30. ágú. 2024Ræður og greinar, Dómsmálaráðuneytið
Ræða á flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins
30 ágúst 2024
/
Dómsmálaráðuneytið
Ræða á flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins
Kæru félagar og vinir,
Saga Sjálfstæðisflokksins er saga framfara, saga frelsis og þjóðar sem braust úr örbirgð og varð meðal fremstu velferðarsamfélaga heimsins.
Þegar Jón Þorláksson, fyrsti formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði árið 1930 að einstaklings- og atvinnufrelsi væru höfuðþættir í stefnu okkar, var hann að leggja grunn að þeim gildum sem hafa gert Ísland að því sem það er í dag. En varaði okkur líka við þeim öflum sem vilja kúga einstaklinginn, fjötra frelsi hans og taka af honum sjálfsákvörðunarréttinn