Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
• Verkefni
• Almannatryggingar og lífeyrir
• Almannaöryggi
• Atvinnuvegir
• Auðlindir
• Efnahagsmál
• Félags- og fjölskyldumál
• Fjarskipti
• Húsnæðis- og mannvirkjamál
• Líf og heilsa
• Kosningar
• Lög og réttur
• Mannauðsmál ríkisins
• Mannréttindi og jafnrétti
• Menningarmál
• Menntamál
• Neytendamál
• Opinber fjármál
• Persónuréttur
• Rekstur og eignir ríkisins
• Samgöngur
• Sjálfbært Ísland
• Skipulagsmál
• Stjórnskipan og þjóðartákn
• Sveitarstjórnir og byggðamál
• Trú og lífsskoðun
• Umhverfi og náttúruvernd
• Upplýsingatæknimál ríkisins
• Utanríkismál
• Útlendingar
• Vinnumál
• Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
• Öll verkefni
• Efst á baugi
• Fréttir
• Nýjast
• Fyrirspurnir frá Alþingi
• Fyrir fjölmiðla
• Eldri fréttir
• Gögn
• Rit og skýrslur
• Úrskurðir og álit
• Eyðublöð
• Stefnur og áætlanir
• Styrkir og sjóðir
• Hugtakasafn
• Lög og reglugerðir
• Málaskrár ráðuneyta
• Mælaborð
• Hönnunarstaðall
• Ráðuneyti
• Forsætisráðuneytið
• Atvinnuvegaráðuneytið
• Dómsmálaráðuneytið
• Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
• Fjármála- og efnahagsráðuneytið
• Heilbrigðisráðuneytið
• Innviðaráðuneytið
• Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
• Mennta- og barnamálaráðuneytið
• Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
• Utanríkisráðuneytið
• Sendiskrifstofur
• Samstarfsráðherra Norðurlanda
• Starfsfólk
• Stofnanir
• Nefndir
• Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
• Umbra
• Ríkisstjórn
• Skipan ríkisstjórnar
• Ríkisstjórnarfundir
• Stjórnarsáttmáli
• Ráðherranefndir
• Reglur um starfshætti
• Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
• Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
• Þingmálaskrá
• Ríkisráð
• Sögulegt efni
• Fyrir fjölmiðla
EN
• Verkefni
• Almannatryggingar og lífeyrir
• Almannaöryggi
• Atvinnuvegir
• Auðlindir
• Efnahagsmál
• Félags- og fjölskyldumál
• Fjarskipti
• Húsnæðis- og mannvirkjamál
• Líf og heilsa
• Kosningar
• Lög og réttur
• Mannauðsmál ríkisins
• Mannréttindi og jafnrétti
• Menningarmál
• Menntamál
• Neytendamál
• Opinber fjármál
• Persónuréttur
• Rekstur og eignir ríkisins
• Samgöngur
• Sjálfbært Ísland
• Skipulagsmál
• Stjórnskipan og þjóðartákn
• Sveitarstjórnir og byggðamál
• Trú og lífsskoðun
• Umhverfi og náttúruvernd
• Upplýsingatæknimál ríkisins
• Utanríkismál
• Útlendingar
• Vinnumál
• Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
• Öll verkefni
• Efst á baugi
• Fréttir
• Nýjast
• Fyrir fjölmiðla
• Eldri fréttir
• Fyrirspurnir frá Alþingi
• Gögn
• Rit og skýrslur
• Úrskurðir og álit
• Eyðublöð
• Stefnur og áætlanir
• Styrkir og sjóðir
• Hugtakasafn
• Lög og reglugerðir
• Málaskrár ráðuneyta
• Mælaborð
• Hönnunarstaðall
• Ráðuneyti
• Forsætisráðuneytið
• Atvinnuvegaráðuneytið
• Dómsmálaráðuneytið
• Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
• Fjármála- og efnahagsráðuneytið
• Heilbrigðisráðuneytið
• Innviðaráðuneytið
• Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
• Mennta- og barnamálaráðuneytið
• Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
• Utanríkisráðuneytið
• Sendiskrifstofur
• Samstarfsráðherra Norðurlanda
• Starfsfólk
• Stofnanir
• Nefndir
• Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
• Umbra
• Ríkisstjórn
• Skipan ríkisstjórnar
• Ríkisstjórnarfundir
• Stjórnarsáttmáli
• Ráðherranefndir
• Reglur um starfshætti
• Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
• Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
• Þingmálaskrá
• Ríkisráð
• Sögulegt efni
• Fyrir fjölmiðla
Close navigation
Efnisorð
Efnisorð

