10. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Evrópuráðið, Mannréttindi, Úkraína, Fastanefnd Íslands hjá Evrópuráðinu, Utanríkismál
Áhersla á aðgerðir gegn refsileysi fyrir brot Rússa í Úkraínu
Í tilefni alþjóðlega mannréttindadagsins í dag 10. desember vekur utanríkisráðherra, í hlutverki sínu sem forseti ráðherranefndar Evrópuráðsins, sérstaka athygli á mikilvægi aðgerða gegn refsileysi fyrir þau mannréttindabrot og aðra glæpi sem Rússar hafa framið í Úkraínu. Fastafulltrúi Úkraínu hjá Evrópuráðinu ræddi stöðuna í Úkraínu og ábyrgðarskyldu vegna glæpa í tengslum við innrásina á opnum fundi í Reykjavík í gær.