Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1701–1750 af 3887
    Raða eftir:
    16. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    940/2020. Úrskurður frá 30. október 2020

    Kærð var afgreiðsla Vinnueftirlitsins á beiðni kæranda um aðgang að ábendingum og kvörtunum sem borist hefðu stofnuninni vegna tiltekins vinnustaðar. Vinnueftirlitið kvað engin slík gögn liggja fyrir hjá stofnuninni. Úrskurðarnefndin hafði ekki forsendur til að rengja þær fullyrðingar Vinnueftirlitsins. Þar sem ekki lá fyrir synjun á beiðni um aðgang að gögnum var kærunni vísað frá.

    16. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    938/2020. Úrskurður frá 30. október 2020

    Kærð var afgreiðsla Kvikmyndamiðstöðvar Íslands á beiðni um aðgang að gögnum. KMÍ afhenti kæranda gögn við meðferð málsins og staðhæfði að frekari gögn væru ekki fyrirliggjandi. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi sig ekki hafa forsendur til þess að draga þá staðhæfingu í efa og var því kærunni vísað frá.

    16. nóv. 2020Forsætisráðuneytið

    GRECO birtir eftirfylgniskýrslu um Ísland

    Samtök ríkja innan Evrópuráðsins gegn spillingu (GRECO), hafa í dag birt eftirfylgniskýrslu ​um aðgerðir Íslands í fimmtu úttekt samtakanna á aðildarríkjunum.

    09. nóv. 2020Forsætisráðuneytið

    Fjölmennasti ársfundur Heimsráðs kvenleiðtoga frá upphafi

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, stýrði ársfundi Heimsráðs kvenleiðtoga (Council of Women World Leaders) í Hörpu í dag. Sérstök umræða fór fram um aukið kynbundið ofbeldi vegna heimsfaraldurs COVID-19 þar sem Phumzile Mlambo-Ngcuka, framkvæmdastjóri UN Women var frummælandi ásamt forsætisráðherra

    09. nóv. 2020Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra opnar Heimsþing kvenleiðtoga

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra opnaði Heimsþing kvenleiðtoga í Hörpu í dag. Forsætisráðherra bauð kvenleiðtoga velkomna sem allar taka þátt rafrænt að þessu sinni.

    05. nóv. 2020Forsætisráðuneytið

    Ný stefna í málefnum hinsegin fólks samþykkt á fundi norrænna ráðherra jafnréttismála

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og ráðherra jafnréttismála, sat fjarfund norrænna jafnréttisráðherra í dag.

    03. nóv. 2020Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

    Skýrsla vinnuhóps þjóðaröryggisráðs um upplýsingaóreiðu vegna COVID-19

    nóvember 2020 / Forsætisráðuneytið Skýrsla vinnuhóps þjóðaröryggisráðs um upplýsingaóreiðu vegna COVID-19 Skýrsla vinnuhóps þjóðaröryggisráðs um upplýsingaóreiðu og COVID-19 sem settur var á laggirnar í apríl 2020 liggur nú fyrir. Í skýrslunni er fjallað um mikilvægi upplýsingamiðlunar og lýðheilsu, nýtt tækniumhverfi og miðlun upplýsinga, samstarf hópsins við Vísindavef Háskóla Íslands og alþjóðasamstarf á þessu sviði

    03. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Ríkisstjórnin skilgreinir forgangsmál vegna hagsmunagæslu gagnvart ESB

    Ríkisstjórnin samþykkti í morgun lista yfir forgangsmál hagsmunagæslu Íslands gagnvart Evrópusambandinu 2020-21. Á listanum eru einkum mál sem eru í undirbúningi á vettvangi ESB og þar sem íslenskir hagsmunir eru sérstaklega í húfi.

    02. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    937/2020. Úrskurður frá 20. október 2020

    Beiðni kæranda um endurupptöku úrskurðar nr. 927/2020 var hafnað. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi skilyrði 24. gr. stjórnsýslulaga um endurupptöku ekki uppfyllt og að ekki væru rökstuddar vísbendingar um að á úrskurðinum væru verulegir annmarkar að lögum.

    02. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    936/2020. Úrskurður frá 20. október 2020

    Kærð var afgreiðsla utanríkisráðuneytisins á beiðni um aðgang að gögnum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi sig ekki hafa forsendur til annars en að leggja til grundvallar að öll fyrirliggjandi gögn í málinu hefðu þegar verið afhent kæranda. Var málinu því vísað frá.

    02. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    935/2020. Úrskurður frá 20. október 2020

    Ríkisskattstjóri synjaði beiðni Ríkisútvarpsins ohf. um aðgang að gögnum fyrirtækjaskrár um raunverulegt eignarhald tiltekna félaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á að gögnin væru undanþegin upplýsingarétti með vísan til laga nr. 82/2019, um skráningu raunverulega eigenda, eða þagnarskylduákvæðis laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Var því leyst úr rétti kæranda til aðgangs að gögnunum á grundvelli upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi ríkisskattstjóra óheimilt að veita kæranda aðgang að upplýsingum um upphæðir á hlutafjármiðum, vegabréfsnúmer, afrit vegabréfs og að tilteknu bréfi en að öðru leyti var ríkisskattstjóra gert að veita kæranda aðgang að umbeðnum gögnum.

    02. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    934/2020. Úrskurður frá 20. október 2020

    Kærð var afgreiðsla Barnaverndarstofu á beiðni um aðgang að gögnum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi sig ekki hafa forsendur til annars en að leggja til grundvallar að öll fyrirliggjandi gögn í málinu hefðu þegar verið afhent kæranda. Var málinu því vísað frá.

    02. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    933/2020. Úrskurður frá 20. október 2020

    Deilt var um synjun Sjúkratrygginga Íslands á beiðni um aðgang að upplýsingum um hvenær þjónustunotendur voru lagðir inn á hjúkrunarheimilið Skjól á tilteknu tímabili. Synjun Sjúkratrygginga byggði á því að óheimilt væri að veita aðgang að gögnunum með vísan til 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 og ákvæða laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Úrskurðarnefndin féllst ekki á að umbeðin gögn fælu í sér upplýsingar um einkamálefni einstaklinga í skilningi 9. gr. upplýsingalaga enda væri ekki um að ræða persónugreinanlegar upplýsingar. Var Sjúkratryggingum því gert að veita kæranda aðgang að gögnunum.

    02. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    932/2020. Úrskurður frá 20. október 2020

    Kærð var afgreiðsla Landspítala á beiðni um upplýsingar úr sjúkraskrá, þ.e. lista yfir alla þá sem hafi flett kæranda upp í sjúkraskrá auk allra upplýsinga um kæranda sem skráðar hafi verið í sjúkraskrá. Kærunni var vísað frá þar sem upplýsingar um aðgang að sjúkraskrá eru ekki kæranlegar til úrskurðarnefndar um upplýsingamál.

    02. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    931/2020. Úrskurður frá 20. október 2020

    Í málinu synjaði Póst- og fjarskiptastofnun beiðni kæranda um aðgang að upplýsingum um hvar farnetssendar væru staðsettir í Reykjavík. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál vísað til þess að samkvæmt ákvæði 5. mgr. 62. gr. a væri heimilt að veita almenningi takmarkaðan aðgang að gagnagrunninum. Nefndin féllst á það að heimilt væri að undanþiggja upplýsingar um heimilisfang byggingar þar sem farnetssendar væru staðsettir með vísan til 1. tölul. 10. gr. upplýsingalaga. Hins vegar væri heimilt að upplýsa um staðsetningu þeirra án þess að svo nákvæm staðfesting væri gefin upp. Væri því staðfest synjun stofnunarinnar á aðgangi að Excel-skjölum frá fjarskiptafyrirtækjum þar sem heimilisföng væru tiltekin.…

    02. nóv. 2020Forsætisráðuneytið

    Grænbók um framtíðarumhverfi kjarasamninga og vinnumarkaðsmála

    Nefnd um gerð grænbókar um kjarasamninga og vinnumarkaðsmál er ætlað að skila tillögum sínum til forsætisráðherra í lok apríl á næsta ári svo unnt verði að taka hana til umfjöllunar fyrir þinglok.

    30. okt. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19

    Skýrsla um upplýsingaóreiðu og COVID-19 birt á vef Stjórnarráðsins

    Skýrsla vinnuhóps þjóðaröryggisráðs um upplýsingaóreiðu og COVID-19 sem settur var á laggirnar í apríl 2020 liggur nú fyrir.

    28. okt. 2020Forsætisráðuneytið

    Norðurlöndin vilja grænan efnahagsbata

    Fjárfestingar eiga að hraða grænni umbreytingu og þjóna loftslagsmarkmiðum Parísarsáttmálans. Þetta er meðal þess sem forystufólk Norðurlandanna samþykkti í sameiginlegri yfirlýsingu á N8 fundi sínum í dag sem haldinn var í tengslum við þing Norðurlandaráðs.

    27. okt. 2020Forsætisráðuneytið

    Fjarfundir í stað hefðbundins Norðurlandaráðsþings

    Norrænir þjóðarleiðtogar funduðu með forsætisnefnd Norðurlandaráðs í dag og ræddu svo áhrif COVID-19 við framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna á fundi síðdegis.

    27. okt. 2020Forsætisráðuneytið

    Ráðherraumræður um heimsfaraldurinn með framkvæmdastjóra SÞ

    Leiðtogar Norðurlandanna og fulltrúar Norðurlandaráðs ræða um áhrif COVID-19 faraldursins á Norðurlönd, samstarf þeirra og alþjóðlegt samstarf á sameiginlegum fundi með Antónió Guterres, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna í dag.

    24. okt. 2020Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Fyrsta rannsókn á launamun karla og kvenna frá því að lög um jafnlaunavottun tóku gildi

    Forsætisráðuneytið undirritaði í dag samning við Hagstofu Íslands um að gera rannsókn á launamun karla og kvenna.

    22. okt. 2020Forsætisráðuneytið

    Mikill áhugi á Barnasáttmála

    Mikill áhugi er á meðal stofnana og ráðuneyta á að taka næstu skref í innleiðingu Barnasáttmálans, samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, samkvæmt nýrri könnun sem Salvör Nordal, umboðsmaður barna, kynnti fyrir Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, í dag.

    17. okt. 2020Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Svandís Svavarsdóttir tekur aftur til starfa

    Svandís Svavarsdóttir, sem fór í leyfi fyrir rétt rúmri viku, tekur aftur til starfa sem heilbrigðisráðherra í dag

    09. okt. 2020Forsætisráðuneytið, Stjórnskipan og þjóðartákn, Lög og réttur

    Feneyjanefndin gefur álit á stjórnarskrárfrumvörpum

    Feneyjanefnd Evrópuráðsins hefur í dag birt álit sitt á fjórum frumvörpum til stjórnarskipunarlaga, sem óskað var eftir af Íslands hálfu í vor.

    09. okt. 2020Forsætisráðuneytið

    Stefna um gervigreind í mótun

    Stefnumörkun um gervigreind, sem miðar að því að hámarka samfélagslegan og efnahagslegan bata og lágmarka kostnað og áhættu er nú til vinnslu innan forsætisráðuneytisins.

    09. okt. 2020Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Áhrif sóttvarna á þróun COVID-19 faraldurs rannsökuð

    Ríkisstjórn Íslands ákvað á fundi sínum í morgun að veita fimm milljónir króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til rannsóknar á áhrifum sóttvarnaaðgerða á þróun COVID-19 faraldursins.

    09. okt. 2020Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Heimildarmynd um heimkomu handritanna

    Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að veita eina milljón króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til gerðar heimildarmyndar um heimkomu handritanna.

    07. okt. 2020Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Gegnir störfum heilbrigðisráðherra

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, gegnir störfum heilbrigðisráðherra í fjarveru Svandísar Svavarsdóttur, sem er í leyfi til 15. október.

    06. okt. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    930/2020. Úrskurður frá 25. september 2020

    Í málinu kærði fréttastofa synjun Verðlagsstofu skiptaverðs á beiðni um aðgang að Excel-skjali og minnisblaði sem varða athugun stofnunarinnar vegna Samherja hf. Stofnunin vísaði til þess að um vinnugögn væri að ræða, sbr. 5. tölul. 6. gr., sbr. 8. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á þær skýringar, með vísan til þess að liðin væru átta ár frá því að gögnin urðu til, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 12. gr. upplýsingalaga. Synjun Verðlagsstofu skiptaverðs byggðist einnig á því að í gögnunum kynnu að felast upplýsingar um mikilvæga virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni fyrirtækja og annarra lögaðila, sbr. 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi að gögnin geymdu ekki slíkar upplýsingar og var því lagt fyrir stofnunina að veita aðgang að gögnunum.

    06. okt. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    929/2020. Úrskurður frá 25. september 2020

    Kærð var afgreiðsla Ríkiskaupa á beiðni um aðgang að tilboðsgögnum. Kærandi hafði lagt inn tilboð í leiguhúsnæði fyrir Vegagerðina en annað tilboð hafði verið samþykkt. Upphafleg synjun Ríkiskaupa á beiðni kæranda byggðist á því að gögnin vörðuðu viðskiptahagsmuni annars fyrirtækis, sbr. 9. gr. upplýsingalaga og að viðkomandi fyrirtæki legðist gegn afhendingu gagnanna. Við meðferð málsins kom hins vegar fram að gögnin væru ekki fyrirliggjandi hjá Ríkiskaupum heldur hefðu þau verið afhent Framkvæmdasýslu ríkisins. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi beiðni kæranda ekki hafa hlotið þá efnislegu meðferð á lægra stjórnsýslustigi sem nefndinni er fært að endurskoða og lagði því fyrir Ríkiskaup að taka málið til nýrrar meðferðar.

    06. okt. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    928/2020. Úrskurður frá 25. september 2020

    Kærð var synjun ríkislögmanns á beiðni kæranda, blaðamanns, um aðgang að stefnum þriggja félaga gegn íslenska ríkinu. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á það með ríkislögmanni að ákvæði laga um meðferð einkamála giltu um stefnur í dómsmálum í vörslu embættisins. Var komist að þeirri niðurstöðu að upplýsingalög giltu um afgreiðslu embættisins á beiðninni. Synjun ríkislögmanns byggðist auk þess á því að upplýsingar í stefnunum væru undanþegnar upplýsingarétti þar sem þær vörðuðu mikilvæga virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni stefnenda, sbr. 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi ríkislögmann ekki hafa lagt fullnægjandi mat á efni stefnanna í því sambandi. Var því ákvörðun ríkislögmanns felld úr gildi og lagt fyrir hann að taka málið til nýrrar meðferðar.

    06. okt. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    927/2020. Úrskurður frá 25. september 2020

    Í málinu var kærð afgreiðsla nefndar um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á beiðni kæranda um aðgang að gögnum sem fylgdu umsókn um endurgreiðslu vegna framleiðslu tiltekinnar kvikmyndar. Nefndin taldi umbeðin gögn varða mikilvæga virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni framleiðandans og því undanþegin upplýsingarétti almennings, sbr. 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst á það með nefndinni að hluti gagnanna væri undanskilinn upplýsingarétti á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga en taldi þó að kærandi ætti rétt til aðgangs að þeim gögnum sem ekki yrðu felld undir undanþáguákvæðið.

    06. okt. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    926/2020. Úrskurður frá 25. september 2020

    Deilt var um synjun ríkiskattstjóra á beiðni Neytendasamtakanna um upplýsingar um það hvort tiltekið fyrirtæki hefði greitt sektir sem Neytendastofa lagði á það. Ríkisskattstjóri byggði synjunina á því að gögnin væru undiropin sérstakri þagnarskyldu á grundvelli laga nr. 150/2019 um innheimtu opinberra skatta og gjalda, laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt en úrskurðarnefndin féllst ekki á það að þagnarskylduákvæðin giltu um umbeðnar upplýsingar. Ákvörðun ríkisskattstjóra byggði einnig á því að gögnin hefðu að geyma upplýsingar um virka fjárhagshagsmuni fyrirtækis sem sanngjarnt og eðlilegt væri að leynt færu, sbr. 2. mgr. 9. gr. upplýsingalaga.…

    02. okt. 2020Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Opinbert hlutafélag stofnað um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu

    Ríkið og sex sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes, hafa gengið frá stofnun opinbers hlutafélags um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

    02. okt. 2020Forsætisráðuneytið

    Óbreytt landamæraskimun til 1. desember

    Ríkisstjórnin hefur ákveðið óbreytt fyrirkomulag skimana vegna COVID-19 á landamærum til 1. desember, nema að tilefni gefist til endurskoðunar fyrr.

    02. okt. 2020Forsætisráðuneytið

    Stefnuræða forsætisráðherra og þingmálaskrá

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, flutti í gær stefnuræðu ríkisstjórnarinnar við setningu 151. löggjafarþings.

    01. okt. 2020Dómsmálaráðuneytið, Covid-19, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpar afmælisfund fjórðu ráðstefnu SÞ um málefni kvenna

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpar 25 ára afmælisfund fjórðu ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um málefni kvenna í dag. Á ráðstefnunni, sem haldin var í Peking í september 1995 var samþykkt pólitísk yfirlýsing og framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum (Pekingáætlunin).

    30. sep. 2020Rit og skýrslur, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Forsætisráðuneytið

    Vísinda- og tæknistefna 2020-2022

    september 2020 / Forsætisráðuneytið Vísinda- og tæknistefna 2020-2022 Vísinda- og tæknistefna 2020-2022

    30. sep. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19

    Menntanet sett á fót á Suðurnesjum

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær að leggja til að komið yrði á fót menntaneti á Suðurnesjum í samstarfi við menntastofnanir á svæðinu til að efla náms- og starfsúrræði fyrir atvinnuleitendur.

    30. sep. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Heimurinn eftir COVID-19

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ræddi áskoranir heimsins í kjölfar kórónuveirufaraldursins, á rafrænu alþjóðlegu málþingi sem framtíðarnefnd Alþingis stóð fyrir í samstarfi við forsætisráðuneytið í morgun.

    29. sep. 2020Forsætisráðuneytið

    Frumvörp sem tryggja réttindi trans og intersex fólks og barna sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, lagði fram þrjú frumvörp í ríkisstjórn í morgun sem tryggja eiga rétt fólks með kynhlutlausa skráningu og trans fólks auk barna sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni.

    29. sep. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19

    Átta nýjar stöðugleikaaðgerðir

    Í kjölfar samtala við aðila vinnumarkaðarins á almennum vinnumarkaði síðustu daga kynnir ríkisstjórnin átta aðgerða pakka sem ætlað er að stuðla að félagslegum og efnahagslegum stöðugleika í tengslum við Lífskjarasamninginn.

    28. sep. 2020Forsætisráðuneytið

    Ríkisráðsfundur á Bessastöðum

    Frá ríkisráðsritara. Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman til reglulegs fundar á Bessastöðum í dag, mánudaginn 28. september, kl. 15.00.

    27. sep. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19

    Alþjóðlegt, rafrænt málþing um heiminn eftir COVID-19

    Forsætisráðherra og framtíðarnefnd boða til málþings um breytingar, áskoranir og tækifæri á ýmsum sviðum samfélagsins eftir COVID-19. Þekktir, alþjóðlegir fyrirlesarar taka þátt í málþinginu sem fer fram með rafrænum hætti miðvikudaginn 30. september.

    25. sep. 2020Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Ísland tekur á móti sýrlenskum barnafjölskyldum frá Lesbos

    Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt að Ísland taki á móti flóttafólki frá Lesbos á Grikklandi, með áherslu á sýrlenskar fjölskyldur í viðkvæmri stöðu. Fjölskyldurnar bjuggu áður í flóttamannabúðunum Moria sem eyðilögðust í eldsvoða fyrr í mánuðinum.

    25. sep. 2020Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Fjármagni beint í sjálfbæra uppbyggingu

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, undirritaði í dag fyrir hönd ríkisstjórnarinnar viljayfirlýsingu ásamt meginhluta íslensks fjármálamarkaðar þar sem lýst er vilja til að nýta fjármagn til að viðhalda sjálfbærri þróun.

    25. sep. 2020Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Valdheimildir rýmri eftir því sem hættan er meiri

    Þeim mun smitnæmari og hættulegri sem smitsjúkdómur er, því víðara svigrúm hafa stjórnvöld til að bregðast við til verndar lífi og heilsu manna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í álitsgerð Dr. Páls Hreinssonar sem hann hefur tekið saman að beiðni stjórnvalda um valdheimildir sóttvarnalæknis og heilbrigðisráðherra til opinberra sóttvarnaráðstafana í ljósi meginreglna stjórnsýsluréttar og mannréttindaákvæða.

    24. sep. 2020Forsætisráðuneytið

    Stjórnsýslulögin 25 ára – safn fræðilegra ritgerða birt á vefsvæði Stjórnarráðsins

    Árið 2019 var aldarfjórðungur liðinn frá því stjórnsýslulög nr. 37/1993 tóku gildi. Fólu lögin í sér mikla réttarbót fyrir almenning enda fyrsta heildstæða löggjöf hér á landi um málsmeðferð í stjórnsýslunni.

    22. sep. 2020Rit og skýrslur, Lög og réttur, Forsætisráðuneytið

    Stjórnsýslulögin 25 ára

    Ritið Stjórnsýslulögin 25 ára er gefið út í tilefni af því að hinn 1. janúar 2019 var aldarfjórðungur liðinn frá gildistöku stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Fólu lögin í sér mikla réttarbót fyrir almenning enda fyrsta heildstæða löggjöf hér á landi um málsmeðferð í stjórnsýslunni.

    22. sep. 2020Forsætisráðuneytið

    Rafrænt allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpaði 75 ára afmælisfund Sameinuðu þjóðanna í gær með rafrænum hætt eins og nær allir þjóðarleiðtogar heims.

    • First
    • Prev
    • 33
    • 34
    • 35
    • 36
    • 37
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband