13. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Úkraína, Utanríkismál
Utanríkisráðherrar Norðurlanda funduðu á Ísafirði
Stuðningur við Úkraínu og alþjóðasamfélagið, samskiptin við Rússland og staða mannúðarmála í Afganistan voru ofarlega á baugi á utanríkisráðherrafundi Norðurlanda sem fram fór á Ísafirði í dag. Ísland er í formennsku norrænnar samvinnu í ár, þar á meðal í utanríkispólitísku samstarfi Norðurlanda, og því fer árlegur sumarfundur í samstarfinu fram hér á landi.