24. sep. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Skipulagsmál, Húsnæðis- og mannvirkjamál
Ein öflug stofnun á sviði húsnæðis og skipulagsmála – lagafrumvarp í samráðsgátt
Inga Sæland, félags og húsnæðismálaráðherra, hefur birt drög að frumvarpi í samráðsgátt stjórnvalda þar sem lagt er til að starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar verði sameinuð. Með sameiningunni verður allur ferillinn, frá skipulagi til fullbúins mannvirkis, á höndum einnar stofnunar. Lagt er til að starfsemin verði sameinuð þannig að verkefni Skipulagsstofnunar renni inn í Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og að heiti stofnunarinnar verði breytt í Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.