Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
• Verkefni
• Almannatryggingar og lífeyrir
• Almannaöryggi
• Atvinnuvegir
• Auðlindir
• Efnahagsmál
• Félags- og fjölskyldumál
• Fjarskipti
• Húsnæðis- og mannvirkjamál
• Líf og heilsa
• Kosningar
• Lög og réttur
• Mannauðsmál ríkisins
• Mannréttindi og jafnrétti
• Menningarmál
• Menntamál
• Neytendamál
• Opinber fjármál
• Persónuréttur
• Rekstur og eignir ríkisins
• Samgöngur
• Sjálfbært Ísland
• Skipulagsmál
• Stjórnskipan og þjóðartákn
• Sveitarstjórnir og byggðamál
• Trú og lífsskoðun
• Umhverfi og náttúruvernd
• Upplýsingatæknimál ríkisins
• Utanríkismál
• Útlendingar
• Vinnumál
• Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
• Öll verkefni
• Efst á baugi
• Fréttir
• Nýjast
• Fyrirspurnir frá Alþingi
• Fyrir fjölmiðla
• Eldri fréttir
• Gögn
• Rit og skýrslur
• Úrskurðir og álit
• Eyðublöð
• Stefnur og áætlanir
• Styrkir og sjóðir
• Hugtakasafn
• Lög og reglugerðir
• Málaskrár ráðuneyta
• Mælaborð
• Hönnunarstaðall
• Ráðuneyti
• Forsætisráðuneytið
• Atvinnuvegaráðuneytið
• Dómsmálaráðuneytið
• Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
• Fjármála- og efnahagsráðuneytið
• Heilbrigðisráðuneytið
• Innviðaráðuneytið
• Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
• Mennta- og barnamálaráðuneytið
• Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
• Utanríkisráðuneytið
• Sendiskrifstofur
• Samstarfsráðherra Norðurlanda
• Starfsfólk
• Stofnanir
• Nefndir
• Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
• Umbra
• Ríkisstjórn
• Skipan ríkisstjórnar
• Ríkisstjórnarfundir
• Stjórnarsáttmáli
• Ráðherranefndir
• Reglur um starfshætti
• Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
• Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
• Þingmálaskrá
• Ríkisráð
• Sögulegt efni
• Fyrir fjölmiðla
EN
• Verkefni
• Almannatryggingar og lífeyrir
• Almannaöryggi
• Atvinnuvegir
• Auðlindir
• Efnahagsmál
• Félags- og fjölskyldumál
• Fjarskipti
• Húsnæðis- og mannvirkjamál
• Líf og heilsa
• Kosningar
• Lög og réttur
• Mannauðsmál ríkisins
• Mannréttindi og jafnrétti
• Menningarmál
• Menntamál
• Neytendamál
• Opinber fjármál
• Persónuréttur
• Rekstur og eignir ríkisins
• Samgöngur
• Sjálfbært Ísland
• Skipulagsmál
• Stjórnskipan og þjóðartákn
• Sveitarstjórnir og byggðamál
• Trú og lífsskoðun
• Umhverfi og náttúruvernd
• Upplýsingatæknimál ríkisins
• Utanríkismál
• Útlendingar
• Vinnumál
• Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
• Öll verkefni
• Efst á baugi
• Fréttir
• Nýjast
• Fyrir fjölmiðla
• Eldri fréttir
• Fyrirspurnir frá Alþingi
• Gögn
• Rit og skýrslur
• Úrskurðir og álit
• Eyðublöð
• Stefnur og áætlanir
• Styrkir og sjóðir
• Hugtakasafn
• Lög og reglugerðir
• Málaskrár ráðuneyta
• Mælaborð
• Hönnunarstaðall
• Ráðuneyti
• Forsætisráðuneytið
• Atvinnuvegaráðuneytið
• Dómsmálaráðuneytið
• Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
• Fjármála- og efnahagsráðuneytið
• Heilbrigðisráðuneytið
• Innviðaráðuneytið
• Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
• Mennta- og barnamálaráðuneytið
• Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
• Utanríkisráðuneytið
• Sendiskrifstofur
• Samstarfsráðherra Norðurlanda
• Starfsfólk
• Stofnanir
• Nefndir
• Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
• Umbra
• Ríkisstjórn
• Skipan ríkisstjórnar
• Ríkisstjórnarfundir
• Stjórnarsáttmáli
• Ráðherranefndir
• Reglur um starfshætti
• Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
• Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
• Þingmálaskrá
• Ríkisráð
• Sögulegt efni
• Fyrir fjölmiðla
Close navigation
Efnisorð
Efnisorð

Ekkert fannst

Tegund
Tegund

Leita eftir efnisorðum

Sýnir 2701–2750 af 3887
Raða eftir:
30. sep. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

650/2016. Úrskurður frá 20. september 2016

Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að gögnum sem tollstjóri safnaði um hann við komu til landsins á Keflavíkurflugvelli. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál komst að þeirri niðurstöðu að umbeðin gögn lytu að rannsókn sakamáls í skilningi 1. mgr. 4. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 að teknu tilliti til hlutverks tollstjóra samkvæmt 4. mgr. 9. gr. lögreglulaga og 183. gr. tollalaga. Kæru var því vísað frá úrskurðarnefndinni.

30. sep. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

649/2016. Úrskurður frá 20. september 2016

Ríkisskattstjóri afturkallaði bindandi álit og fjarlægði það af vef embættisins. Kærandi krafðist aðgangs að álitinu en beiðninni var synjað. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að hið umbeðna gagn væri fyrirliggjandi hjá ríkisskattstjóra í skilningi 5. gr. upplýsingalaga. Ekki var fallist á að um vinnugagn væri að ræða þar sem það hafði verið birt öðrum og kæranda heimilaður aðgangur.

30. sep. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

648/2016. Úrskurður frá 20. september 2016

Kærð var synjun innanríkisráðuneytisins á beiðni kærenda um gögn um skilnað foreldra sinna. Um aðgang að gögnunum fór eftir lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014, sbr. 4. mgr. 4. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin tók fram að í málinu vægjust á annars vegar hagsmunir kærenda af því að fá afhent gögn um skilnað foreldra sinna, þar sem fram koma ýmsar upplýsingar um kærendur sjálfa, og  hins vegar sjónarmið um friðhelgi einkalífs foreldra þeirra, sem báðir eru látnir. Eins og á stóð taldi nefndin hagsmuni kærenda nægjanlega ríka til að heimila þeim aðgang að umbeðnum gögnum.

30. sep. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

647/2016. Úrskurður frá 20. september 2016

30. sep. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

646/2016. Úrskurður frá 20. september 2016

30. sep. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

645/2016. Úrskurður frá 20. september 2016

Einkahlutafélag kærði afgreiðslu Seðlabanka Íslands á beiðni um aðgang að gögnum um niðurstöðu bankans á ætluðum brotum annars á lögum nr. 87/1992 vegna greiðsla úr nauðasamningi. Kærandi hafði óskað eftir aðgangi að „öllum álitum, úrskurðum, túlkunum, tilmælum og hvaðeina sem bankinn hafi látið frá sér fara“ um heimildir til útgreiðslna úr nauðasamningi félagsins en einnig nánar tilgreindum gögnum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál komst að þeirri niðurstöðu að Seðlabankanum bæri að afgreiða fyrri beiðnina efnislega en kæru var vísað frá úrskurðarnefndinni um önnur gögn þar sem þau væru undirorpin sérstakri þagnarskyldu samkvæmt 1. mgr. 35. gr. laga nr. 36/2001 og 15. gr. laga nr. 87/1992.

30. sep. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

644/2016. Úrskurður frá 20. september 2016

Deilt var um rétt erlendra tryggingarfélaga til gagna um í vörslum Þjóðskjalasafns Íslands. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál staðfesti synjun safnsins á beiðni um aðgang að CAMELS-mati á Kaupþingi frá maí 2008, tölvubréf einstaklings til rannsóknarnefndar Alþingis og skjal frá Kaupthing Singer Friedlander, ýmist á grundvelli 1. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998, 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002 og 9. gr. upplýsingalaga. Fallist var á rétt kærenda til aðgangs að bréfi þáv. stjórnarformanni Kaupþings til forsætisráðherra frá apríl 2008.

20. sep. 2016Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Aðgerðaáætlun fyrir Vestfirði

Nefnd sem vann aðgerðaráætlun á sviði samfélags- og atvinnuþróunar fyrir Vestfirði hefur skilað ríkisstjórninni skýrslu. Nefndin leggur áherslu á að flýta þurfi uppbyggingu innviða á Vestfjörðum.

08. sep. 2016Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Hagsmunir Íslands á norðurslóðum

Mat á hagsmunum Íslands vegna norðurslóða var kynnt á fundi í háskólanum á Akureyri í dag, 8. september. Markmiðið með útgáfu hagsmunamatsins er að kortleggja helstu hagsmuni Íslands í margslungnu umhverfi norðurslóða. Má þar helst nefna alþjóðapólitísk og efnahagsleg tækifæri sem og áskoranir þeim tengdam – einkum er lúta að umhverfinu.

06. sep. 2016Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Umbótatillögur á skattkerfinu

Verkefnisstjórn um breytingar og umbætur á skattkerfinu hefur skilað af sér skýrslu til Samráðsvettvangs um aukna hagsæld um hvernig hægt sé að einfalda skattkerfið og gera það skilvirkara. Um er að ræða 27 tillögur sem snúa að breytingum á skattkerfinu í heild sinni.

05. sep. 2016Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Peningaútgáfa - valkostir í peningakerfum

Í dag var gefin út skýrslan Money Issuance – alternative monetary systems sem KPMG vann fyrir forsætisráðuneytið. Að því tilefni stóðu forsætisráðuneytið og KPMG fyrir ráðstefnu um efnið í morgun.

05. sep. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

643/2016. Úrskurður frá 29. ágúst 2016

Kærð var synjun lögreglustjórans í Vestmannaeyjum á beiðni um afrit af lögregluskýrslum og dagbók lögreglu. Kæru var vísað frá á grundvelli 1. mgr. 4. gr. upplýsingalaga þar sem fram kemur að lögin gilda ekki um rannsókn sakamála.

05. sep. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

642/2016. Úrskurður frá 29. ágúst 2016

Ritstjóri fjölmiðils kærði synjun lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á beiðni um netföng og vinnusímanúmer hjá starfsmönnum á ákærusviði. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri skylt að birta almenningi slíkar upplýsingar á grundvelli 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga og staðfesti synjun lögreglunnar.

05. sep. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

641/2016. Úrskurður frá 29. ágúst 2016

Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að gögnum í vörslum innanríkisráðuneytis um bálför ömmu sinnar. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að rétturinn ákvarðaðist af 14. gr. upplýsingalaga með vísan til þess að löggjöf gerði ráð fyrir aðkomu kæranda að ákvörðuninni sem umbeðin gögn fjölluðu um. Kærandi var talinn eiga ríkari hagsmuni af aðgangi en umsækjendur af því að gögn færu leynt og aðgangur veittur.

19. ágú. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

640/2016. Úrskurður frá 12. ágúst 2016

Deilt var um aðgang að gögnum sem vörðuðu gjafsóknarbeiðni fyrrum eiginkonu kæranda í dómsmáli á milli þeirra. Talið var að um rétt kæranda til aðgangs að gögnunum færi eftir 1. mgr. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Úrskurðarnefndin taldi hins vegar að réttur fyrrum eiginkonu kæranda til þess að efni gagnanna færi leynt, vægi þyngra en réttur kæranda til aðgangs og staðfesti synjun ráðuneytisins með vísan til 3. mgr. 14. gr. upplýsingalaga.

19. ágú. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

639/2016. Úrskurður frá 12. ágúst 2016

Kærð var synjun innanríkisráðuneytisins á afhendingu greinargerðar um fjárhagslegt samband ríkis og kirkju en gagnabeiðnin var reist á 5. gr. upplýsingalaga. Innanríkisráðuneytið bar því við að um væri að ræða gagn sem tekið hafi verið saman fyrir ráðherrafund og væri það því undanskilið aðgangi á grundvelli 1. tölul. 6. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin vísaði til þess að þótt greinargerðin bæri ekki skýrlega með sér að hafa sérstaklega verið tekin saman fyrir ráðherrafund hefði nefndin ekki forsendur til þess að draga skýringar ráðuneytisins í efa. Var því synjun ráðuneytisins staðfest.

19. ágú. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

638/2016. Úrskurður frá 12. ágúst 2016

Deilt var um aðgang Landverndar að samningi Landsnets hf. við PCC Bakka Silicon hf. um flutning raforku án útstrikana. Úrskurðarnefnd taldi aðgang að samningnum fara eftir lögum um upplýsingarétt um umhverfismál nr. 23/2006. Talið var að kærandi ætti rétt til aðgangs að upplýsingum er tengjast tímasetningum á afhendingu raforku með vísan til þess að hluti upplýsinganna væru þegar opinberar auk þess sem ekki yrði séð að þær vörðuðu mikilvæga viðskiptahagsmuni PCC sem til þess væru fallnar að valda tjóni yrði aðgangur veittur.…

19. ágú. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

637/2016. Úrskurður frá 12. ágúst 2016

19. ágú. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

636/2016. Úrskurður frá 12. ágúst 2016

Deilt var um rétt erlendra tryggingafélaga til aðgangs að gögnum í tveimur töluliðum um Landsbanka Íslands í vörslum Fjármálaeftirlitsins. Úrskurðarnefndin hefur áður fjallað um aðra töluliði beiðninnar en í þessu máli var skorið úr um rétt til aðgangs að gögnum um rannsóknir FME á bankanum og kærur til lögregluyfirvalda. Úrskurðarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að hugtakið „rannsókn“ væri ekki nægilega afmarkað í beiðni kærenda til að hún uppfyllti tilgreiningarreglu 1. mgr. 15. gr. upplýsingalaga. Þá væri FME óheimilt að veita upplýsingar um kærur til lögreglu á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga og þagnarskylduákvæði 1. mgr. gr. laga nr. 87/1998. Var kæru því vísað frá.

19. ágú. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

635/2016. Úrskurður frá 12. ágúst 2016

Í málinu var deilt um rétt A til afrits af öllum samningum sem Menntamálastofnun hafði gert við B á tilteknu tímabili um gerð námsefnis í tónmennt. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi A eiga rétt til aðgangs á grundvelli 14. gr. upplýsingalaga að samningum um efni sem A ætti höfundarétt að. Var réttur A til afrits af samningunum talinn ríkari en réttur B á því að efni samninganna yrði haldið leyndu. Kærandi var talinn eiga rétt til aðgangs að öðrum samningum við B á grundvelli 5. gr. upplýsingalaga. Ekki var talið að 9. gr. laganna stæði aðgangi í vegi. Var því fallist á rétt A til afrits af öllum samningum stofnunarinnar við B.

19. ágú. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

634/2016. Úrskurður frá 12. ágúst 2016

Deilt var um rétt erlendra tryggingafélaga til aðgangs að gögnum um Landsbanka Íslands í vörslum Fjármálaeftirlitsins. Úrskurðarnefndin hefur áður fjallað um aðra liði beiðninnar en í þessu máli var skorið úr um rétt til aðgangs að fundargerðum vegna vettvangsathugunar FME á bankanum í september 2007. Úrskurðarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að um væri að ræða upplýsingar sem féllu undir þagnarskylduákvæði 1. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998 og vísaði kæru frá.

09. ágú. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

633/2016. Úrskurður frá 29. júlí 2016

Deilt var um afhendingu þriggja samninga Reykjaneshafnar og Reykjanesbæjar við Thorsil ehf. Úrskurðarnefndin taldi samningana fjalla um umhverfismál í skilningi 3. tölul. 3. gr. laga um upplýsingarétt um umhverfismál nr. 23/2006 þar sem þeir lytu að þeirri ráðstöfun Reykjanesbæjar að leigja lóð undir kísilmálmsmiðju í bænum ásamt skyldum ráðstöfunum. Úrskurðarnefndin féllst ekki á að þær upplýsingar sem fram kæmu í samningunum vörðuðu svo mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni Thorsil ehf. að leynd um efni samninganna gengi framar lögbundnum rétti almennings til aðgangs að upplýsingunum. Var því fallist á rétt kæranda til aðgangs að samningunum á grundvelli 1. mgr. 5. gr. laga nr. 23/2006.

09. ágú. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

632/2016. Úrskurður frá 29. júlí 2016

Kærð var synjun Þingeyjarsveitar á afhendingu starfslokasamnings við fráfarandi skólastjóra. Leyst var úr málinu á grundvelli eldri upplýsingalaga nr. 50/1996 sbr. 4. mgr. 35. gr. laga nr. 140/2012. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál vísaði til þess að samkvæmt skýrri og fastmótaðri framkvæmd eldri upplýsingalaga hefðu 3. og 5. gr. laganna verið skýrðar svo að veita skuli aðgang að upplýsingum um föst launakjör opinberra starfsmanna, ráðningarsamningum og öðrum samningum sem geymdu upplýsingar um fastar greiðslur. Var það niðurstaða nefndarinnar að Þingeyjarskóla hafi verið óheimilt að synja kæranda um afhendingu starfslokasamningsins.

09. ágú. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

631/2016. Úrskurður frá 29. júlí 2016

Kærð var synjun grunnskóla á aðgangi að nafnlausu bréfi foreldra barna í bekk sonar kæranda til skólans. Í bréfinu voru að því er virðist frásagnir fjögurra barna af samskiptum við son kæranda. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að hagsmunir barnanna sem haft var eftir í bréfinu, af því að upplýsingar um líðan þeirra, tilfinningar og heilsu færu leynt, væru ríkari en þeir hagsmunir sem kærendur kynnu að hafa af aðgangi að bréfinu. Var því staðfest synjun skólans á afhendingu bréfsins með vísan til 3. mgr. 14. gr. upplýsingalaga.

09. ágú. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

630/2016. Úrskurður frá 29. júlí 2016

Í málinu var deilt um afgreiðslu Reykjavíkurborgar á beiðni um skýrslu um eineltisásakanir á hendur kæranda og tölvupóstsamskiptum sem tengdust málinu. Kærandi hafði fengið aðgang að hluta umbeðinna upplýsinga.  Úrskurðarnefnd um upplýsingamál staðfesti synjun Reykjavíkurborgar á afhendingu skýrslunnar án útstrikana með vísan til þess að hagsmunir skýrslugjafa af því að ekki væri heimilaður aðgangur að umræddum hluta skýrslunnar vægju þyngra en hagsmunir kæranda af því að fá aðgang að honum sbr. 3. mgr. 14. gr. upplýsingalaga. Hins vegar ætti kærandi rétt til aðgangs að tölvupóstsamskiptum er tengdust kvörtun um einelti án útstrikana með vísan til 1. mgr. 14. gr. upplýsingalaga og þess að kærandi væri aðili að tölvusamskiptunum.

09. ágú. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

629/2016. Úrskurður frá 29. júlí 2016

Kærð var synjun Isavia ohf. á beiðni kæranda um afrit af gögnum. Kæru var vísað frá úrskurðarnefndinni hvað varðar gögn í vörslum Isavia sem urðu til fyrir gildistöku upplýsingalaga, sbr. mgr. 35. gr. laganna. Þá var kæru vísað frá hvað varðar umbeðin gögn sem urðu til eftir 1. janúar 2013 með vísan til þess að gögnin væru ekki fyrirliggjandi sbr. 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga.

21. júl. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

628/2016. Úrskurður frá 6. júlí 2016

Endurmenntun Háskóla Íslands krafðist frestun réttaráhrifa úrskurðar úrskurðarnefndar um upplýsingamál nr. 622/2016 sem kveðinn var upp 7. júní 2016. Úrskurðarnefndin benti á að í úrskurðarframkvæmd nefndarinnar hefði verið lagt til grundvallar að með heimildarákvæði 1. mgr. 24. gr. upplýsingalaga væru fyrst og fremst höfð í huga tilvik þar sem í húfi séu tiltölulega mikilvægir hagsmunir, ekki síst hagsmunir einkaaðila, sem gætu verið skertir með óbætanlegum hætti ef veittur yrði aðgangur að gögnum með upplýsingum um þá, í andstöðu við ákvæði upplýsingalaga eins og þau kynnu síðar að verða skýrð af dómstólum. Úrskurðarnefndin taldi ekkert hafa komið fram í málinu sem gæti breytt mati nefndarinnar í máli því sem lauk með úrskurði nr.…

17. jún. 2016Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ávarp forsætisráðherra á Austurvelli 17. júní 2016

Ávarp forsætisráðherra, Sigurðar Inga Jóhannssonar, á Austurvelli 17. júní 2016.

16. jún. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

627/2016. Úrskurður frá 7. júní 2016

Í málinu kærði A meðferð Landsbankans hf. á áskorun um framlagningu gagna í einkamáli aðila. Kæru kæranda var vísað frá þar sem upplýsingalög taka ekki til Landsbankans sbr. auglýsing nr. 600/2013.

15. jún. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

625/2016. Úrskurður frá 7. júní 2016

A, blaðamaður, kærði ákvörðun utanríkisráðuneytisins um að synja um aðgang að upplýsingum um tvö erindi frá bandarískum stjórnvöldum um B. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi erindin falla undir ákvæði 1. mgr. 2. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Þar af leiðandi yrði réttur til aðgangs að gögnunum ekki byggður á upplýsingalögum nr. 140/2012, sbr. 1. mgr. 4. gr. laganna. Kæru var því vísað frá nefndinni.

15. jún. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

626/2016. Úrskurður frá 7. júní 2016

RÚV kærði synjun Samgöngustofu á beiðni um aðgang að skoðunarskýrslum tiltekins báts fyrir árin 2000 til 2015, bréfaskiptum og tölvupóstsamskiptum í tengslum við eftirlit á bátnum sem og upplýsingum um hugsanleg afskipti Samgöngustofu/Siglingastofnunar varðandi bátinn fyrir sama árabil. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál vísaði til þess að almenningur hefði ríka hagsmuni af því að geta fylgst með lögbundnu eftirliti með öryggi skipa og báta. Nefndin taldi hin umbeðnu gögn ekki falla undir sérstakrar þagnarskyldureglu Samgöngustofu skv. laga nr. 119/2012 þar sem í gögnunum væru ekki að finna mikilvægar rekstrar- og viðskiptaupplýsingar eftirlitsskyldra aðila. Þá taldi nefndin 9. gr. upplýsingalaga nr.…

15. jún. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

624/2016. Úrskurður frá 7. júní 2016

Kærð var afgreiðsla Akranesskaupstaðar á beiðni um upplýsingar í tengslum við breytingar á deiliskipulagi hafnarsvæðis á Akranesi. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki forsendur til þess að rengja þá fullyrðingu kaupstaðarins að kæranda hafi verið afhent öll þau gögn er lytu að deiliskipulagsbreytingunni. Þar sem ekki lá fyrir synjun stjórnvalds á beiðni til aðgangs að fyrirliggjandi gögnum var kæru kæranda vísað frá nefndinni.

15. jún. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

623/2016. Úrskurður frá 7. júní 2016

Viðskiptaráð Íslands kærði þá ákvörðun embættis tollstjóra að hafna beiðni um aðgang að upplýsingum um skiptingu tekna ríkisins vegna aðfluttra vara. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki ástæðu til að draga í efa að einu gögnin sem tollstjóri hefði undir höndum og féllu undir upplýsingabeiðni kæranda væru tollskjöl sem hefðu að geyma upplýsingar um aðflutningsgjöld sem íslenska ríkið innheimti af innfluttum vörum. Þá taldi úrskurðarnefndin engan vafa á því að tollskjölin væru háð sérstakri þagnarskyldu samkvæmt 1. mgr. 188. gr. tollalaga nr. 88/2005. Var því kæru Viðskiptaráðs vísað frá nefndinni.

15. jún. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

622/2016. Úrskurður frá 7. júní 2016.

A kærði þá ákvörðun Endurmenntunar Háskóla Íslands að synja beiðni um aðgang að krossaspurningum í fyrri hluta prófs í námskeiði á vegum stofnunarinnar en A reisti rétt sinn til aðgangs á 5. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Synjun Endurmenntunar var byggð á 5. tölul.  10. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á að ákvæðið takmarkaði rétt til aðgangs að krossaspurningunum þar sem prófið hefði þegar verið lagt fyrir og ekki væri fyrirhugað að leggja það fyrir aftur í óbreyttri mynd. Var því Endurmenntun Háskóla Íslands gert að veita kæranda aðgang að krossaprófinu.

15. jún. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

621/2016. Úrskurður frá 7. júní 2016

A kærði synjun Fjármálaeftirlitsins á beiðni um aðgang að upplýsingum um gögn sem lágu til grundvallar samþykkis stofnunarinnar á réttindatöflu Lífverks, lífeyrissjóðs verkfræðinga. Deilt var um aðgang að tveimur gögnum, tryggingarfræðilegri úttekt og minnisblaði án útstrikana. Undir rekstri málsins afhenti FME kæranda úttektina og var kæru því vísað frá hvað það gagn varðaði. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi enga lagaskyldu standa til afhendingar minnisblaðsins en FME hafði afhent kæranda minnisblaðið að hluta á grundvelli 11. gr. laga nr. 140/2012 með því að afmá nafn þess starfsmanns sem vann skjalið. Var staðfest synjun Fjármálaeftirlitsins um aðgang að upplýsingum um nafn starfsmanns er ritaði umbeðið minnisblað.

14. jún. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

620/2016. Úrskurður frá 7. júní 2016

Kærð var ákvörðun Reykjavíkurborgar um synjun beiðni um afhendingu gagna er vörðuðu tilboð tveggja bjóðenda í verðfyrirspurn borgarinnar. Reykjavíkurborg taldi óheimilt að veita aðgang að tilboðum bjóðenda, sundurliðuðum fyrir hvern afmarkaðan hluta verðfyrirspurnarinnar, með vísan til 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Þar sem kærandi var meðal tilboðsgjafa var réttur hans til aðgangs að gögnunum reistur á 14. gr. upplýsingalaga. Ekki var talið að þær upplýsingar sem fram kæmu í tilboði umræddra bjóðenda gætu valdið bjóðendum tjóni fengi kærandi aðgang að þeim. Þá taldi nefndin hagsmuni kæranda af því að fá aðgang að gögnunum vega þyngra en hagsmunir umræddra bjóðenda af því að upplýsingunum yrði haldið leyndum.…

10. jún. 2016Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Fyrsta skýrsla forsætisráðherra um framkvæmd upplýsingalaga

Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra hefur lagt fyrir Alþingi skýrslu um framkvæmd upplýsingalaga. Þar er einkum fjallað um meðferð upplýsingabeiðna hjá aðilum sem falla undir upplýsingalög, meðferð kærumála hjá úrskurðarnefnd um upplýsingamál, birtingu upplýsinga að frumkvæði stjórnvalda og endurnot opinberra upplýsinga.

31. maí 2016Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ræða forsætisráðherra í almennum stjórnmálaumræðum á Alþingi 30. maí 2016

Ræða Sigurðar Inga Jóhannssonar forsætisráðherra í almennum stjórnmálaumræðum (eldhúsdagsumræðum) á Alþingi 30. maí 2016.

19. maí 2016Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Mikilvægi heilsueflingar á íslenskum vinnumarkaði

Setningarræða Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra á málþingi um mikilvægi heilsueflingar á íslenskum vinnumarkaði sem haldið var af Samtökum iðnaðarins, forsætisráðuneytinu og Vinnueftirlitinu á Grand hóteli, 19. maí 2016.

17. maí 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

619/2016. Úrskurður frá 4. maí 2016

A kærði tvær ákvarðanir utanríkisráðuneytisins á beiðnum um aðgang að gögnum um Norður-Atlantshafsbandalagið (NATO). Af hálfu ráðuneytisins kom fram að hluti gagnanna væri ekki í vörslum þess. Þau gögn sem eftir stæðu væru undanþegin upplýsingarétti samkvæmt upplýsingalögum á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 4. gr. laganna. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki efni til að rengja mat ráðuneytisins og vísaði kærunum frá nefndinni.

17. maí 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

618/2016. Úrskurður frá 4. maí 2016

Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að hafna beiðni um aðgang að gögnum sem varða samning embættisins, heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og TV-Software um VERU – heilsuvef. Kærandi byggði á því að ekki hefði farið fram mat á því hvort heimilt væri að veita aðgang að umbeðnum gögnum að hluta og að landlæknir hefði ekki metið efnislega hvort 9. gr. upplýsingalaga ætti við heldur byggt á því að aðrir aðilar samningsins hefðu ekki samþykkt að aðgangur yrði veittur. Af hálfu landlæknis kom fram að þetta mat væri í höndum úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Úrskurðarnefndin féllst ekki á þau sjónarmið og felldi ákvörðun landlæknis úr gildi.

17. maí 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

617/2016. Úrskurður frá 4. maí 2016

A kærði ákvörðun Tollstjóra um synjun beiðni um upplýsingar um tollflokksnúmer tiltekinna bifreiða. Tollstjóri bar fyrir sig að embættinu væri óheimilt að afhenda upplýsingarnar með vísan til 9. gr. upplýsingalaga og 188. gr. tollalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að líta bæri á síðarnefnda ákvæðið sem sérstakt ákvæði um þagnarskyldu sem gengi framar rétti almennings til aðgangs að upplýsingum eftir upplýsingalögum og vísaði kæru kæranda frá.

17. maí 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

616/2016. Úrskurður frá 4. maí 2016

Deilt var um synjun Landsnets hf. á beiðni um afrit af skýrslu um jarðstrengi. Landsnet bar fyrir sig að skýrslan hefði að geyma upplýsingar um fjárhags- og viðskiptahagsmuni sem leynt skyldu fara samkvæmt 9. gr. upplýsingalaga og 1. tölul. 1. mgr. 6. gr. laga um upplýsingarétt um umhverfismál. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst á það með Landsneti að tilteknar upplýsingar í skýrslunni gætu haft verðmyndandi áhrif þegar kæmi til útboðs vegna framkvæmdarinnar. Synjun var því staðfest hvað þær upplýsingar varðar en kæranda veittur aðgangur að skýrslunni að öðru leyti.

28. apr. 2016Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Forsætisráðherra með lokaávarp á ráðstefnu um samkeppnishæfni

Forsætisráðherra benti á það í ræðu sinni að það ætti ekki að koma neinum á óvart að Ísland væri á meðal fremstu þjóða þegar stuðst væri við mælikvarða sem mæla gæði samfélagsins almennt.

07. apr. 2016Ríkisstjórn, Forsætisráðuneytið, Annað

Ráðuneyti Sigurðar Inga Jóhannssonar

Ráðuneyti Sigurðar Inga Jóhannssonar: 7. apríl 2016.

07. apr. 2016Ríkisstjórn, Forsætisráðuneytið, Annað

Ráðuneyti Sigurðar Inga Jóhannssonar

Ráðuneyti Sigurðar Inga Jóhannssonar: 7. apríl 2016.

07. apr. 2016Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ræða forsætisráðherra, Sigurðar Inga Jóhannssonar, í sérstakri umræðu á Alþingi 8. apríl 2016

ATH: Þessi grein er eldri en 5 ára. 07 apríl 2016 / Forsætisráðuneytið Ræða forsætisráðherra, Sigurðar Inga Jóhannssonar, í sérstakri umræðu á Alþingi 8. apríl 2016 Talað orð gildir Hæstvirtur forseti

16. mar. 2016Rit og skýrslur, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Forsætisráðuneytið

Stöðuskýrsla um aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs 2014-2016 (2016)

mars 2016 / Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið Forsætisráðuneytið Stöðuskýrsla um aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs 2014-2016 (2016) Stöðuskýrsla um aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs 2014-2016

07. mar. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

615/2016. Úrskurður frá 7. mars 2016

Kærð var afgreiðsla embættis landlæknis á beiðni kæranda um upplýsingar varðandi stofnanir  sem sinna fíkniefnameðferð. Hvað varðaði fyrirspurnir kæranda um upplýsingar um fjölda skráðra atvika og kvartana taldi úrskurðarnefnd um upplýsingamál ekki ástæðu til að draga í efa þá fullyrðingu embættis landslæknis að hinar umbeðnu upplýsinga væru ekki fyrirliggjandi. Lá því ekki fyrir synjun á afhendingu gagna í skilningi 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Þá hafði fyrirspurn um upplýsingar um framkvæmd embættisins á gæðaeftirliti á fíknimeðferð verið svarað með því að vísa til fyrirliggjandi upplýsinga á heimasíðu embættisins, sbr. 2. mgr. 19. gr. upplýsingalaga. Var því kæru málsins vísað frá úrskurðarnefndinni í heild sinni.

07. mar. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

614/2016. Úrskurður frá 7. mars 2016

Kærð var synjun Seðlabanka Íslands um aðgang að gjaldeyrisskiptasamningi Seðlabanka Íslands við Seðlabanka Kína. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi upplýsingar í samningnum heyra undir þagnarskylduákvæði 1. mgr. 35. gr. laga nr. 36/2001 um Seðlabanka Íslands sem væri sérstök þagnarskylduregla. Þar sem trúnaðarupplýsingar kæmu mjög víða fram í samningnum væri ekki unnt að veita aðgang að þeim hlutum skjalsins sem sérstök þagnarskylda náði ekki til, sbr. 3. mgr. 5. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Var því ekki hjá því komist að vísa kærunni frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

• First
• Prev
• 53
• 54
• 55
• 56
• 57
• Next
• Last
Logo
• Um vefinn
• Áskrift
• Veftré
• Fyrirvari
+354 545 8000
Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
Hafa samband

Hafa samband