28. sep. 2026Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Mannauðsmál ríkisins, Opinber þjónusta
Uppfærð handbók um sameiningar ríkisstofnana
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur gefið út uppfærða handbók um sameiningar stofnana, sem inniheldur leiðbeiningar um undirbúning, framkvæmd og eftirfylgni við sameiningar ríkisstofnana. Leiðbeiningunum er ætlað að styðja ráðuneyti, stjórnendur og verkefnisstjóra við að undirbúa og leiða sameiningar með markvissum hætti.