum og þær tæmast eða þegar ljóst er að féð er að ganga í fóðrið. Þá skuli tryggt að sauðfé og geitfé hafi stöðugan aðgang að góðu fóðri.
Vörslusvipting dýra er íþyngjandi ákvörðun sem er hluti af þvingunarúrræðum sem Matvælastofnun getur gripið til við að framfylgja lögum um velferð dýra og er almennt ekki beitt nema nauðsyn sé til. Stjórnvöldum ber í hvívetna að gæta að almennum málsmeðferðarreglum stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Meðalhófsregla 12. gr. stjórnsýslulaga kveður til dæmis á um að stjórnvald skuli aðeins taka íþyngjandi ákvörðun þegar lögmætu markmiði, sem að er stefnt, verður ekki náð með öðru og vægara móti. Þá er vörslusvipting auk þess inngrip í eignarréttindi umráðamanns dýrs sem eru stjórnarskrárvarin réttindi. Ljóst er að þegar ákvarðanir stjórnvalda varða svo mikilvæga hagsmuni og eru íþyngjandi fyrir hinn almenna borgara, líkt og sú ákvörðun sem þetta mál snýr að, þarf m.a. að gæta að framangreindum sjónarmiðum. Enn fremur þurfa þær ákvarðanir að byggja á viðhlítandi réttarheimildum.
Matvælastofnun byggir vörslusviptingu í máli þessu á 1. mgr. 37. gr. laga um velferð dýra nr. 55/2013. Samkvæmt ákvæðinu er Matvælastofnun heimilt að taka ákvörðun um að svipta umráðamann dýra vörslu þeirra, ef aðilar sinna ekki fyrirmælum innan tilgreinds frests, og sér Matvælastofnun um framkvæmd vörslusviptingar en er jafnframt heimilt að leita aðstoðar lögreglu. Við vörslusviptingu skal Matvælastofnun ákveða hvort dýrin skuli flutt burt eða þeim haldið þar sem þau eru. Þá er Matvælastofnun heimilt að láta aflífa dýr sem stofnunin hefur umráð yfir vegna vörslusviptingar að liðnum tveimur sólarhringum takist hvorki stofnuninni né eiganda að finna viðeigandi aðstæður eða aðbúnað fyrir dýr. Ákvörðun um vörslusviptingu í máli þessu var tekin þann 2. júní 2026 og á að koma til framkvæmda þann 1. október 2026.
Kærandi byggir á því að hin kærða ákvörðun sé ólögmæt og ógildanleg. Málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga og óskráðar meginreglur stjórnsýsluréttarins hafi verið brotnar við meðferð málsins og ákvarðanatöku. Hin kærða ákvörðun hafi brotið í bága við meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og að skylt hafi verið að beita vægari úrræðum áður en til vörslusviptingar kom. Þá sé verið að vörslusvipta kæranda fyrir fram á grundvelli hugsanlegs ástands haustið 2026 án þess að raunverulegt ástand dýranna á þeim tímapunkti liggi fyrir. Slíkt brjóti í bága við rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Þá hafi skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um velferð dýra nr. 55/2013 ekki verið uppfyllt þar sem byggt var á matskenndum getgátum um að búfjárhaldið myndi ganga illa næsta vetur.
Ákvörðun Matvælastofnunar byggir á því að aðstæður og ástand fjár á bæ kæranda hafi verið langvarandi, gerðar hafi verið ítrekaðar athugasemdir ásamt kröfum um úrbætur en kærandi hafi ekki bætt úr öllum skráðum frávikum. Matvælastofnun telji, sem opinber eftirlitsaðili með dýravelferð, fullreynt að kærandi bæti úr brotum á velferð fjárins þótt þess hafi verið krafist til lengri tíma. Kærandi uppfylli ekki kröfur 10. gr. laga nr. 55/2013, um velferð dýra, sbr. einnig 4. gr. reglugerðar nr. 1066/2014, um velferð sauðfjár og geitfjár.
