01. nóv. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið
Gott að eldast: Starfshópur um eflingu og þróun dagdvala á landsvísu
Willum Þór Þórsson hefur skipað starfshóp til að vinna að framgangi aðgerðar A.3 í áætluninni Gott að eldast sem fjallar um eflingu og þróun dagdvala á landsvísu. Áformað er að gera fleirum kleift að nýta dagdvalarþjónustu, m.a. með öflugu samstarfi milli dagdvala og heimaþjónustu sveitarfélaga. Markmiðið er að koma sem best til móts við þarfir eldra fólks sem býr heima og fjölskyldur þess, sem eykur möguleika einstaklinganna á að búa lengur heima í stað þess að flytja á hjúkrunarheimili.