Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnahagsmál og opinber fjármál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1301–1350 af 1495
    Raða eftir:
    12. mar. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Höfundagreiðslur verði skattlagðar sem eigna- eða fjármagnstekjur

    Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt og lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur hafa verið birt í samráðsgátt til umsagnar. Með frumvarpinu er lagt til að höfundagreiðslur sem viðurkennd samtök rétthafa innheimta og greiddar eru til höfunda og/eða annarra einstaklinga sem rétthafa verði skattlagðar sem eignatekjur/fjármagnstekjur.

    11. mar. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Aðgengi að opinberum útboðum einfaldað með rafrænu útboðskerfi

    Ríkiskaup hafa innleitt rafrænt útboðskerfi með það að markmiði að einfalda aðgengi að opinberum útboðum og draga úr umsýslukostnaði. Í nýja kerfinu eru auglýsingar og útboðsgögn öllum aðgengileg endurgjaldslaust.

    07. mar. 2019Forsætisráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Drög að frumvörpum til laga um sameiningu Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins birt til umsagnar

    Forsætisráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneyti hafa birt drög að frumvarpi forsætisráðherra til laga um Seðlabanka Íslands og drög að frumvarpi fjármála- og efnahagsráðherra til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna sameiningar Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins í samráðsgátt til umsagnar. Umsagnarfrestur er til 18. mars nk.

    06. mar. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Svör félaga í ríkiseigu við fyrirspurn ráðherra um launaákvarðanir og starfskjör

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið sendi 12. febrúar síðastliðinn bréf til stjórna fyrirtækja í ríkiseigu og Bankasýslu ríkisins þar sem óskað var upplýsinga um hvernig brugðist hafi verið við tilmælum sem beint var til þeirra í janúar 2017 og varða launaákvarðanir og starfskjör framkvæmdastjóra.

    04. mar. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Bindingarhlutfall vegna nýs innstreymis erlends gjaldeyris úr 20% í 0%

    Breytingar á lögum um gjaldeyrismál og lögum um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum, sem Alþingi samþykkti nýverið taka gildi 5. mars. Vegna breytinganna áformar Seðlabankinn að setja nýjar reglur um bindingu reiðufjár vegna nýs innstreymis erlends gjaldeyris og reglur um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum. Þar á meðal eru reglur sem fela í sér að lækkun bindingarhlutfalls frá eldri reglum fer úr 20% í 0% en gert er ráð fyrir að þessi breyting taki gildi 6. mars nk.

    01. mar. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ríkissjóður kaupir 38% hlut í Farice ehf.

    Íslenska ríkið hefur samið við Arion banka um kaup á um 38% hlut bankans í félaginu. Eftir kaupin á ríkissjóður um 65% hlutafjár Farice en Landsvirkjun 33% og er félagið því alfarið í eigu ríkisins. Kaupverð er 740 milljónir króna.

    28. feb. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Bréf til Bankasýslunnar vegna launaákvarðana og starfskjarastefnu bankanna

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur í dag sent meðfylgjandi bréf til Bankasýslu ríkisins, sem varðar ákvörðun launa og starfskjarastefnu bankanna.

    26. feb. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Vegna umræðu um niðurstöðu tíundagreiningar á þróun ráðstöfunartekna

    Vegna umræðu um niðurstöðu tíundagreiningar á þróun ráðstöfunartekna vill fjármála- og efnahagsráðuneytið koma eftirfarandi á framfæri. Greining á þróun ráðstöfunartekna frá 2000 til 2017 sem birtist í skýrslu sérfræðingahóps fjármála- og efnahagsráðuneytisins var unnin af sérfræðingum ráðuneytisins.

    25. feb. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Skýrsla um endurskoðun tekjuskatts og bótakerfa hjá einstaklingum

    Skýrsla sérfræðingahóps um endurskoðun tekjuskatts og bótakerfa hjá einstaklingum var kynnt í dag á blaðamannafundi í fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

    25. feb. 2019Rit og skýrslur, Rekstur og eignir ríkisins, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Endurskoðun tekjuskatts og bótakerfa hjá einstaklingum og fjölskyldum

    Skýrsla sérfræðingahóps um endurskoðun tekjuskatts og bótakerfa hjá einstaklingum var kynnt 25. febrúar 2019.

