Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Utanríkismál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 951–1000 af 1862
    Raða eftir:
    23. feb. 2022Utanríkisráðuneytið, Loftslagsmál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Aukin framlög til loftslagsaðgerða í þróunarríkjum

    Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að auka framlög til stuðnings loftslagsaðgerðum í þróunarríkjum, í samræmi við lokayfirlýsingu COP26 loftlagsráðstefnunnar í Glasgow. Um er að ræða framlög til fjögurra stofnana og sjóða sem eiga það sammerkt að starfa með fátækustu ríkjum heims í baráttu þeirra við loftslagsvána.

    22. feb. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Varnarmálaráðherrar JEF ræddu stöðuna vegna Úkraínu

    Alvarleg staða í öryggismálum Evrópu var meginefni fundar varnarmálaráðherra Sameiginlegu viðbragðsveitarinnar (Joint Expeditionary Force, JEF) sem fram fór í Bretlandi í dag og í gær.

    17. feb. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Hagsmunir Íslands í EES-samstarfinu í brennidepli á fundum utanríkisráðherra í Brussel

    Samstarf á vettvangi EES, viðskiptamál og pólitískt samráð um alþjóðamál voru meðal umræðuefna á fundum Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra með fulltrúum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í gær og í dag.

    17. feb. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Ástandið í og við Úkraínu efst á baugi varnarmálaráðherrafundar

    Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins komu saman til fundar í Brussel í gær og í dag. Öryggisáskoranir í tengslum við framferði Rússa gagnvart Úkraínu voru þar í brennidepli. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sótti fundinn sem lauk í dag.

    15. feb. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Fastanefnd Íslands hjá NATO, Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Óvissa í öryggismálum í Evrópu aðalumræðuefnið á fundi Þórdísar Kolbrúnar og Stoltenbergs

    Óvissa í öryggis- og varnarmálum Evrópu, framferði Rússlands gagnvart Úkraínu og spenna í samskiptum þess við Vesturlönd voru meðal umræðuefna á fundi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, í Brussel í dag.

    15. feb. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Fastanefnd Íslands hjá NATO, Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Óvissa í öryggismálum í Evrópu aðalumræðuefnið á fundi Þórdísar Kolbrúnar og Stoltenbergs

    Óvissa í öryggis- og varnarmálum Evrópu, framferði Rússlands gagnvart Úkraínu og spenna í samskiptum þess við Vesturlönd voru meðal umræðuefna á fundi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, í Brussel í dag.

    10. feb. 2022Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, WFP, Utanríkismál

    Ræddu alvarlega stöðu í mannúðarmálum

    Ástand mannúðarmála í heiminum og endurnýjun rammasamnings Íslands við Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (World Food Programme, WFP) voru til umfjöllunar á fjarfundi þeirra Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og David Beasley framkvæmdastjóra stofnunarinnar í morgun.

    08. feb. 2022Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Utanríkismál

    Þórdís Kolbrún átti símafund með utanríkisráðherra Sádi-Arabíu

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra ræddi í dag í síma við Faisal Bin Farhan Al Saud utanríkisráðherra Sádi-Arabíu um framboð Sáda til að hýsa heimssýninguna, World Expo, í Ríad árið 2030. Utanríkisráðherra Sádi-Arabíu óskaði eftir samtalinu.

    07. feb. 2022Utanríkisráðuneytið, Covid-19, Þróunarsamvinna, UNICEF, Utanríkismál

    UNICEF fær stuðning til að hraða dreifingu bóluefna í þróunarríkjum

    Utanríkisráðuneytið mun verja 250 milljónum króna til að styðja við starfsemi Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) til að hraða dreifingu og aðgengi að COVID-19 bóluefnum í þróunarríkjum. Ísland hefur tekið virkan þátt í alþjóðlegum aðgerðum til stuðnings baráttu þróunarríkja gegn heimsfaraldrinum og áhrifum hans en auk framlagisins til UNICEF hafa stjórnvöld veitt rúmum milljarði króna til COVAX bóluefnasamstarfsins.

    03. feb. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Þórdís Kolbrún ræddi við utanríkisráðherra Eistlands

    Öryggismál í Evrópu voru meginefni símafundar Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur og Evu-Maríu Liimets utanríkisráðherra Eistlands í dag, en góð samskipti ríkjanna og samstarf á sviði mannréttinda og norðurslóðamála voru einnig til umræðu.

    03. feb. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál, Norrænt samstarf

    Norrænir varnarmálaráðherrar funduðu um Úkraínu

    Staða mála í og við Úkraínu var meginefni fjarfundar varnarmálaráðherra Norðurlandanna sem fram fór í dag á vettvangi norræna varnarsamstarfsins (NORDEFCO). Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tók þátt í fundinum.

    31. jan. 2022Utanríkisráðuneytið, Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífs, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Íslensk fyrirtæki láti til sín taka í þróunarsamvinnu

    Frestur til að sækja um í Heimsmarkmiðasjóð atvinnulífs um þróunarsamvinnu er út 3. febrúar næstkomandi. Sjóðurinn mun verja 200 m.kr. til samstarfsverkefna íslenskra fyrirtækja í þróunarlöndum á þessu ári.

    21. jan. 2022Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Yfirlýsing varnarmálaráðherra Norðurlandanna um stöðuna í og við Úkraínu

    Versnandi staða öryggismála í og við Úkraínu var tilefni fjarfundar varnarmálaráðherra Norðurlandanna sem fram fór í dag á vettvangi norræna varnarsamstarfsins (NORDEFCO). Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, tók þátt í fundinum.

    18. jan. 2022Utanríkisráðuneytið, Jafnrétti, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra ávarpaði málþing um jafnrétti á norðurslóðum

    Mikilvægi kynjajafnréttis fyrir sjálfbæra þróun á norðurslóðum var helsta umfjöllunarefnið í ávarpi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra á málþingi um jafnréttismál á norðurslóðum. Málþingið er hluti af fyrirlestraröðinni Vísindi á norðurslóðum, sem er samstarfsverkefni sendiráðs Íslands í Ottawa, sendiráðs Kanada í Reykjavík, Polar Knowledge Canada og Norðurslóðanets Íslands.

    13. jan. 2022Utanríkisráðuneytið, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Þórdís Kolbrún ræddi við Antony Blinken

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, átti í dag símafund með Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.

    07. jan. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins funduðu um hernaðaruppbyggingu Rússa

    Staða öryggismála í Evrópu og hernaðaruppbygging Rússlands í og við Úkraínu var tilefni sérstaks aukafundar utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins sem fór fram í dag. Á fundinum, sem haldinn var um öruggan fjarfundabúnað, var rædd sú alvarlega staða sem upp er komin vegna aðgerða Rússlands á þessu svæði og áhyggjur af því að hætta sé á hernaðarátökum. Á fundinum lögðu ráðherrar áherslu á að frekari brot myndu hafa í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir Rússland.

    04. jan. 2022Utanríkisráðuneytið, Brexit, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í London, Dómsmálaráðuneytið

    Vinnudvöl ungs fólks í Bretlandi nú heimil

    Ungir Íslendingar geta nú sótt um dvalarleyfi vegna vinnudvalar ungs fólks í Bretlandi (Youth Mobility Scheme Visa). Ísland er fyrsta og eina ríkið á öllu EES-svæðinu sem hefur gert samkomulag þess efnis við Bretland. Að sama skapi geta breskir ríkisborgarar nú sótt um slík dvalarleyfi á Íslandi.

    30. des. 2021Utanríkisráðuneytið, WFP, Utanríkismál, Þróunarsamvinna, UNHCR

    Tvö hundruð milljónir króna í alþjóðlega mannúðaraðstoð

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra hefur ákveðið að úthluta 200 milljónum króna til mannúðaraðstoðar í Afganistan, Eþíópíu og Jemen. Að mati Sameinuðu þjóðanna hefur þörf á mannúðaraðstoð aldrei verið meiri og eykst dag frá degi. Áætlað er að um 274 milljónir manna þurfi á aðstoð að halda á næsta ári, tæplega fjörutíu milljónum fleiri en á árinu sem er að kveðja.

    22. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Loftslagsmál, Utanríkisviðskipti, Sendiráð Íslands í Peking, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Íslands og Kína funda í tilefni fimmtíu ára stjórnmálasambands ríkjanna

    Samskipti Íslands og Kína í áranna rás, samstarfsmöguleikar ríkjanna á ýmsum sviðum, loftslagsmál og mikilvægi alþjóðasamstarfs voru helstu umræðuefnin á fjarfundi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra með Wang Yi utanríkisráðherra Kína fyrr í dag.

    22. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Mannréttindi, Þróunarsamvinna, Mannréttindi og jafnrétti

    Ísland styður verkefni sem miðar að því að útrýma fæðingarfistli í Síerra Leóne

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, og Argentina Matavel-Piccin, yfirmaður skrifstofu Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) fyrir Vestur- og Mið-Afríku, hafa skrifað undir samstarfssamning um verkefni sem styður stjórnvöld í Síerra Leóne í viðleitni sinni við að útrýma fæðingarfistli í landinu. Um er að ræða nokkuð algengt og mjög alvarlegt vandamál í landinu, en með verkefninu munu lífsgæði fjölda kvenna batna til mikilla muna. Verkefnið verður unnið í náinni samvinnu við heilbrigðisyfirvöld í Síerra Leóne en frjáls félagasamtök taka jafnframt þátt í því.

    21. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Yfirlýsing norrænna varnarmálaráðherra um stöðuna í Úkraínu

    Varnarmálaráðherrar Norðurlandanna hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu um málefni Úkraínu.. Þari lýsa þeir yfir áhyggjum af stöðu og þróun mála í Úkraínu, árétta stuðning Norðurlandanna við fullveldi og landamærahelgi landsins, og rétt úkraínsku þjóðarinnar til að ákvarða eigin framtíð án utanaðkomandi afskipta.

    21. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Flóttafólk, Heimsmarkmiðin, Jafnrétti, Þróunarsamvinna, UN Women, Utanríkismál

    66°Norður og UN Women fá styrk til atvinnusköpunar fyrir flóttakonur

    66°Norður og UN Women á Íslandi hafa fengið styrk úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífsins um þróunarsamvinnu til að vinna að verkefni til atvinnusköpunar fyrir flóttakonur frá þróunarríkjum í Tyrklandi. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og Bjarney Harðardóttir hjá 66°Norður skrifuðu undir samning í gær um tæplega 30 milljóna króna styrk ráðuneytisins gegn sambærilegu mótframlagi fyrirtækisins.

    21. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Heimsmarkmiðasjóðurinn styður við samfélagsverkefni Kerecis í Egyptalandi

    Framlag úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs um þróunarsamvinnu verður nýtt til að styðja við samstarf lækningafyrirtækisins Kerecis og egypska Ahl Masr-sjúkrahússins um að nota íslenskt sáraroð við meðhöndlun alvarlegra brunasára. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og Guðmundur Fertram Sigurjónsson forstjóri Kerecis hafa undirritað samning um 30 milljóna króna stuðning ráðuneytisins úr Heimsmarkmiðasjóðnum við samfélagsverkefni Kerecis í Egyptalandi.

    17. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Úkraína í brennidepli á varnarmálaráðherrafundi NB8

    Málefni Úkraínu voru til umfjöllunar á fjarfundi varnarmálaráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna (NB8) í dag. Ríkin eru sammála um að sú staða sem þar er komin upp ​vegna umfangsmikillar hernaðaruppbyggingar Rússlands sé verulegt áhyggjuefni, ekki síst í samhengi við pólitískar yfirlýsingar rússneskra stjórnvalda að undanförnu.

    16. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Utanríkismál

    Yfirlit yfir áður óbirta þjóðréttarsamninga birt á Stjórnarráðsvefnum

    Sérstakt yfirlit yfir þjóðréttarsamninga frá tímabilinu 2012-2020 hefur nú verið gert aðgengilegt á vef Stjórnarráðsins. Yfirlitið er hluti af átaksverkefni utanríkisráðuneytisins um birtingu áður óbirtra samninga og veitir upplýsingar um stöðu hvers samnings.

    10. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Sendiráð Íslands í Helsinki, Utanríkismál

    Ísland aðili að evrópsku öndvegissetri um fjölþáttaógnir

    Ísland gerðist í dag aðili að Evrópska öndvegissetrinu um fjölþáttaógnir í Helsinki. Öndvegissetrið var sett á fót árið 2017 með það að markmiði að efla getu ríkja til að mæta áskorunum á sviði fjölþáttaógna.

    09. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Sendiráð Íslands í Peking, Utanríkismál

    50 ára afmæli stjórnmálasambands Íslands og Kína fagnað

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, lagði áherslu á gott samband Íslands og Kína á mörgum sviðum í ávarpi sem flutt var á í hátíðarmóttöku í sendiráði Íslands í Peking í gær. 50 ár eru nú liðin síðan Ísland og Alþýðulýðveldið Kína tóku upp stjórnmálasamband.

    09. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra ávarpaði fund Viðskiptaráðs

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ávarpaði í gær fund Viðskiptaráðs þar sem utanríkisviðskipti voru efst á baugi en fundurinn bar yfirskriftina „Hvert fer álið og hvaðan koma ávextirnir?“.

    08. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Aðalræðisskrifstofa Íslands í New York, Sendiráð Íslands í Washington DC, Utanríkismál

    Græn orka og nýsköpun á dagskrá efnahagssamráðs Bandaríkjanna og Íslands

    Nýsköpun og samstarf á sviði grænnar orku voru í brennidepli í árlegu efnahagssamráði Íslands og Bandaríkjanna sem fram fór í Washington í dag.

    08. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Ísland setur 95 milljónir í Neyðarsjóð Sameinuðu þjóðanna

    Framlag Íslands til Neyðarsjóðs Sameinuðu þjóðanna (CERF) verður 95 milljónir króna á næsta ári. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, greindi frá þessari ákvörðun á framlagaráðstefnu sjóðsins í dag, en Ísland mun veita 45 milljón króna viðbótarframlag auk venjubundins 50 milljón króna framlags sem Ísland greiðir samkvæmt rammasamningi við sjóðinn.

    06. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, OECD, Utanríkismál

    Þórdís Kolbrún á fundi þróunarmiðstöðvar OECD

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók í dag þátt í ráðherrafundi Development Centre, þróunarmiðstöðvar Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD), þar sem sjónum var beint að nauðsyn þess að öll ríki heims hafi aðgang að bjargráðum til að takast á við afleiðingar heimsfaraldursins.

    06. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Nýr aðstoðarmaður utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra hefur ráðið Þórlind Kjartansson í stöðu aðstoðarmanns ráðherra.

    03. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Þórdís Kolbrún áréttaði sameiginlegar skuldbindingar ÖSE-ríkjanna

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók þátt í ráðherrafundi Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) 1.-2. desember í Stokkhólmi. Öryggisáskoranir og staða mannréttinda á svæðinu voru meginviðfangsefni fundarins.

    02. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Utanríkismál

    Loftferðasamningur við Úkraínu undirritaður

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra hefur undirritað loftferðasamning Íslands og Úkraínu. Um er að ræða fyrsta milliríkjasamninginn sem hún skrifar undir frá því hún tók við embættinu í vikubyrjun.

    24. nóv. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór stýrði fundi með EFTA-nefndum

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, stýrði í gær fundi EFTA-ríkjanna með þingmannanefnd og ráðgjafarnefnd EFTA sem fram fór í Brussel. Ráðherrann tók þátt í fundinum með fjarfundarbúnaði og fór í máli sínu yfir áhersluatriði sögulegrar formennsku Íslands í EFTA-samstarfinu en um er að ræða fyrsta skiptið þar sem tímabil formennskuríkis er eitt ár.

    18. nóv. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Jafnrétti, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra ávarpaði tengslanet norrænna kvenna

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, hélt opnunarávarp á ársfundi tengslanets norrænna kvenna í friðarumleitunum og sáttamiðlun (Nordic Women Mediators Network) í dag en fundurinn fer fram hér á landi dagana 17.-19. nóvember.

    17. nóv. 2021Utanríkisráðuneytið, Menningarmál, Menntamál, Utanríkismál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ísland kjörið í framkvæmdastjórn UNESCO

    Ísland var kosið í framkvæmdastjórn Mennta-, vísinda og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) í dag með yfirgnæfandi stuðningi á aðalráðstefnu stofnunarinnar sem nú stendur yfir í París. nnan Vesturlandahópsins voru Austurríki og Tyrkland einnig í framboði. Ísland hlaut flest atkvæði í kosningunni, eða 168 en 178 ríki greiddu atkvæði.

    17. nóv. 2021Utanríkisráðuneytið, Menningarmál, Menntamál, Utanríkismál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ísland kjörið í framkvæmdastjórn UNESCO

    Ísland var kosið í framkvæmdastjórn Mennta-, vísinda og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) í dag með yfirgnæfandi stuðningi á aðalráðstefnu stofnunarinnar sem nú stendur yfir í París. nnan Vesturlandahópsins voru Austurríki og Tyrkland einnig í framboði. Ísland hlaut flest atkvæði í kosningunni, eða 168 en 178 ríki greiddu atkvæði.

    16. nóv. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Jafnrétti, Þróunarsamvinna, Fjölþjóðastofnanir, Sameinuðu þjóðirnar, Utanríkismál

    Fyrsti rammasamningur Íslands við UNFPA

    Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, og Ib Petersen, aðstoðarframkvæmdastjóri Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA), skrifuðu í gær undir rammasamning um stuðning Íslands við UNFPA. Með samningnum formfestir Ísland stuðning sinn við stofnunina og fylgir eftir skuldbindingu í verkefninu Kynslóð jafnréttis sem forsætisráðherra Íslands tilkynnti á leiðtogafundi í París síðastliðið sumar.

    12. nóv. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Staða og horfur í öryggis og varnarmálum í brennidepli

    Tim Radford, hershöfðingi og næstæðsti yfirmaður Evrópuherstjórnar Atlantshafsbandalagsins (DSACEUR), heimsótti Ísland nú í vikunni.

    11. nóv. 2021Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    NORDEFCO-ráðherrar funduðu í Finnlandi

    Horfur í öryggismálum í Norður-Evrópu og málefni Afganistans voru meðal umfjöllunarefna á ráðherrafundi norræna varnarsamstarfsins (NORDEFCO) sem lauk í gær. Fundurinn fór fram í Majvik í Kirkkonummi í útjaðri Helsinki.

    10. nóv. 2021Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Utanríkismál

    Ísland styrkir starf mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis – og þróunarsamvinnuráðherra átti fund með mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna í gær í tilefni undirritunar rammasamnings um stuðning við skrifstofu mannréttindafulltrúans (OHCHR) um 20 milljónir króna á ári næstu þrjú árin, 2021 til 2023.

    10. nóv. 2021Utanríkisráðuneytið, Menningarmál, Menntamál, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í París, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Framboðsáherslur Íslands kynntar á aðalráðstefnu UNESCO

    Fulltrúar Íslands kynntu áherslur sínar vegna framboðs til framkvæmdastjórnar UNESCO á aðalráðstefnu stofnunarinnar sem nú stendur yfir. Íslendingar hafa aukið starf sitt og framlög til þróunarsamvinnu innan UNESCO á undanförnum árum.

    09. nóv. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti

    Guðlaugur Þór á opnunarviðburði Heimsþings kvenleiðtoga

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók í dag þátt í formlegri opnun Heimsþings kvenleiðtoga sem nú fer fram í Hörpu. Staða og hlutverk Íslands í jafnréttismálum á alþjóðavísu var efst á baugi á þessum opnunarviðburði ráðstefnunnar sem lýkur á morgun.

    05. nóv. 2021Innviðaráðuneytið, Utanríkismál, Norrænt samstarf, Utanríkisráðuneytið

    Samstarfsráðherra á þingi Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlandanna, sótti þing Norðurlandaráðs sem haldið var í Kaupmannahöfn dagana 1-4. nóvember.

    03. nóv. 2021Utanríkismál, Norrænt samstarf, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra á þingi Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti í dag ávarp á leiðtogafundi forsætisráðherra Norðurlandanna á þingi Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn. Á leiðtogafundinum var rætt um hvaða lærdóma Norðurlöndin geti dregið af heimsfaraldri kórónaveiru og hvernig norrænt samstarf verði eflt í framtíðinni.

    03. nóv. 2021Utanríkismál, Norrænt samstarf, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Aukið fé til norræns menningarsamstarfs

    Menningarmálaráðherrar Norðurlandanna funduðu á Norðurlandaráðsþingi í Kaupmannahöfn í dag. Á fundinum voru meðal annars samþykktar auknar fjárveitingar til norræns menningarsamstarfs.

    03. nóv. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Þróunarsamvinna, Fjölþjóðastofnanir, Utanríkismál

    Ísland eykur framlag sitt til loftslagstengdrar þróunarsamvinnu

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, ávarpaði í dag viðburð Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna (UNDP) sem haldinn var af tilefni loftlagsráðstefnunarinnar í Glasgow, COP26. Þar tilkynnti hann jafnframt þátttöku Íslands í fjármögnun verkefnis UNDP til stuðnings loftslagstengdrar þróunarsamvinnu. Framlag Íslands nemur 150 milljónum króna til næstu þriggja ára.

    29. okt. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Orka, Fjölþjóðastofnanir, Sameinuðu þjóðirnar, Utanríkismál

    Ráðherra lagði áherslu á græna orku á ráðherrafundi um loftslagsmál

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, tók þátt í ráðherrafundi um loftslagsmál á vegum forseta allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna þann 26. október. Fundinum var ekki síst ætlað að auka á þrýsting um árangur á loftslagsfundi Sameinuðu þjóðanna, COP26, sem hefst í Glasgow þann 1. nóvember.

    27. okt. 2021Menningarmál, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Samningur um sjónvarpsútsendingar yfir landamæri undirritaður af Íslands hálfu

    Ragnhildur Arnljótsdóttir, fastafulltrúi Íslands hjá Evrópuráðinu í Strassborg, hefur undirritað Evrópusamning um sjónvarpsútsendingar yfir landamæri fyrir hönd íslenskra stjórnvalda.

    • First
    • Prev
    • 18
    • 19
    • 20
    • 21
    • 22
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband