06. maí 2020Utanríkisráðuneytið, Fjölþjóðastofnanir, Íslensk frjáls félagasamtök, Þróunarsamvinna, UNHCR, WFP, Alþjóðabankinn
Utanríkisráðuneytið leggur fram 276 milljónir króna til þróunarríkja vegna heimsfaraldursins
Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að verja 276 milljónum króna til þróunarríkja vegna COVID-19 heimsfaraldursins. Framlagið deilist á milli stofnana Sameinuðu þjóðanna, Alþjóðabankans, Alþjóðaráðs Rauða krossins, Alþjóðasambands landsfélaga Rauða krossins og samstarfsþjóða Íslands í tvíhliða þróunarsamvinnu.