Ráðuneytið getur ekki tekið undir sjónarmið kæranda að ekki hafi verið gætt að meðalhófi skv. 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Fyrir liggur að á tímabilinu frá mars 2025 til apríl 2026 voru gerðar níu skoðunarskýrslur hjá kæranda vegna eftirlits Matvælastofnunar. Í einu tilviki hafi ekki verið skráð nein alvarleg frávik varðandi sauðfé en í hin átta skiptin hafi verið skráð allt frá þremur upp í sex alvarleg frávik varðandi sauðfé. Matvælastofnun hafi því gert ítrekaðar athugasemdir við aðbúnað og ástand sauðfjár á bæ kæranda og eru frávikin heimfærð undir viðeigandi laga og reglugerðarákvæði í skoðunarskýrslunum. Athugasemdir Matvælastofnunar lutu að mörgum þáttum svo sem brynningu og fóðrun, þekkingu, getu og hæfni kæranda, eigin eftirliti kæranda og sérstökum stíum. Af gögnum málsins má sjá að ákvörðun og aðgerðir Matvælastofnunar sem hér eru til umfjöllunar áttu sér langan aðdraganda. Kæranda var ítrekað veittur andmælafrestur og frestur til úrbóta. Með bréfi Matvælastofnunar, dags. 23. febrúar 2026, var boðuð vörslusvipting á öllu sauðfé og ungviði í fjósi með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga nr. 55/2013, um velferð dýra, og var kæranda veittur frestur til að koma að andmælum til 1. mars 2026. Kærandi sendi stofnuninni andmæli þann 1. mars 2026 sem Matvælastofnun hafnaði þann 5. mars 2026. Með bréfi, dags. 6. mars 2026, upplýsti kærandi um úrbætur sem fyrirhugaðar væru til að bregðast við aðstæðum á bænum og með bréfi Matvælastofnunar, dags. 9. mars 2026, var fallið frá boðaðri vörslusviptingu með vísan til tiltekinna skilyrða sem stofnunin setti, sbr. einnig bréf Matvælastofnunar þann 12. mars 2026. Í framhaldi af því var tvívegis farið í eftirlit á bæ kæranda, fyrst þann 11. mars 2026 þegar holdstigun fór fram og svo þann 14. apríl 2026, sbr. skoðunarskýrsla nr. 3174. Samkvæmt skoðunarskýrslu nr. 3174 voru gerðar kröfur um úrbætur á 15 skoðunaratriðum, þar af voru sex alvarleg frávik og níu frávik. Voru fjögur alvarleg frávik sem vörðuðu sauðfé og tekið var fram að frestur til úrbóta væri liðinn. Í framhaldi af þeirri skoðun tilkynnti Matvælastofnun um fyrirhugaða vörslusviptingu á sauðfé kæranda frá 1. október 2026, sbr. bréf dags. 22. apríl 2026. Að mati ráðuneytisins verður því ekki séð að vægari úrræði hafi staðið til boða sem líkleg væru til að tryggja velferð sauðfjárins. Þar sem frávikin lutu að fóðrun, eftirliti og aðbúnaði fjárins almennt, en ekki einungis ástandi einstakra gripa, verður jafnframt ekki séð að vörslusvipting hluta fjárins hefði nægt.
Að mati ráðuneytisins er ljóst að ástand á bæ kæranda braut gegn lögum um velferð dýra sem og reglugerð um velferð sauðfjár og geitfjár og aðbúnaður á bænum hefði lengi verið ábótavant. Í því samhengi vísast til þess að Matvælastofnun hefur ítrekað gert athugasemdir við búrekstur kæranda. Í 6. gr. laga um velferð dýra nr. 55/2013 kemur fram að skylt sé að fara vel með dýr og ber umráðamaður ábyrgð á að annast sé um þau í samræmi við lög. Ráðuneytið telur ljóst að kærandi hafi ekki sýnt fram á nægjanlega getu og hæfni til að annast sauðfé í samræmi við lög um velferð dýra, en í 10. gr. laganna er kveðið á um að hver sá sem hefur dýr í umsjá sinni skuli búa yfir eða afla sér grunnþekkingar á þörfum og umönnun viðkomandi dýrategundar og skal enn fremur búa yfir nægjanlegri getu til að annast dýrið í samræmi við lögin. Matvælastofnun hefur ítrekað gert athugasemdir við eigið eftirlit á bæ kæranda og gert m.a. kröfur um verklag á þrifum, á umhverfi útihúsa og verklag við umbúðir og beit. Þá vísast einnig til 14. gr. laganna en ljóst er að kærandi hefur brotið gegn 10. gr. og 14. gr. laganna þar sem hann gerði ekki fullnægjandi úrbætur á aðbúnaði sauðfjárins í samræmi við athugasemdir Matvælastofnunar og til samræmis við kröfur laga nr. 55/2013, um velferð dýra, og reglugerðar um velferð sauðfjár og geitfjár nr. 1066/2014. Ráðuneytið telur einnig ljóst að um sé að ræða brot á 29. gr. laga um velferð dýra sem kveður á um aðbúnað dýra og í því samhengi er vísað til ítrekaðra athugasemda Matvælastofnunar hvað þetta varðar. Kæranda hafi ítrekað verið veittur frestur til úrbóta auk þess sem áður hefur verið fallið frá fyrirhugaðri vörslusviptingu í mars 2026 til að reyna að koma til móts við kæranda varðandi úrbætur.
Samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga nr. 55/2013 er það skilyrði vörslusviptingar að umráðamaður dýra hafi ekki sinnt fyrirmælum innan tilgreinds frests. Í skoðunarskýrslu nr. 2869, sem send var kæranda þann 12. mars 2026, voru gerðar kröfur um úrbætur á alvarlegum frávikum varðandi sauðfé, m.a. hvað varðar fóðrun, eigið eftirlit og sérstakar stíur fyrir vanmeta fé, og var kæranda veittur frestur til úrbóta til 1. apríl 2026. Við eftirlit Matvælastofnunar 14. apríl 2026, sbr. skoðunarskýrsla nr. 3174, hafði ekki verið bætt úr þessum atriðum og voru sömu alvarlegu frávik skráð á ný. Að mati ráðuneytisins liggur því fyrir að kærandi sinnti ekki fyrirmælum Matvælastofnunar innan tilgreinds frests í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna.
Ráðuneytið tekur ekki undir athugasemdir kæranda um að verið sé að vörslusvipta kæranda fyrir fram á grundvelli hugsanlegs ástands sauðfjár haustið 2026 án þess að raunverulegt ástand dýranna liggi fyrir. Þann 2. júní 2026 tók Matvælastofnun ákvörðun um vörslusviptingu sauðfjár kæranda sem kæmi til framkvæmda þann 1. október 2026. Byggði sú ákvörðun á þeim upplýsingum og gögnum sem lágu fyrir á þeim tíma. Við mat á lögmæti stjórnvaldsákvörðunarinnar ber að líta til þeirra atvika sem lágu fyrir þegar hún var tekin. Eins og rakið hefur verið voru skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga nr. 55/2013 uppfyllt þegar hin kærða ákvörðun var tekin og hefði Matvælastofnun því verið heimilt að láta vörslusviptinguna koma til framkvæmda þegar í stað. Þá liggur fyrir að frávikin hafa einkum komið fram á þeim tíma sem féð er á húsi og að ástandið hafði, eftir að úrbætur höfðu verið gerðar í nóvember 2025, farið í sama farið í febrúar 2026. Ákvörðunin byggir því ekki á getgátum um framtíðarástand heldur á langavarandi og ítrekuðum brotum sem staðfest eru í skoðunarskýrslum stofnunarinnar. Telja verður að ef vörslusviptingin hefði komið til framkvæmda í júní 2026 hefði það leitt til meira tjóns fyrir kæranda en ef vörslusviptingin færi fram að hausti. Það að vörslusvipting komi til framkvæmda 1. október 2026 felur í sér að kærandi getur sjálfur ráðstafað því fé sem kemur af fjalli t.d. með að koma því í sláturhús eða selja það. Sú framkvæmd felur í sér minna fjárhagslegt tjón fyrir kæranda og er til samræmis við meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 um að stjórnvöld skuli ekki fara strangar í sakirnar en nauðsyn ber til. Þá verður ekki séð að rökstuðningi hinnar kærðu ákvörðunar hafi verið áfátt, sbr. 22. gr. stjórnsýslulaga, en í bréfi Matvælastofnunar, dags. 2. júní 2026, var tekin afstaða til andmæla kæranda og vísað til þeirra lagaákvæða sem ákvörðunin byggði á.
Kærandi tiltekur í kæru sinni að Matvælastofnun byggi hina kærðu ákvörðun að verulegu leyti á því að kærandi hafi ekki fylgt skilyrðum stofnunarinnar frá 9. mars 2026 og að Matvælastofnun hafi einhliða breytt skilyrðum hennar, sbr. bréf 22. apríl 2026. Í bréfi Matvælastofnunar, dags. 9. mars 2026, er fallið frá fyrirhugaðri vörslusviptingu að uppfylltum tilteknum skilyrðum og er þar m.a. tiltekið að lagður skuli fram samningur til a.m.k. eins árs við aðstoðarmann á búinu. Í bréfi Matvælastofnunar, dags. 12. mars 2026, er kæranda tilkynnt um að fallið sé frá áður ákveðinni hlutavörslusviptingu búfjár á bæ kæranda með skilyrðum en umrætt bréf er ítarlegra en bréf stofnunarinnar þann 9. mars 2026 og vísar til skoðunarskýrslu nr. 2869. Tiltekið er í bréfinu að enn séu skráð samtals fjórtán frávik, þar af sjö alvarleg og varða fjögur alvarlegu frávikin sauðfé. Í niðurlagi bréfsins er tekið fram að það skilyrði sé sett að kærandi ráði til starfa á bænum vinnumann sem starfi á bænum þrjá daga í viku og farið er fram á að hann verði þarna heila daga en komi ekki bara við í stuttan tíma. Einnig segir að úrbætur verði teknar út með eftirlitsheimsókn eftir þrjár vikur. Kæranda mátti því vera fullljóst hver krafa Matvælastofnunar væri varðandi vinnu vinnumanns á bænum og ekki er unnt að fallast á það með kæranda að Matvælastofnun hafi einhliða breytt skilyrðum stofnunarinnar með bréfi, dags. 22. apríl 2026. Auk þess verður ekki séð að Matvælastofnun hafi byggt hina kærðu ákvörðun að verulegu leyti á þessu atriði heldur á ástandi fjárins og ítrekuðum frávikum, sbr. einnig umsögn stofnunarinnar, og hefur það því ekki úrslitaáhrif við úrlausn málsins.
Hvað varðar þau sjónarmið kæranda að ákvörðun Matvælastofnunar skerði lífsviðurværi kæranda og stjórnarskrárvarinn rétt hans til atvinnu þá vísar ráðuneytið til þess að hlutverk Matvælastofnunar samkvæmt lögum um velferð dýra nr. 55/2013 sé fyrst og fremst að tryggja velferð þeirra dýra sem í hlut eiga, sbr. 1. gr. og 1. mgr. 4. gr. laganna. Atvinnufrelsi nýtur verndar 1. mgr. 75. gr. stjórnarskrárinnar en því frelsi má setja skorður með lögum, enda krefjist almannahagsmunir þess. Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 55/2013 er að finna skýra lagaheimild til vörslusviptingar dýra í þágu velferðar þeirra og hefur meðalhófs verið gætt, sbr. framangreint. Kæranda hefur ítrekað verið veitt færi á því að gera fullar úrbætur til samræmis við áskilnað laga og reglugerða sem hann hefur ekki orðið við að öllu leyti.
Kærandi krafðist þess jafnframt að réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar yrði frestað, sbr. 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, kæmi til þess að ráðuneytið hefði ekki kveðið upp endanlegan úrskurð í málinu fyrir 1. október 2026 þegar ákvörðun Matvælastofnunar um vörslusviptingu á sauðfé kæranda kemur til framkvæmdar. Þar sem úrskurður þessi er kveðinn upp fyrir þann tíma kemur sú krafa ekki til álita.
Að öllu framangreindu virtu er það mat ráðuneytisins að skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um velferð dýra nr. 55/2013 hafi verið uppfyllt þegar ákvörðun var tekin um vörslusviptingu á sauðfé kæranda. Staðfestir ráðuneytið ákvörðun Matvælastofnunar, dags. 2. júní 2026 um vörslusviptingu á sauðfé kæranda þann 1. október 2026 á grundvelli 37. gr. laga nr. 55/2013, um velferð dýra.
Úrskurðarorð
Ákvörðun Matvælastofnunar, dags. 2. júní 2026, um vörslusviptingu á sauðfé kæranda þann 1. október 2026 er hér með staðfest.