21. maí 2021Covid-19, Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið
Reglugerð um landamæri framlengd til 15. júní
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja reglugerð um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19 til 15. júní nk. Á þeim tíma er gert ráð fyrir að a.m.k. 60% þjóðarinnar, sem jafngildir 75% af þeim sem áætlað er að bjóða í bólusetningu, hafi fengið a.m.k. fyrri skammt bólusetningar. Með þessu er tekið undir sjónarmið sóttvarnalæknis um að skynsamlegt sé að halda sýnatöku á landamærum óbreyttri um sinn í því skyni að geta hafið afléttingu sýnatöku á landamærum um miðjan júní.