    19. feb. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Skattbyrði minnkuð á lágtekjufólk

    Skattbyrði lágtekjufólks lækkar um 2 prósentustig verði fyrirætlanir stjórnvalda um breytingar á skattkerfinu samþykktar. Breytingarnar eru í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá því í febrúar 2018. Þær munu sérstaklega bæta stöðu kvenna, fólks á aldrinum 18-24 ára, 25-34 ára, öryrkja, eldri borgara, þeim sem ekki eiga húsnæði og þeim sem þiggja húsnæðisstuðning.

    12. feb. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Bréf fjármálaráðherra til stjórna fyrirtækja í ríkiseigu vegna launaákvarðana

    Fjármála- og efnahagsráðherra sendi í dag stjórnum fyrirtækja í ríkiseigu bréf þar sem þess er óskað að þær upplýsi fjármála- og efnahagsráðuneytið um það hvernig brugðist hefur verið við tilmælum ráðuneytisins, sem send voru stofnunum í janúar 2017 og síðar ítrekuð, um að gæta varkárni við launaákvarðanir. Bréfið var einnig sent til Bankasýslu ríkisins sem annast eignarhald fjármálafyrirtækja og samskipti við stjórnir þeirra.

    12. feb. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    80% hækkun launa í evrum talið frá 2013-2017

    Laun á Íslandi hækkuðu um 80% í evrum talið á tímabilinu 2013-2017 sé tekið mið af tölum Eurostat um launakostnað á vinnustund innan viðskiptahagkerfisins. Styrking krónunnar olli miklum vexti í kaupmætti í erlendri mynt á sama tíma og laun hækkuðu mikið.

    01. feb. 2019Rit og skýrslur, Efnahagsmál og opinber fjármál, Forsætisráðuneytið

    Skýrsla um umbætur á úrvinnslu og nýtingu launatölfræðiupplýsinga

    Launatölfræði á Íslandi er skýrsla nefndar um umbætur á úrvinnslu og nýtingu launatölfræðiupplýsinga. Nefndin var skipuð fulltrúum frá forsætisráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, velferðarráðuneyti, heildarsamtökum á vinnumarkaði, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Ríkissáttasemjara og Hagstofu Íslands.

    01. feb. 2019Forsætisráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ný skýrsla um umbætur á úrvinnslu og nýtingu launatölfræðiupplýsinga

    Nefnd um bætur á úrvinnslu og nýtingu tölfræðiupplýsinga hefur nú skilað ítarlegri skýrslu um umbætur á þessu sviði sem ríkisstjórnin fjallaði um á fundi sínum í morgun. Forsætisráðherra skipaði nefndina í kjölfar fundar stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um launatölfræði 19. janúar 2018.

    31. jan. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Yfirlýsing vegna viðlagaæfingar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í janúar 2019

    Stjórnvöld sem bera ábyrgð á eftirliti með fjármálastöðugleika á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjum héldu sameiginlega viðlagaæfingu 22. og 23. þessa mánaðar. Í æfingunni tóku þátt 31 stjórnvald frá Danmörku, Eistlandi, Finnlandi, Íslandi, Lettlandi, Litháen, Noregi og Svíþjóð ásamt viðkomandi stofnunum Evrópusambandsins. Starfsmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fylgdist einnig með æfingunni.

    30. jan. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Viðskipti við hið opinbera einfölduð og dregið úr kostnaði með rafrænum reikningum

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið vinnur að því að samræma kröfur til rafrænna reikninga vegna opinberra innkaupa í því augnamiði að einfalda viðskipti fyrirtækja við hið opinbera og draga úr hindrunum og kostnaði í viðskiptum jafn innanlands sem og milli landa. Reikningarnir eru umhverfisvænir og skapa verulegt hagræði, m.a. í sparnaði við útgáfu, miðlun, móttöku og úrvinnslu.

    28. jan. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    132 stofnanir á vef um opna reikninga

    Aðgengi að fjárhagsupplýsingum ríkisins hefur aukist til muna með vefnum opnirreikningar.is, sem hleypt var af stokkunum fyrir rúmu ári. Upphaflega voru á vefnum upplýsingar yfir greidda reikninga ráðuneyta en stofnanir í A-hluta ríkissjóðs hafa komið inn á vefinn í áföngum. Þeirri innleiðingu er lokið og hægt að nálgast greiðsluupplýsingar 132 stofnana á vefnum.

    25. jan. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kosningar, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka 2019

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur tekið saman upplýsingar um greiðslur ríkisins til stjórnmálasamtaka fyrir árið 2019.

    24. jan. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Bætt kostnaðarstjórnun í framkvæmdum á vegum ríkisins

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið fagnar niðurstöðum nýrrar skýrslu Framkvæmdasýslu ríkisins (FSR) sem sýnir að kostnaðarstjórnun verkefna ríkisins hefur batnað síðustu ár og standist alþjóðlegan samanburð. Þá sýnir skýrslan fram á mikilvægi vandaðrar áætlunargerðar í framkvæmdum líkt og við aðra stóra útgjaldaliði ríkisins. Markmið Framkvæmdasýslunnar um að gera enn betur í áætlunargerð sinni á næstu árum er í takti við stefnu núverandi ríkisstjórnar um aukið aðhald og ábyrgð í ríkisfjármálunum.

    22. jan. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hlýtur jafnlaunavottun

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur fengið staðfesta vottun á jafnlaunakerfi sitt samkvæmt kröfum ÍST 85:2012.

    18. jan. 2019Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Neytendamál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Tekjusagan - gagnagrunnur um þróun lífskjara

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra opnaði vefinn tekjusagan.is á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum í dag. Vefurinn veitir aðgang að gagnagrunni um lífskjör landsmanna sem byggir á ópersónugreinanlegum upplýsingum úr skattframtölum allra einstaklinga á Íslandi frá árinu 1991 til 2017.

    10. jan. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Opið samráð OECD um eflingu opinberrar nýsköpunar

    Opið samráð um yfirlýsingu ríkja Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um opinbera nýsköpun, stendur yfir á samráðsgátt OECD en frestur til að veita umsagnir stendur til 22. febrúar.

    28. des. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Forsendur aukafjárveitingar til heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni

    Eftirfarandi eru upplýsingar um forsendur þeirrar aukafjárveitingar til heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni fyrir rekstrarárið 2018 sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið og tilkynnt var um í gær. Fjárveitingin rúmast innan fjárheimilda samkvæmt fjárlögum og byggist á millifærslum á grundvelli heimilda í lögum um opinber fjármál.

    21. des. 2018Rit og skýrslur, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Stefna í lánamálum ríkisins 2019-2023

    desember 2018 / Fjármála- og efnahagsráðuneytið Stefna í lánamálum ríkisins 2019-2023 Stefna í lánamálum 2019-2023. pdf

    21. des. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Skattbreytingar á árinu 2019

    Ýmsar samþykktar skattbreytingar munu koma til framkvæmda í ársbyrjun 2019. Hér verður farið yfir helstu efnisatriði þeirra. Nánari upplýsingar um einstakar breytingar er að finna í greinargerðum viðkomandi lagafrumvarpa og öðrum skjölum á vef Alþingis.

    21. des. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Persónuafsláttur og skattleysismörk hækka um 4,7%

    Samkvæmt lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal í upphafi hvers árs hækka persónuafslátt hvers einstaklings um sem nemur hækkun á vísitölu neysluverðs næstliðna tólf mánuði. Hækkun vísitölu neysluverðs liggur nú fyrir og nemur hún 3,7% á tólf mánaða tímabili.

    21. des. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ísland með frjálslyndustu ríkjum heims í tollamálum

    Frá upphafi árs 2017 hafa tollar á innfluttar iðnaðarvörur, numið 0%. Samkvæmt Alþjóðaviðskiptastofnuninni er Ísland eitt aðeins sex aðildarríkja sem hafa nær alfarið afnumið tolla á iðnaðarvörur.

    20. des. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Hægt verði að greiða með kreditkortum hjá öllum ríkisstofnunum

    Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt að fela fjármála- og efnahagsráðherra að gefa út tilmæli til allra ríkisaðila um að taka við greiðslum með kreditkortum. Með þessu batnar þjónusta við almenning og mögulegt verður að taka við greiðslum með sambærilegum hætti og almenningur þekkir í samskiptum við aðra þjónustuveitendur. Meðal þess sem verður skoðað er möguleiki á að greiða með kreditkortum hjá sýslumanni fyrir útgáfu vegabréfa.

    14. des. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Raunvaxtakjör ríkissjóðs þau hagstæðustu í sögulegu samhengi

    Ríkissjóður gaf út nýjan verðtryggðan skuldabréfaflokk í lok nóvember sl., RIKS 26, og ber hann 1,5% vexti. Þetta eru hagstæðustu raunvaxtakjör sem ríkissjóður hefur nokkru sinni fengið á innlendri lántöku. Þessi niðurstaða endurspeglar traust á ríkissjóði og grundvallast það á góðum árangri í ríkisfjármálum og festu í stjórn opinberra fjármála.

    14. des. 2018Rekstur og eignir ríkisins, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Uppgjör ríkissjóðs á fyrstu níu mánuðum ársins 2018

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur tekið saman upplýsingar um tekjur og yfirlit yfir stöðu málefnasviða og málaflokka fyrir fyrstu níu mánuði ársins í samanburði við fjárheimildir. Byggt er á mánaðaryfirliti Fjársýslu ríkisins.

    13. des. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Óskað eftir umsögnum um hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið í samráðsgátt

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur birt hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið í samráðsgátt stjórnvalda og óskar eftir umsögnum.

    10. des. 2018Rit og skýrslur, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Skýrsla: Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið

    Skýrsla starfshóps um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið á Íslandi.

    10. des. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið

    Gott regluverk og öflugt eftirlit, hagkvæmni í bankarekstri og traust eignarhald fjármálafyrirtækja eru þær þrjár meginstoðir sem framtíðarsýn íslensks fjármálakerfis þarf að mótast af. Þetta er niðurstaða starfshóps sem skipaður var í febrúar til að vinna hvítbók um fjármálakerfið, en hópurinn hefur lokið störfum og skilað skýrslu til fjármála- og efnahagsráðherra.

    09. des. 2018Rit og skýrslur, Almannatryggingar og lífeyrir, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Ársskýrsla 2017 - Fjármála- og efnahagsráðherra

    Ársskýrsla ráðherra í samræmi við 62.grein laga nr. 123/2015 um opinber fjármál.

    07. des. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Matsfyrirtækið S&P Global staðfestir óbreytta A/A-1 lánshæfiseinkunn ríkissjóðs með stöðugum horfum

    Matsfyrirtækið S&P Global staðfesti í dag óbreytta A/A-1 lánshæfiseinkunn ríkissjóðs fyrir langtíma- og skammtímaskuldbindingar í erlendum og innlendum gjaldmiðli með stöðugum horfum

    07. des. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Fitch

    Matsfyrirtækið Fitch staðfestir óbreytta A lánshæfiseinkunn ríkissjóðs með stöðugum horfum

    Matsfyrirtækið Fitch staðfesti í dag óbreytta lánshæfiseinkunn ríkissjóðs Íslands fyrir langtímaskuldir í erlendum gjaldmiðli sem A með stöðugum horfum.

    07. des. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Sóknarfrumvarp samþykkt: Fjárlög 2019 afgreidd frá Alþingi

    Fjárlög fyrir árið 2019 voru samþykkt á Alþingi í dag. Þetta er í fyrsta sinn síðan 2011 sem fjárlög eru samþykkt í fyrstu heilu viku desember, eins og kveðið er á um í þingskapalögum.

    07. des. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Frumvarp um breytingar á lögum - losun fjármagnshafta á aflandskrónueigendur og framkvæmd bindingarskyldu á fjármagnsinnstreymi

    Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að leggja fram á Alþingi frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um breytingar á lögum nr. 37/2016, um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og lögum nr. 87/1992, um gjaldeyrismál.

    30. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Frumvarp um breytingar á lögum vegna brottfalls laga um kjararáð

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingu á ýmsum lögum vegna brottfalls laga um kjararáð. Breytingarnar sem lagðar eru til í frumvarpinu eru að mestu með hliðsjón af tillögum starfshóps forsætisráðherra um málefni kjararáðs sem skilaði skýrslu í febrúar.

    28. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fjármálaráðherrar Íslands og Danmerkur ræddu efnahagsmál ríkjanna

    Fjármálaráðherrar Íslands og Danmerkur hittust síðdegis í gær í Kaupmannahöfn á fundi Dansk-íslenska viðskiptaráðsins, sem haldinn var í tilefni 100 ára fullveldisafmælis Íslands. Efnahagsmál ríkjanna tveggja voru í deiglunni, sameiginlegar og ólíkar áskoranir.

    23. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ríkissjóður kaupir eigin bréf fyrir 24 milljarða króna

    Ríkissjóður keypti í vikunni eigin skuldabréf af Seðlabanka Íslands samtals að fjárhæð 24 ma.kr. Um er að ræða óverðtryggð ríkisbréf í flokkunum RIKB 20, RIKB 22, RIKB 25 og RIKB 31 fyrir samtals um 22,5 ma.kr. að nafnvirði og í flokknum RIKS 21 fyrir um 0,3 ma.kr. að nafnvirði. Uppgjör viðskipta fer fram í dag.

    09. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Atvinnuvegir

    Aukinn stuðningur við rannsóknir, þróun og nýsköpun

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur á Alþingi mælt fyrir frumvarpi um að auka stuðning við rannsóknir og þróun fyrirtækja og stuðla þannig að enn frekari nýsköpun. Lagt er til að núgildandi viðmiðunarfjárhæðir endurgreiðslna vegna rannsókna- og þróunarkostnaðar tvöfaldist, hækki úr 300 m.kr. í 600 m.kr.

    06. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ræddu breytingar í umhverfi fjármálastofnana á fundi ráðherra fjármála- og efnahagsmála í Brussel

    Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra sótti í dag árlegan fund ráðherra fjármála- og efnahagsmála í ríkjum Evrópusambandsins, Ecofin, og EFTA. Fundurinn fór fram í Brussel.

    05. nóv. 2018Rekstur og eignir ríkisins, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Nýsköpun hjá hinu opinbera kortlögð í fyrsta sinn

    Á dögunum fengu um 800 stofnanir ríkis og sveitarfélaga senda könnun sem ætlað er að kortleggja nýsköpun hjá hinu opinbera og um leið efla hana. Könnunin, sem nefnist Nýsköpunarvogin, er samnorræn en þetta er í fyrsta sinn sem Ísland tekur þátt í slíkri könnun.

    05. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Framgangur áætlunar um losun fjármagnshafta

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur brit greinargerð um framgang áætlunar um losun fjármagnshafta, en samkvæmt lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál ber honum að gera Alþingi grein fyrir framgangi áætlunar um losun takmarkana á fjármagnshreyfingum milli landa og gjaldeyrisviðskiptum á sex mánaða fresti þar til slíkum takmörkunum verður endanlega aflétt.

    31. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Staða og horfur á vinnumarkaði: Spyrja þarf um þróun ráðstöfunartekna og kaupmáttar

    Þegar lífskjör landsmanna eru skoðuð þarf spyrja um þróun ráðstöfunartekna og kaupmáttar þeirra, fremur en að horfa aðeins á mælikvarða skatthlutfalla. Þetta kom fram í máli Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, í pallborði á morgunfundi Landsbankans þar sem rætt var um stöðu og horfur á íslenskum vinnumarkaði.

    30. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fimm ára áætlun um kynjaða fjárlagagerð 2019-2023 samþykkt í ríkisstjórn

    Fimm ára áætlun um kynjaða fjárlagagerð var samþykkt í ríkisstjórn sl. föstudag. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur haft forystu um gerð áætlunarinnar í samráði við ráðherra jafnréttismála.

    15. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fjármálaráðherra á fundi AGS og Alþjóðabankans

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra sótti ársfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans á Bali í Indónesíu, sem haldinn var 8.-14. október. Þar voru meðal annars til umræðu þær áskoranir sem fjölþjóðasamstarf stendur frammi fyrir og mikilvægi þess að viðhalda slíku samstarfi og efla með nýrri tækni og nýjum leiðum.

    11. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ríkisreikningur 2017

    Uppgjör ríkisreiknings fyrir árið 2017 hefur nú verið birt og ríkisreikningur sendur Alþingi. Samkvæmt ríkisreikningi var rekstrarafkoman jákvæð um 39 ma.kr. sem lýsir sterkri stöðu ríkisfjármálanna. Tekjur námu samtals 783 ma.kr. og rekstrargjöld 711 ma.kr. Hrein fjármagnsgjöld voru neikvæð um 74 ma.kr. en hlutdeild í afkomu félaga í eigu ríkisins jákvæð um 40 ma.kr.

    • First
    • Prev
    • 26
    • 27
    • 28
    • 29
    • 30
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband