01. des. 2026Menntamál, Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið
Samræmd próf í vor og niðurstöður einstakra grunnskóla birtar opinberlega – reglugerð til umsagnar í Samráðsgátt
Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir nú til umsagnar drög að reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmds námsmats í grunnskólum. Reglugerðin snýr annars vegar að nýju samræmdu prófunum í íslensku og stærðfræði sem allir nemendur í 4., 6. og 9. bekk grunnskóla gangast undir í fyrsta sinn nú í vor og hins vegar að safni valkvæðra matstækja Matsferils. Samræmda námsmatið, Matsferill, er miðlægt heildstætt safn matstækja í formi staðlaðra stöðu- og framvinduprófa, skimunarprófa og annarra matstækja sem kennarar og skólar geta nýtt sér í kennslu og við mat á stöðu og framvindu hvers barns í námi, jafnt og þétt yfir skólagönguna.