01. jún. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Lyfjamál, Líf og heilsa, Norrænt samstarf
Fyrsta samnorræna lyfjaútboðið í augsýn
Undirbúningur að sameiginlegu útboði Danmerkur, Noregs og Íslands vegna kaupa á völdum lyfjum til notkunar á sjúkrahúsum er á lokastigi og stefnt að útboði í haust. Vonir eru bundnar við að með stærri markaði skapist samlegðaráhrif sem leiði til aukinnar hagkvæmni og lægra lyfjaverðs og tryggi betur fullnægjandi framboð lyfja hjá hlutaðeigandi þjóðum.