Ekkert fannst

Tegund
Tegund

Leita eftir efnisorðum

Sýnir 2901–2950 af 3887
Raða eftir:
31. jan. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-513/2014. Úrskurður frá 28. janúar 2014

Kærð var synjun Hafnarfjarðarkaupstaðar á því að verða við beiðni um að fá afrit af minnisblaði sem ritað var í aðdraganda ákvörðunar um fjárhagsaðstoð við íþróttafélagið Hauka. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi umrætt minnisblað hafa að geyma upplýsingar sem skýrðu forsendur ákvörðunar bæjarráðs um að semja við Hauka um kaup á hlut í mannvirkjum þeirra að Ásvöllum. Þær upplýsingar kæmu ekki annars staðar fram. Var það því niðurstaða nefndarinnar að Hafnarfjarðarkaupstaður skyldi afhenda kæranda afrit af minnisblaðinu.

21. jan. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Viðskiptatækifæri á norðurslóðum

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, hélt í morgun opnunarerindi á morgunverðarfundi um viðskiptatækifæri á norðurslóðum.

31. des. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Áramótaávarp forsætisráðherra 2013

Áramótaávarp Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra, 31. desember 2013.

31. des. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Horfum bjartsýn til framtíðar

Áramótagrein Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Framsóknarflokksins og forsætisráðherra í Morgunblaðinu 31. desember 2013.

18. des. 2013Rit og skýrslur, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Forsætisráðuneytið

Vísinda og tækniráð - Stefna 2013 til 2016 – drög að útgáfu

desember 2013 / Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið Forsætisráðuneytið Vísinda og tækniráð - Stefna 2013 til 2016 – drög að útgáfu Vísinda og tækniráð - Stefna 2013 til 2016 – drög að útgáfu

18. des. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-512/2013. Úrskurður frá 13. desember 2013

A kærði ákvörðun Borgarbyggðar um að synja beiðni hans um gögn sem tengdust máli sveitarfélagsins og úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um sorphirðugjald. Með vísun til undanþáguákvæðis um bréfaskipti tengd dómsmálum, eða athugun á höfðun slíks máls, var synjun Borgarbyggðar að hluta til staðfest. A.ö.l. var Borgarbyggð gert að afhenda kæranda, A, afrit af tilgreindum gögnum.

18. des. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-511/2013. Úrskurður frá 13. desember 2013

A kærði  afgreiðslu Ríkiskaupa á beiðni hans um gögn. Kæran laut efnislega að sömu gögnum og hann hafði áður óskað eftir að fá frá landlækni – og  nefndin hafði úrskurðað um þá ósk (sjá A-430/2012, A-431/2012 og A-433/2012). A taldi hins vegar að misbrestir hefðu orðið á því hjá landlækni að afhenda gögn samkvæmt þeim úrskurðum. Því hafði hann snúið sér til Ríkiskaupa, sem einnig höfðu gögnin undir höndum, en fengið synjun. Þá synjun kærði hann til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Hún kvað menn eiga rétt á að óska eftir sömu gögnum hjá öðru stjórnvaldi, sem einnig hefði þau í vörslu sinni, m.a. til að ganga úr skugga um að þau væru eins hjá báðum stjórnvöldum, og lagði fyrir Ríkiskaup að afhenda A umrædd gögn.

18. des. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-510/2013. Úrskurður frá 13. desember 2013

A kærði til úrskurðarnefndar um upplýsingamál afgreiðslu fjármála- og efnahagsráðuneytisins á beiðni hans um aðgang að tilteknum gögnum. Beiðni hans hafði  upphaflega lotið að fjórum atriðum/gögnum en þar af hafði nefndin þegar, með úrskurði A-490/2013, tekið afstöðu til þriggja. Eftir stóð að fjalla um gögn stýrinefndar, sem í sátu fulltrúar þriggja ráðuneyta, varðandi endurreisn stóru íslensku viðskiptabankanna. Úrskurðarnefndin vísaði frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu beiðni um aðgang að „þeim greinargerðum, minnisblöðum og öðrum gögnum sem höfð voru til hliðsjónar um ákvörðun nefndarinnar um þá leið sem farin var í heimildarlausri einkavæðingu Nýja Kaupþings hf.“ Hins vegar lagði hún fyrir ráðuneytið að afhenda kæranda tilteknar fundargerðir stýrinefndarinnar.

17. des. 2013Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Handbók um verkefnastjórnun fyrir Stjórnarráðið

Í handbókinni er fjallað um helstu tegundir verkefna í Stjórnarráðinu, verkefnayfirlit, verkefnavinnu og samsetningu verkefnishópa. Gerð er ítarleg grein fyrir verkefnisáætlunum og eyðublaði fyrir slíkar áætlanir í málaskrá Stjórnarráðsins.

17. des. 2013Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Handbók um verkefnastjórnun fyrir Stjórnarráðið

Í handbókinni er fjallað um helstu tegundir verkefna í Stjórnarráðinu, verkefnayfirlit, verkefnavinnu og samsetningu verkefnishópa. Gerð er ítarleg grein fyrir verkefnisáætlunum og eyðublaði fyrir slíkar áætlanir í málaskrá Stjórnarráðsins.

17. des. 2013Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Handbók um opinbera stefnumótun og áætlanagerð

Í handbókinni er gerð grein fyrir grunnatriðum stefnumótunarfræða, mismunandi umfangi stefnumótunar og algengum afurðum slíkrar vinnu í ráðuneytum og stofnunum. Gefið er yfirlit yfir hið almenna stefnumótunarferli og þau sex skref sem þar eru lögð til grundvallar.

17. des. 2013Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Handbók um opinbera stefnumótun og áætlanagerð

Í handbókinni er gerð grein fyrir grunnatriðum stefnumótunarfræða, mismunandi umfangi stefnumótunar og algengum afurðum slíkrar vinnu í ráðuneytum og stofnunum. Gefið er yfirlit yfir hið almenna stefnumótunarferli og þau sex skref sem þar eru lögð til grundvallar.

13. des. 2013Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Leggur til breytingu á gjöldum af póstsendingum

Starfshópur vegna samkeppnisstöðu póstverslunar hefur skilað forsætisráðherra skýrslu sinni. Helstu tillögur starfshópsins eru þær að lagt er til að erlendum fyrirtækjum, sem selja vörur og póstleggja til Íslands, verði heimilt að innheimta og skila virðisaukaskatti og aðflutningsgjöldum af þeim vörum sem seldar eru til landsins.

30. nóv. 2013Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar um höfuðstólslækkun húsnæðislána

Ríkisstjórnin kynnir í dag aðgerðaáætlun með það að markmiði að lækka húsnæðisskuldir heimila í landinu.

26. nóv. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-509/2013. Úrskurður frá 20. nóvember 2013

Landlæknir krafðist þess að úrskurðarnefnd um upplýsingamál myndi fresta réttaráhrifum úrskurðar nr. A-497/2013, dags. 23. september 2013. Nefndin fór yfir gögn málsins en taldi ekkert nýtt hafa komið fram er sýndi að fyrir hendi væru lagaskilyrði til þess að fresta réttaráhrifum úrskurðarins. Þá sá hún ekki ástæðu til þess að afturkalla úrskurðinn að eigin frumkvæði enda benti ekkert til þess að hann væri haldinn slíkum annmörkum að hann væri ógildanlegur að lögum.  Var því úrskurðað þannig að kröfu landlæknis um frestun réttaráhrifa var hafnað.

26. nóv. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-508/2013. Úrskurður frá 20. nóvember 2013

Kærð var sú ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar að synja um aðgang að lánssamningi sem bærinn gerði við FMS Wertmanagement. Áður hafði verið úrskurðað í því máli (úrsk. nr. A-474/2013) en þann úrskurð hafði orðið að fella úr gildi vegna efnisannmarka. Því var kveðinn upp nýr úrskurður en efnislega varð niðurstaðan í megindráttum sú sama, þ.e. að veita skyldi aðgang að samningnum. Þó var gerð breyting varðandi tilteknar útstrikanir.

26. nóv. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-507/2013. Úrskurður frá 20. nóvember 2013

Kærð var synjun fjármála- og efnahagsráðuneytisins á beiðni um að fá afrit af hlutum fundargerða nefndar um fjármálastöðugleika þar sem rætt er um málefni L hf. M.a. var metið hvort um vinnuskjöl væri að ræða, en niðurstaðan varð sú að svo væri ekki. Það varð niðurstaða nefndarinnar að ráðuneytinu bæri að afhenda kæranda afrit af þeim hlutum fundargerða þar sem rætt hafði verið um málefni félagsins, á tilgreindu tímabili.

13. nóv. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ávarp forsætisráðherra við opnun sýningar á Íslensku teiknibókinni

Ávarp Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra við opnun sýningar á Íslensku teiknibókinni í Gerðarsafni, Kópavogi, 13. nóvember 2013. Ávarpið er á dönsku og íslensku.

11. nóv. 2013Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Ítarlegar tillögur frá hagræðingarhópi ríkisstjórnarinnar

Hagræðingarhópur ríkisstjórnarinnar hefur skilað frá sér tillögum sínum en þær taka til allra helstu þátta ríkisrekstrarins og allra stærri þjónustu- og stjórnsýslukerfa ríkisins. Hagræðingarhópurinn hefur ekki lagt áherslu á beinar niðurskurðartillögur heldur á kerfisbreytingar sem beinast að breytingum á áherslum, aðferðum og skipulagi.

11. nóv. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-506/2013. Úrskurður frá 7. nóvember 2013

A kærði synjun Hörgársveitar (H) á beiðni um aðgang að gögnum varðandi kaup H á eignarhluta Íslandsbanka hf. í Hrauni í Öxnadal ehf. A vísaði til þess að hún og eiginmaður hennar ættu einstaklingsbundinna hagsmuna að gæta, og ættu því rétt til aðgangs samkvæmt 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi upplýsingarnar ekki hafa slík tengsl við þessa einstaklinga að vinnsla með þær gæti haft áhrif á hagsmuni þeirra. Því gilti umrædd grein ekki um aðgang þeirra að gögnunum.

11. nóv. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-505/2013. Úrskurður frá 7. nóvember 2013

A kærði afgreiðslu Vestmannaeyjabær á beiðni hans um gögn um samskipti bæjarins við lögmann. Þau tengdust starfsmannamáli sem bærinn hafði til meðferðar, n.t.t. ágreiningsmáli milli bæjarins og tilgreinds starfsmanns um túlkun á ákvæðum kjara- og ráðningarsamnings. Gögnin voru á formi tölvupósts þar sem fjallað var um svigrúm nafngreinds starfsmanns Vestmannaeyjabæjar til sveigjanlegs vinnutíma. Þessi póstur var talinn til gagna máls varðandi starfssamband í skilningi ákvæðis 1. málsgr. 7. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Það var því niðurstaða úrskurðarnefndar um upplýsingamál að réttur kæranda skv. 5. gr. upplýsingalaga tæki ekki til tölvupóstsins og var ákvörðun Vestmannaeyjabæjar því staðfest.

11. nóv. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-503/2013. Úrskurður frá 7. nóvember 2013

A kærði synjun Seðlabanka Íslands um afhendingu gagna varðandi eftirlit samkvæmt lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál og tengdum stjórnvaldsfyrirmælum. Bankinn taldi umrædd gögn falla undir 1. mgr. 35. gr. laga nr. 36/2001.  Varðandi skjölin: a) Meðferð og skráning upplýsinga um gjaldeyrisviðskipti, b) Verklagsreglur almenns eftirlits og c) Verklagsreglur við afhendingu mála úr eftirliti, leit úrskurðarnefnd um upplýsingamál til þess að bankinn hefði sett sér þessar reglur til þess að rækja lögbundið hlutverk sitt. Telja mætti skjölin varða hann sjálfan sérstaklega, enda gæti það beinlínis auðveldað sniðgöngu á lögunum, og gert eftirlit hans að sama skapi erfiðara, yrðu þau gerð opinber. Því gætu þau fallið undir ákvæðið.…

08. nóv. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-502/2013. Úrskurður frá 7. nóvember 2013

A kærði, fyrir hönd Flugvirkjafélags Íslands, afgreiðslu Flugmálastjórnar Íslands á beiðni þess um aðgang að upplýsingum um hvort nýstofnað fyrirtæki hefði sótt um EASA part-145 starfsleyfi til að viðhalda hjólum, bremsum og öðrum íhlutum. Umsókn R hafði ekki borist Flugmálastjórn Íslands þegar henni barst umrædd beiðni - en þegar málið kom til úrskurðar hafði Flugmálastjórn ákveðið að umsóknin félli undir beiðnina, og að verða ekki við henni. Flugmálastjórn vísaði í fyrsta lagi til 1. mgr. 7. gr. laga nr. 100/2006. Úrskurðarnefndin taldi það vera sérákvæði um þagnarskyldu en að umsókn R félli ekki undir það. Þá ætti 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 ekki við. Í öðru lagi vísaði Flugmálastjórn til ákvörðunar sinnar nr. 1/2009, sbr. auglýsingu nr.…

07. nóv. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Skýrsla forsætisráðherra til Alþingis um þingsályktun um aðgerðir vegna skuldavanda heimila á Íslandi

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, flutti munnlega skýrslu á Alþingi, 7. nóvember 2013, um þingsályktun um aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna.

07. nóv. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-501/2013. Úrskurður frá 7. nóvember 3013

A kærði, f.h. eigenda jarðar, synjun sýslumanns um að veita þeim aðgang að öllum gögnum tiltekins sáttamáls um landamerki. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á það með sýslumanni að málið félli utan valdmarka hennar, enda hefði hann komið að sáttameðferðinni sem handhafi stjórnsýsluvalds og upplýsingalög tækju til allrar stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga. Þá var ekki á það fallist með honum að hér mætti lögjafna frá vissum undantekningum frá meginreglum um upplýsingarétt og heldur ekki á það að kærendur gætu ekki átt aðild að þessu máli fyrir nefndinni því þeir hefðu ekki átt aðild að umræddu sáttamáli. Loks féllst nefndin ekki á að þetta væru upplýsingar sem sanngjarnt væri  og eðlilegt að færu leynt.…

29. okt. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ræða forsætisráðherra um formennskuáætlun Íslands

Ræða Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra um formennskuáætlun Íslands í Norrænu ráðherranefndinni 2014, á þingi Norðurlandaráðs, 29. október 2013.

14. okt. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-500/2013. Úrskurður frá 10. október 2013

M kærði þá ákvörðun Þjóðskjalasafns Íslands að synja honum um aðgang að gögnum varðandi Kaupþing banka hf.  Nánar tiltekið um a) aðgang að öllum skjölum er varða mál sem tilgreind voru í kafla IV við bréf sem sett var fram í 11 tölusettum liðum, b) aðgang að öllum  gögnum og skjölum sem greint var frá í fylgiskjali við það bréf, en þessi hluti beiðninnar var nánar tilgreindur í 14 liðum og 14 undirliðum og c) aðgang að þeim gögnum og skjölum sem greint var frá í fylgiskjali við bréf sem sett var fram í 18 liðum og 11 undirliðum. Þjóðskjalasafnið hafði ekki talið upplýsingabeiðnina uppfylla lagaskilyrði en úrskurðarnefndin taldi beiðnina ekki hafa verið svo almenna að ekki hafi verið unnt að afgreiða hana efnislega, a.m.k. að hluta til.…

14. okt. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-499/2013. Úrskurður frá 10. október 2013

A kærði afgreiðslu fjármála- og efnahagsráðuneytisins á beiðni hans um aðgang að gögnum varðandi Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann óskaði eftir a) gögnum sem ráðuneytið kynni að hafa vegna breytingartillögu meirihluta fjárlaganefndar við aðra umræðu fjárlaga ársins 2012 og b) gögnum sem ráðuneytið kynni að hafa vegna tiltekinnar breytingartillögu á fjáraukalögum fyrir árið 2011. Það varð niðurstaða úrskurðarnefndar að ráðuneytinu bæri að afhenda A tilgreind skjöl. Einnig skyldi honum afhent tiltekið bréf ráðuneytisins til fjárlaganefndar Alþingis varðandi breytingar á frumvarpi til fjáraukalaga fyrir árið 2011 vegna kjarasamninga. Þá skyldi afhenda honum bréf til fjárlaganefndar Alþingis, sem m.a. varðaði breytingar á frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2012.…

14. okt. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-498/2013. Úrskurður frá 10. október 2013

A kærði þá ákvörðun Þjóðskjalasafns Íslands að synja honum um aðgang að skýrslu sem B gaf fyrir rannsóknarnefnd Alþingis. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál leit til þess að þótt löggjafinn hafi með skýrum hætti ákveðið að þau gögn sem rannsóknarnefndin aflaði vegna rannsóknar sinnar skyldu færð á Þjóðskjalasafn Íslands, og að um aðgang að þeim skyldi fara eftir ákvæðum upplýsingalaga, hefðu þau lög að geyma mikilvæga undantekningu á upplýsingarétti almennings vegna einkahagsmuna einstaklinga. Við mat á því hvort þessi undanteking ætti við skipti máli að þeim sem gáfu skýrslur fyrir rannsóknarnefndinni var gjarnan heitið trúnaði um upplýsingagjöf þeirra.…

10. okt. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Lokaerindi forsætisráðherra á ráðstefnu um þróun orkumála á norðurslóðum

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, flutti lokaerindi á
ráðstefnu um þróun orkumála á norðurslóðum, Arctic Energy Summit, sem haldin var á Akureyri 8.-10. október.

03. okt. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-497/2013. Úrskurður frá 23. september 2013

Kærð var sú  ákvörðun landlæknis að synja um aðgang að kaupsamningi milli hans og TM Software – heilbrigðislausna. Af hálfu landlæknis kom fram að umræddur samningur innihéldi mikilvægar upplýsingar um fjárhags- eða viðskiptahagsmuni fyrirtækis sem sanngjarnt væri og eðlilegt að leynt færu. Nefndin taldi að þótt almenn vitneskja um kjör í viðskiptum fyrirtækja við hið opinbera gæti skaðað samkeppnisstöðu þeirra, og kynni jafnvel að skaða samkeppnisstöðu hins opinbera, hvort sem væri ríki eða sveitarfélög, yrði það sjónarmið að jafnaði að víkja fyrir almennum fyrirmælum laga um upplýsingarétt almennings. Þá taldi nefndin ekki hafa verið sýnt fram á að upplýsingar í samningnum væru til þess fallnar að valda samningsaðilum tjóni yrðu þær gerðar opinberar.…

03. okt. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-496/2013. Úrskurður frá 23. september 2013

Kærð var synjun Siglingastofnunar á beiðni um afrit af útsendum yfirlitum með reikningum vegna vinnu tiltekinna starfsmanna. Úrskurðarnefnd féllst í fyrsta lagi ekki á það með Siglingastofnun að synja bæri beiðninni vegna skorts á skýrleika. Þá féllst nefndin í öðru lagi ekki á það með stofnuninni að synja bæri um aðgang vegna þess að í gögnunum væru slíkar upplýsingar um mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni fyrirtækja og annarra lögaðila að aðgangur að þeim gæti verið til þess fallinn að valda þeim tjóni. Í þriðja lagi var ekki fallist á að synja mætti vegna álags á stofnunina sem hlytist af verkefnaflutningi til Samgöngustofu. Því var úrskurðað að veita bæri umbeðinn aðgang.

02. okt. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Stefnuræða forsætisráðherra á 143. löggjafarþingi

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, flutti stefnuræðu sína á 143. löggjafarþingi 2. október 2013.

30. sep. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ávarp forsætisráðherra á aðalfundi Eyþings

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, flutti ávarp á aðalfundi Eyþings, samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi eystra sem fram fór á Grenivík á föstudaginn 27. september sl.

23. sep. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-495/2013. Úrskurður frá 23. september 2013

A kærði drátt á svörum ríkislögmanns við ósk hennar um aðgang að fyrirliggjandi gögnum varðandi tiltekin samskipti hans og velferðarráðuneytisins, tengdum máli hennar á hendur ráðuneytinu. Eftir að úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók kæruna til meðferðar var beiðnin afgreidd. Með vísan til þess lá ekki fyrir synjun stjórnvalds á afhendingu gagna í skilningi upplýsingalaga, sem heyrði undir nefndina að fjalla um. Varð því að vísa kærunni frá nefndinni.

19. sep. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ávarp forsætisráðherra á fjárfestingaráðstefnu í Lundúnum

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra flutti ávarp á fjárfestingaráðstefnu á Waldorf Hilton Hotel í Lundúnum, 19. september 2014. Í ræðu sinni útlistaði forsætisráðherra helstu áhersluþætti í efnahags- og fjárfestingastefnu ríkisstjórnarinnar, meðal annars er snúa að umhverfi efnahags- og fjármála á Íslandi og auknum möguleikum til fjárfestinga.

13. sep. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Erindi á aðalfundi sambands sveitarfélaga á Austurlandi

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, flutti erindi á aðalfundi sambands sveitarfélaga á Austurlandi, sem haldið var á Eskifirði, 13. september 2013.

11. sep. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðir forsætisráðuneytisins, Úrskurðir

Úrskurður forsætisráðuneytisins nr. 2 í máli nr. 1/2013

Kæra Must Visit Iceland ehf vegna ákvörðunar Sveitarfélagsins Hornafjarðar

16. ágú. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-492/2013. Úrskurður frá 16. ágúst 2013

Kærð var sú ákvörðun Byggðastofnunar að synja M um afhendingu ráðningarsamninga við tilgreinda starfsmenn stofnunarinnar. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á að það með Byggðastofnun að tiltekin ákvæði upplýsingalaga, um starfsmannamálefni undanþegin upplýsingarétti girtu fyrir að M fengi umbeðinn aðgang. Hún kvað þann rétt, sem upplýsingalögin veita borgurunum til aðgangs að upplýsingum um föst launakjör opinberra starfsmanna, ekki eiga að víkja fyrir slíkum viðskipta- og samkeppnishagsmunum sem Byggðastofnun vísaði til. Þá gæti stjórnvald ekki, án sérstakrar lagaheimildar, lofað þeim sem það gerði ráðningarsamninga við, að aðrir fengju ekki afrit af þeim samningum. Byggðastofnun bæri því að veita aðgang að umræddum ráðningarsamningum.…

16. ágú. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-491/2013. Úrskurður frá 16. ágúst 2013

Kærð var sú ákvörðun Fjármálaeftirlitsins að vísa frá beiðni um aðgang að gögnum er tengjast Kaupþingi banka hf. Kærandi krafðist aðgangs að gögnunum. Beiðninni var að hluta til vísað til Fjármálaeftirlitsins til nýrrar meðferðar og afgreiðslu en beiðni um aðgang að öðrum gögnum sem Fjármálaeftirlitið afhenti Rannsóknaranefnd Alþings og varða Kaupþing banka, þ.e. níunda og síðasta lið beiðni, var vísað frá nefndinni.

16. ágú. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-494/2013. Úrskurður frá 16. ágúst 2013

Kærð var afgreiðsla sérstaks saksóknara á beiðni um afrit af tölvupóstsamskiptum hans og fréttamanns. Við meðferð málsins sagði sérstakur saksóknari að gögnunum hefði að öllum líkindum verið eytt og öryggisafrit væru ekki til.

Í úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál segir að þótt ýmsum lagaákvæðum sé ætlað að tryggja að stjórnvöld skrái og varðveiti þær upplýsingar sem þau sýsla með komi eftirlit með þeim ákvæðum í hlut annarra aðila. Hlutverk hennar sé að úrskurða um ágreining vegna synjunar stjórnvalda um aðgang að gögnum. Þar sem umrædd gögn voru ekki til hjá sérstökum saksóknara varð ekki hjá því komist að vísa málinu frá nefndinni.

16. ágú. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-493/2013. Úrskurður frá 16. ágúst 2013

Kærð var ákvörðun landlæknis um aðgang að gögnum um úttekt á lyfjagagnagrunni. Landlæknir hafði orðið við beiðni varðandi gögn á málaskrá en m.a. synjað um aðgang að tölvupóstum sem væru vinnugögn. Í úrskurði segir að stjórnvald geti ekki synjað um aðgang að gagni því það sjálft telji það vera vinnugagn. Heldur ekki vegna þess að gagn hafi ekki verið fært í málaskrá, það ekki verið merkt þar sem vinnugagn eða  verið ranglega flokkað. Þá taldi nefndin oft ekki vera ljóst, að því er tölvupóstana varðaði, hvort um væri að ræða innanhússamskipti eða samskipti eins eða fleiri stjórnvalda. Þá innihéldu nokkrir þeirra mögulega upplýsingar um einkamálefni einstaklinga, sumir virtust hafa að geyma hluta af lyfjagagnagrunni og sumir hafa að geyma fundargerðir eða drög þeim.…

12. ágú. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Forsætisráðherra ræðir stöðu Norðurlandanna í Evrópu

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hélt í dag erindi og tók þátt í umræðum um stöðu Norðurlandanna í Evrópu í Arendal, Noregi. Var viðburðurinn liður í dagskrá Arendalsvikunnar, sem er vettvangur stjórnmála- og atvinnulífs í Noregi til umræðu og skoðanaskipta.

25. júl. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðir forsætisráðuneytisins, Úrskurðir

Úrskurður forsætisráðuneytisins nr. 1 í máli nr. 1/2013

Kæra Must Visit Iceland ehf vegna ákvörðunar Sveitarfélagsins Hornafjarðar

04. júl. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-490/2013. Úrskurður frá 3. júlí 2013

Kærð var synjun fjármála- og efnahagsráðuneytisins um aðgang að gögnum stjórnsýslunefndar, sem hafði með höndum samninga um endurmat á lánasöfnum bankanna nýju við erlenda kröfuhafa. Í öðru lagi var kærð sú ákvörðun ráðuneytisins að halda eftir ákveðnum hlutum tveggja samninga. Í þriðja lagi var þess óskað að úrskurðarnefndin endurmæti úrskurð sinn nr. A-436/2012. Með úrskurði A-490/2013 var staðfest synjun ráðuneytisins á beiðni um aðgang að tilteknum hlutum umræddra samninga og hafnað beiðni um endurupptöku  umrædds úrskurðar. Nefndin taldi hins vegar þörf frekari upplýsinga frá ráðuneytinu til að geta tekið afstöðu til synjunar um aðgang að gögnum umræddrar stjórnsýslunefndar. Er þeim þætti málsins því ólokið.

03. júl. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-489/2013. Úrskurður frá 3. júlí 2013

Kærð var ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um að synja um aðgang að samantekt sem unnin var fyrir hann um skipulag lögreglu við mótmælin 2008 til 2011. Með úrskurði nr. A-489/2013 var því hafnað að þessi samantekt væri undirbúningsgagn og vinnuskjal í skilningi upplýsingalaga. Hins vegar var talið að samantektin hefði að geyma persónuupplýsingar sem sanngjarnt væri og eðlilegt að færu leynt. Því hafi verið rétt að synja kæranda um aðgang að skjalinu í heild sinni. Kærandi ætti þó rétt á aðgangi að hlutum þess - þ.e. upplýsingum um sjálfan sig og þeim hlutum sem hefðu að geyma orðréttar tilvitnanir í fjölmiðla.

25. jún. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-488/2013. Úrskurður frá 25. júní 2013

Kærð var afgreiðsla velferðarráðuneytis á beiðnum kæranda um aðgang að fyrirliggjandi gögnum um samskipti velferðarráðuneytisins og embættis ríkislögmanns vegna máls hennar á hendur velferðarráðuneytinu. Erindunum hafði ekki verið svarað. Kveðinn var upp úrskurður nr. A-488/2013 þess efnis að þau gögn sem kærandi óskaði eftir og væru fyrirliggjandi hafi þegar verið afhent því lægi ekki fyrir synjun stjórnvalds um afhendingu gagna. Kærunni var því vísað frá.

25. jún. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

B-474/2013. Úrskurður frá 25. júní 2013

Úrskurður úrskurðarnefndar um upplýsingamál frá 31. janúar 2013 nr. A-474/2013 felldur úr gildi. Ekki efni til að taka afstöðu til kröfu um að frestað yrði réttaráhrifum úrskurðarins.

17. jún. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ávarp forsætisráðherra, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, á Austurvelli 17. júní 2013

„Á þessum tímamótum stöndum við frammi fyrir bæði ógnum og óþrjótandi tækifærum. Óhjákvæmilegt er að ytri skilyrði, efnahagsástand og alþjóðaumhverfi hafi áhrif á afkomu okkar. Við búum við einstakar auðlindir og legu landsins sem mikil tækifæri felast í. En dýrmætastur er þó mannauðurinn, sem býr meðal þjóðarinnar sjálfrar.“

10. jún. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Stefnuræða forsætisráðherra við upphaf 142. löggjafarþings

Stefnuræða forsætisráðherra, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, við upphaf 142. löggjafarþings, 10. júní 2013.

• First
• Prev
• 57
• 58
• 59
• 60
• 61
• Next
• Last
Logo
• Um vefinn
• Áskrift
• Veftré
• Fyrirvari
+354 545 8000
Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
Hafa samband

Hafa samband