Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2201–2250 af 3245
    Raða eftir:
    26. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Nýr styrktarflokkur til að hvetja fyrirtæki til þátttöku í þróunarsamvinnu

    Í dag verður opnað fyrir umsóknir um Þróunarfræ, sem mun veita fyrirtækjum og einstaklingum forkönnunarstyrki til verkefna á sviði þróunarsamvinnu, einkum með tilliti til nýsköpunar á tímum COVID-19. Um er að ræða samstarfsverkefni Samstarfssjóðs við atvinnulíf um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna á vegum utanríkisráðuneytisins og Tækniþróunarsjóðs á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sem leggja hvor um sig allt að 50 milljónir króna í samstarfið. Umsýsla er á höndum Tækniþróunarsjóðs, en útfærsla styrkjanna verður byggð á styrkjaflokknum FRÆ.

    26. feb. 2021Utanríkisráðuneytið

    Guðlaugur Þór opnaði fund Útflutnings- og markaðsráðs

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra opnaði fund Útflutnings- og markaðsráðs í gær sem fór fram á Hilton Reykjavík Nordica. Í ávarpi sínu undirstrikaði ráðherra mikilvægi undirbúningsvinnu undanfarinna mánaða við að koma útflutningsgreinunum aftur á skrið.

    25. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Brexit, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál, Heimasendiherrar

    Fundað um fríverslunarviðræður við Bretland

    Staða og horfur í fríverslunarviðræðum Bretlands og Íslands, Noregs og Liechtenstein voru efst á baugi á fjarfundi ráðherra utanríkisviðskipta þessara ríkja í dag. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók þátt í fundinum fyrir Íslands hönd.

    25. feb. 2021Utanríkisráðuneytið

    Ráðstefna um plastmengun á norðurslóðum

    Ríkisstjórn Íslands og Norræna ráðherranefndin standa fyrir alþjóðlegri ráðstefnu um plastmengun á norðurslóðum dagana 2.-9. mars næstkomandi. Megin tilgangur ráðstefnunnar er að varpa ljósi á fyrirliggjandi þekkingu á plastmengun í norðurhöfum, en einnig verður vikið að aðgerðum til að draga úr plastmengun í sjó. Um hundrað sérfræðingar víðsvegar að munu kynna niðurstöður úr nýlegum rannsóknum og kynna upplýsingar um ástand þessara mála á hafsvæðum norðurslóða.

    24. feb. 2021Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherra ítrekar mikilvægi fjölþjóðlegrar samvinnu

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, tók í dag þátt í fjarfundi ríkjabandalags um fjölþjóðasamvinnu (Alliance for Multilateralism) í tengslum við fundi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, sem nú stendur yfir í Genf.

    24. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Fjarskipti, Öryggis- og varnarmál, Samgöngur og fjarskipti

    Tillaga um útboð á ljósleiðaraþráðum Atlantshafsbandalagsins

    Starfshópur utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra leggur til að hafinn verði formlegur undirbúningur útboðs á tveimur af þremur ljósleiðaraþráðum Atlantshafsbandalagsins á Íslandi í þágu samkeppni á fjarskiptamarkaði, þjóðaröryggis og varnarhagsmuna. Skýrsla starfshópsins var kynnt á blaðamannafundi í utanríkisráðuneytinu í morgun.

    24. feb. 2021Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Ljósleiðaramál og útboð ljósleiðaraþráða

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, skipaði í fyrra fimm manna starfshóp, undir forystu Haraldar Benediktssonar alþingismanns, um ljósleiðaramálefni, útboð ljósleiðaraþráða Atlantshafsbandalagsins og tengd málefni. Starfshópurinn skyldi gera heildstæða úttekt og mat á ljósleiðaramálum á Íslandi með tilliti til þjóðaröryggis og þjóðréttarlegra skuldbindinga Íslands, efna til samráðs við Atlantshafsbandalagið um hugsanlega hagnýtingu á aukagetu ljósleiðarakerfisins bandalagsins og leggja grunn að útboðsgögnum.Starfshópurinn hefur nú skilað skýrslu sem ber yfirskriftina Ljósleiðaramál og útboð ljósleiðaraþráða.

    24. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Annað, Þróunarsamvinna, WFP, Malaví

    Ísland veitir neyðaraðstoð í Malaví

    Ísland veitir Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) í Malaví 26 milljónir króna til að bregðast við neyðarástandi vegna COVID-19. Með stuðningi Íslands setur WFP upp skimunar- og greiningaraðstöðu við landamærastöðvar Malaví og Sambíu og reisir sex bráðabirgðaskýli við sjúkrahús sem nýtast sem rannsóknarstofur og legudeildir fyrir COVID-19 smitaða.

    23. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Covid-19, Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti

    Guðlaugur Þór ávarpaði mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra varaði við því að heimsfaraldurinn væri notaður sem átylla til að skerða frelsi og borgaraleg réttindi í ávarpi sínu í mannréttindarráði Sameinuðu þjóðanna í dag. Hann fagnaði sérstaklega ákvörðun Bandaríkjastjórnar að gerast aftur virkur þátttakandi í starfi mannréttindaráðsins. Ekki væri um gallalausa stofnun að ræða en einmitt þess vegna þyrftu lýðræðisríki að vinna að umbótum á mannréttindaráðinu og halda á lofti frelsi og mannréttindum.

    22. feb. 2021Utanríkisráðuneytið

    Ráðherra fagnar áhuga Grænlendinga á aukinni samvinnu

    Tvíhliða samskipti Íslands og Grænlands og niðurstöður skoðanakönnunar sem gefa til kynna að 90% Grænlendinga styðji aukna samvinnu við Ísland voru á meðal umræðuefna í opnunarávarpi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra á rafrænum fundi Hringborðs norðurslóða - Arctic Circle í dag.

    19. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Annað, Föstudagspóstur

    Föstudagspósturinn 19. febrúar 2021

    Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul. febrúar 2021 / Utanríkisráðuneytið Föstudagspósturinn 19

    18. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál

    Guðlaugur Þór tók þátt í fjarfundi varnarmálaráðherra

    Fælingar- og varnarviðbúnaður Atlantshafsbandalagsins, styrking pólitískrar samvinnu og samheldni bandalagsríkjanna auk málefna Afganistans og Íraks voru meðal umræðuefna á tveggja daga fjarfundi varnarmálaráðherra bandalagsins sem lauk í dag. Var þetta fyrsti ráðherrafundur bandalagsríkja eftir að ný ríkisstjórn tók við stjórnartaumunum í Bandaríkjunum.

    15. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Utanríkismál

    Ólögmætum fangelsunum á erlendum ríkisborgurum andæft

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, tók í dag þátt í fjarfundi á vegum kanadískra stjórnvalda um ólögmæta fangelsisvistun á erlendum ríkisborgurum í pólitískum tilgangi.

    13. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Ísland staðfestir samning Evrópuráðsins um aðgang að opinberum skjölum

    Ragnhildur Arnljótsdóttir, fastafulltrúi Íslands hjá Evrópuráðinu, tilkynnti framkvæmdastjórn Evrópuráðsins þann 10. febrúar síðastliðinn að Ísland hafi nú staðfest samning um aðgang að opinberum skjölum (e. Council of Europe Convention on Access to Official Documents, Tromsø-Convention).

    12. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Annað, Föstudagspóstur

    Föstudagspósturinn 12. febrúar 2021

    Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul. febrúar 2021 / Utanríkisráðuneytið Föstudagspósturinn 12

    12. feb. 2021Utanríkisráðuneytið

    Ráðherra á viðburði um samskipti Íslands og Bandaríkjanna

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók í dag þátt í sérstökum viðburði um samskipti Íslands og Bandaríkjanna sem samtökin Meridian International Center í Washington DC stóðu fyrir. Lagði ráðherra áherslu á einstakt samband Íslands og Bandaríkjanna sem grundvallaðist á sameiginlegum gildum og hagsmunum og ætti rætur í tvíhliða öryggis- og varnarsamstarf ríkjanna.

    12. feb. 2021Annað, Brussel-vaktin, Utanríkisráðuneytið

    Tökin hert á ytri og innri landamærum

    Sendiráðið í Brussel fylgist náið með því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

    11. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Þrjátíu ár frá viðurkenningu Íslands á sjálfstæði Litáens

    Í dag eru þrjátíu ár liðin frá því að Ísland viðurkenndi fyrst ríkja sjálfstæði Litáens eftir lok kalda stríðsins. Af því tilefni færði Inga Minelgaité, kjörræðismaður Litáens á Íslandi, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, blóm og þakkir.

    11. feb. 2021Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherrar Norðurlandanna ræddu loftslagmál á árlegri málstofu

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók í gær þátt í málstofu um loftslagsmál, Hanalys 2021, með öðrum utanríkisráðherrum Norðurlandanna. Finnland skipulagði málstofuna en þeir fara um þessar mundir með formennsku í norrænni samvinnu. Ráðstefnumiðstöðin Hanaholmen í Helsinki sá um framkvæmd hennar á netinu.

    08. feb. 2021Utanríkisráðuneytið

    Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) taka við rekstri Jarðhitaskólans

    Í dag var undirritaður nýr þjónustusamningur GRÓ – þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu og Íslenskra orkurannsókna (ÍSOR) um rekstur Jarðhitaskólans, en Jarðhitaskólinn er einn fjögurra skóla GRÓ.

    06. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Borgaraþjónusta, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór ræddi við utanríkisráðherra Pakistans

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra ræddi nú síðdegis við Makhdoom Shah Mahmood Qureshi, utanríkisráðherra Pakistans, vegna leitarinnar að fjallgöngumanninum John Snorra Sigurjónssyni og samferðamönnum hans. Mál hans er nú til meðferðar hjá borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins

    05. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Annað, Föstudagspóstur

    Föstudagspósturinn 5. febrúar 2021

    Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul. febrúar 2021 / Utanríkisráðuneytið Föstudagspósturinn 5

    05. feb. 2021Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Undirbúningur hafinn að stofnun Norðurslóðaseturs á Íslandi

    Ríkisstjórnin hefur ákveðið að skipa nefnd um undirbúning að stofnun og byggingu Norðurslóðaseturs í Reykjavík sem yrði kennt við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrum forseta Íslands.

    03. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór ávarpaði Arctic Frontiers-norðurslóðaráðstefnuna

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra lagði áherslu á mikilvægi sjálfbærni þegar hann flutti opnunarávarp og tók þátt pallborðsumræðum á ráðstefnunni Arctic Frontiers sem fram fór í dag.

    03. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Lýsir yfir djúpstæðum vonbrigðum vegna dóms yfir Navalní

    Guðlaugur Þór Þórðarsson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra lýsir yfir miklum vonbrigðum vegna dóms yfir rússneska stjórnarandstæðingnum Alexei Navalní og skorar á rússnesk stjórnvöld að láta hann lausan. Fulltrúar Íslands hjá Evrópuráðinu og Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE) hafa tekið undir gagnrýni á framgöngu rússneskra stjórnvalda gegn friðsömum mótmælendum.

    02. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Fjölsóttur fundur utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra með erlendum sendiherrum

    Hátt í eitt hundrað fulltrúar erlendra ríkja með fyrirsvar gagnvart Íslandi tóku þátt í fjarfundi sem Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra stóð fyrir í dag. Nýútkomnar skýrslur um utanríkisviðskipti og samstarf við Grænland voru þar efst á baugi.

    02. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál, Heimasendiherrar

    Ráðherrar ræddu tvísköttunarsamning Íslands og Ástralíu

    Viðræður um tvísköttunarsamning við Ástrala og gerð fýsileikakannanar vegna fríverslunarsamnings á milli EFTA og Ástralíu voru efst á baugi á símafundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, og Dan Tehan, viðskiptaráðherra Ástralíu í morgun.

    01. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Heimasendiherrar

    Þrjátíu ára sendiherraafmæli Sigríðar Snævarr

    Þrjátíu ár eru í dag síðan Sigríður Snævarr varð sendiherra Íslands í Stokkhólmi og varð þar með fyrst íslenskra kvenna til að taka við sendiherraembætti.

    29. jan. 2021Annað, Brussel-vaktin, Utanríkisráðuneytið

    Óvissa vegna nýrra afbrigða veirunnar

    Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul. janúar 2021 / Utanríkisráðuneytið Óvissa vegna nýrra afbrigða veirunnar Sendiráðið í Brussel fylgist náið með því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins

    29. jan. 2021Annað, Brussel-vaktin, Utanríkisráðuneytið

    Óvissa vegna nýrra afbrigða veirunnar

    NOTE: This article is more than 5 years old. janúar 2021 / Óvissa vegna nýrra afbrigða veirunnar Sendiráðið í Brussel fylgist náið með því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins

    28. jan. 2021Utanríkisráðuneytið, Annað, Fjölþjóðastofnanir, Þróunarsamvinna, Alþjóðabankinn

    Aukin fjármögnun frá einkageiranum mikilvæg fyrir uppbyggingu í kjölfar heimsfaraldurs

    Áskoranir tengdar COVID-19 og djúpstæð efnahags- og félagsleg áhrif heimsfaraldursins á þróunarríki voru ofarlega á baugi á árlegum tveggja daga fjarfundi kjördæma Norðurlanda og Eystrasaltsríkja hjá fjölþjóðlegum þróunarbönkum. Samhljómur var um mikilvægi aukinnar fjármögnunar fyrir græna og bætta enduruppbyggingu í kjölfar faraldursins en einnig voru skulda-, loftslags- og orkumál áberandi umræðuefni á fundinum.

    26. jan. 2021Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn, Sendiskrifstofa, Utanríkisráðuneytið

    Sendiráðið stuðlar að því að efla tvíhliða samstarf við Rúmeníu

    Helga Hauksdóttir, sendiherra Íslands, tók á dögunum þátt í fjarfundi sameiginlegu tvíhliða nefndar uppbyggingarsjóðsins fyrir Rúmeníu þar sem rætt var um tvíhliða verkefni sjóðsins með rúmenskum aðilum.

    25. jan. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn, Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Íslensk fyrirtæki á útboðsþingi Sameinuðu þjóðanna

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, áréttaði mikilvægi alþjóðasamvinnu á tímum heimsfaraldurs á tveggja daga rafrænu útboðsþingi Sameinuðu þjóðanna sem hófst í morgun. Sjö íslensk fyrirtæki taka þátt í þinginu og kynna vörur sínar og þjónustu fyrir innkaupadeildum Sameinuðu þjóðanna.

    21. jan. 2021Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Skýrsla Grænlandsnefndar utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra komin út

    Grænlandsnefnd​ utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra hefur skilað af sér ítarlegri skýrslu með tillögum um aukið samstarf Grænlands og Íslands á nýjum norðurslóðum.​ Ráðherra kynnti utanríkisráðherra Grænlands skýrsluna í gær.

    21. jan. 2021Rit og skýrslur, Utanríkisráðuneytið

    Samstarf Grænlands og Íslands á nýjum Norðurslóðum

    Samstarf Grænlands og Íslands á nýjum Norðurslóðum. Tillögur Grænlandsnefndar utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.

    20. jan. 2021Utanríkisráðuneytið

    Guðlaugur Þór á ráðherrafundi um samspil matvæla, orku og loftslagsbreytinga

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, tók í dag þátt í sameiginlegum ráðherrafundi Sameinuðu þjóðanna og Alþjóðastofnunarinnar um endurnýjanlega orku (International Renewable Energy Agency, IRENA) um samspil matvæla, orku og loftslagsbreytinga.

    19. jan. 2021Utanríkisráðuneytið, Heimasendiherrar

    Vinnustofa um tækifæri og áskoranir hjá Uppbyggingarsjóði EES

    Um 100 manns víðs vegar að af landinu, úr atvinnulífi og stjórnsýslu, tóku þátt í stafrænni vinnustofu um tækifæri og áskoranir fyrir sveitarfélög og atvinnulíf hjá Uppbyggingarsjóði EES. Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands og utanríkisráðuneytið stóðu að vinnustofunni í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga, Íslandsstofu, Rannís og Orkustofnun.

    17. jan. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór lýsir yfir áhyggjum vegna handtöku Navalní

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra hefur lýst yfir áhyggjum af handtöku rússneska stjórnarandstæðingsins Alexei Navalní sem sneri aftur til Moskvu í dag eftir að hafa dvalið í Berlín frá því að honum var byrlað taugaeitur í ágústmánuði. Guðlaugur Þór birti yfirlýsingu sína á Twitter í kvöld.

    15. jan. 2021Utanríkisráðuneytið, Annað, Föstudagspóstur

    Föstudagspósturinn 15. janúar 2021

    Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul. janúar 2021 / Utanríkisráðuneytið Föstudagspósturinn 15

    15. jan. 2021Annað, Brussel-vaktin, Utanríkisráðuneytið

    Aðgangur að bóluefni í brennidepli

    Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul. janúar 2021 / Utanríkisráðuneytið Aðgangur að bóluefni í brennidepli Sendiráðið í Brussel fylgist náið með því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins

    15. jan. 2021Annað, Brussel-vaktin, Utanríkisráðuneytið

    Aðgangur að bóluefni í brennidepli

    NOTE: This article is more than 5 years old. janúar 2021 / Aðgangur að bóluefni í brennidepli Sendiráðið í Brussel fylgist náið með því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins

    15. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Skimunarskylda á landamærum

    Skimun á landamærum verður skylda frá og með deginum í dag en í ljósi alvarlegrar stöðu faraldursins víða um heim verður núverandi fyrirkomulag sóttvarna á landamærunum með tvöfaldri skimun og fimm daga sóttkví á milli framlengt til 1. maí.

    15. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Fyrirkomulag sóttvarna á landamærum frá 1. maí

    Þann 1. maí nk. verða tekin varfærin skref til afléttingar sóttvarnaraðgerða á landamærum sem taka munu mið af ástandi faraldursins á brottfararstað komufarþega. Þetta var ákveðið á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.

    12. jan. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Brexit, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar EFTA ríkjanna innan EES funduðu með Michel Barnier

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra stýrði utanríkisráðherrafundi EFTA-ríkjanna innan EES í dag þar sem fundað var með Michel Barnier, aðalsamningamanni ESB gagnvart Bretlandi.

    10. jan. 2021Annað, Brussel-vaktin, Utanríkisráðuneytið

    Samkomulag í höfn um víðtækar samstarfsáætlanir

    Að þessu sinni er fjallað um: • aðild að samstarfsáætlunum ESB • langþráða lausn varðandi BEREC – samstarfsvettvang stjórnvalda í fjarskiptum • aðild Íslands að EGNOS – sem styður við leiðsögu- og staðsetningarkerfi • ráðherrafundi um samgöngumál, orkumál og neytendavernd

    08. jan. 2021Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Afríka, Úganda, Utanríkismál

    Ísland aðili að áskorun um fjölmiðlafrelsi í Úganda

    Ísland hefur gerst aðili að tveimur yfirlýsingum þar sem skorað er á stjórnvöld í Úganda, mikilvægu samstarfsríki Íslands á sviði þróunarsamvinnu, að tryggja öryggi blaðamanna þar í aðdraganda kosninga. Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, segir nauðsynlegt að standa vörð um fjölmiðlafrelsi.

    06. jan. 2021Utanríkisráðuneytið, Covid-19, Evrópusamvinna, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Yfirgripsmikil skýrsla um utanríkisviðskipti Íslands komin út

    Skýrsla utanríkisráðuneytisins Áfram gakk! Utanríkisviðskiptastefna Íslands hefur verið gefin út. Skýrslan er afar yfirgripsmikil og tekur til allra hliða utanríkisviðskipta. Þar er meðal annars viðskiptastefna Íslands og annarra EFTA-ríkja borin saman við viðskiptastefnu Evrópusambandsins og sést þar að hlutfallslega eru hér á landi mun fleiri tollskrárnúmer sem bera engan almennan toll og að meðaltollur er töluvert lægri í samanburði við ESB. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra segir Íslendinga njóta góðs af því viðskiptafrelsi sem ríkir á Íslandi.

    06. jan. 2021Rit og skýrslur, Utanríkismál, Utanríkisviðskipti, Utanríkisráðuneytið

    Áfram gakk! Utanríkisviðskiptastefna Íslands

    Skýrslan Áfram gakk! Utanríkisviðskiptastefna Íslands er komin út. Skýrslan er afar yfirgripsmikil og tekur til allra hliða utanríkisviðskipta. Fjallað er um áhrif heimsfaraldursins á íslenskan útflutning, stöðu utanríkisviðskipta, gang mála innan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, fríverslunarsamskipti Íslands við EFTA-ríkin og ESB, fríverslunarsamninga EFTA og Íslands sem tryggja íslenskum útflytjendum betri aðgang að fjölda markaða um allan heim, auk þess sem finna má í skýrslunni ítarlegt yfirlit yfir alla helstu viðskiptasamninga Íslands.

    30. des. 2020Utanríkisráðuneytið, Mið-Austurlönd, WFP, Utanríkismál

    Viðbótarframlag vegna neyðarinnar í Jemen

    Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að veita Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) 40 milljón króna viðbótarframlag til neyðar- og matvælaaðstoðar í Jemen.

    30. des. 2020Utanríkisráðuneytið, Mið-Austurlönd, WFP, Utanríkismál

    Viðbótarframlag vegna neyðarinnar í Jemen

    Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að veita Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) 40 milljón króna viðbótarframlag til neyðar- og matvælaaðstoðar í Jemen.

    • First
    • Prev
    • 43
    • 44
    • 45
    • 46
    • 47
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband