07. apr. 2020Úrskurðir um sjávarútveg og fiskeldi, Úrskurðir, Atvinnuvegaráðuneytið
Kærð ákvörðun Fiskistofu um skriflega áminningu- Úrskurður kveðinn upp 7. apríl 2020
Stjórnsýslukæra. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið vísar til stjórnsýslukæru [A], lögmanns, fyrir hönd [B ehf.], dags. 7. nóvember 2018, þar sem kærð er ákvörðun Fiskistofu, dags. 15. október 2018, um að veita kæranda skriflega áminningu, sbr. 24. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, vegna brota gegn 3. mgr. 18. gr. laga nr. 116/2006, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Ákvörðunin hefur ítrekunaráhrif í tvö ár, sbr. 19. gr. laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar.